Morgunblaðið - 24.04.2019, Side 32
Bubbi Morthens flytur ásamt hljóm-
sveit plöturnar Frelsi til sölu frá
1986 og Dögun frá 1987 í Eldborg
Hörpu í kvöld kl. 20.30. Um er að
ræða aðra tónleikana í tónleikaröð
þar sem Bubbi teflir saman tveimur
plötum hverju sinni. Meðal þekktra
laga af plötunum eru Serbinn, Er
nauðsynlegt að skjóta þá, Aldr-
ei fór ég suður, Frelsarans slóð
og Bak við veggi martraðar.
Frelsi til sölu og Dögun
fluttar í Hörpu í kvöld
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 114. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
KA varð í gærkvöld Íslandsmeistari
karla í blaki eftir sigur á HK, 3:2, í
æsispennandi oddaleik liðanna á
Akureyri og þar með hefur Akureyrar-
félagið náð einstökum árangri á
þessu keppnistímabili. Bæði karla-
og kvennalið félagsins eru þrefald-
ir meistarar; unnu Íslandsmótið,
deildakeppnina og bikarkeppnina,
og KA er því handhafi allra sex
titlanna í blakinu. »24
KA er handhafi allra
titlanna í blakinu
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
ÍR skellti Íslandsmeist-
urunum á útivelli
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sturlungaöldin á Íslandi er sveipuð
ævintýraljóma þó að hún hafi auðvit-
að einkennst af miklum átökum, of-
beldi og mannvígum,“ segir Áskell
Heiðar Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri 1238 – Baráttan um Ísland. „Á
tímum Sturlunga vegnaði þjóðinni á
margan hátt vel og þetta var sá
blómatími þegar þekktustu sögur og
fornrit okkar voru skráð. Á hinn bóg-
inn er áhugavert að velta fyrir sér
hvað kom af stað langvinnri skálmöld
sem endaði með því að Íslendingar
glötuðu sjálfstæði sínu til Norð-
manna með Gamla sáttmála árið
1262.“
Sjálfstæðið tapaðist
Unnið er þessa dagana á Sauðár-
króki að uppsetningu sýningarinnar
1238 – Baráttan um Ísland sem verð-
ur opnuð í næsta mánuði. Þar verður
í sýndarveruleika hægt að hverfa á
vit Sturlungaaldar; tímabils sem sagt
er hafa gengið í garð árið 1220 þegar
Snorri Sturluson kom frá Noregi til
Íslands.
Sagt er að hápunktur Sturlunga-
aldar sé Örlygsstaðabardagi árið
1238, en þá gerðu Sturlungar, sem
réðu vestanverðu landinu, atlögu að
Ásbirningum, sem voru allsráðandi í
Skagafirði og nutu atfylgis sunn-
lenskra Haukdæla. Fór svo að Ás-
birningar sigruðu Sturlunga í bar-
daganum á Örlygsstöðum. Hins
vegar höfðu Sturlungar betur í
Haugsnesbardaga og þar með var
veldi Ásbirninga brotið á bak aftur.
Þegar þar var komið sögu var hins
vegar stutt í endalokin, það er að Ís-
lendingar töpuðu sjálfstæðinu, sem
þeir heimtu ekki að fullu aftur fyrr
en árið 1944.
Að sýningunni á Sauðárkróki
stendur fyrirtækið Sýndarveruleiki
ehf. Farin er sú leið að miðla sögunni
stafrænt í umhverfi sem líkist tölvu-
leik og er hannað af starfsmönnum
fyrirtækisins RVX stúdíó. Þar fá
gestir bæði fræðslu um atburði ald-
anna og verða einnig virkir þátttak-
endur í bardaganum á Örlygs-
stöðum, í brennunni á Flugumýri og
fleiru.
Týnum ekki sögu í tækni
„Við rekjum atburðarás Sturl-
ungaaldar og kynnum valdaættir og
höfðingja, auk þess að fjalla um kon-
ur á Sturlungaöld. Við nýtum okkur
fjölbreytt form af miðlun, bæði hefð-
bundna uppsetningu með texta og
myndum á veggjum en einnig tækni-
legar útfærslur. Við gætum þess þó
vel að týna ekki sögunni í tækninni,“
segir Áskell Heiðar.
Sýningin 1238 – Baráttan um Ís-
land er í 1.000 fermetra byggingu
norðarlega á Sauðárkróki sem áður
hýsti verslun og mjólkursamlag KS
og inngangur er í húsinu Gránu.
Húsin eru í eigu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, sem leggur verkefninu
lið með húsnæði og endurgerð þess.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tækni Áskell Heiðar með skjá sem sýningargestir setja á höfuð sitt og þá opnast þeim ævintýraheimur.
Stafræn Sturlungaöld
Sagan í hnot-
skurn á Króknum
Tölvumynd/RVX stúdíó
Sturlunga Sýndartækni verður beitt svo að fólk hverfur aftur í aldir.
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Honeywell
keramik hitarar
Kalt? Hitaðu uppmeðHoneywell
Viftur
Hitarar
Lofthreinsitæki
ÍR-ingar halda áfram sigurgöngu
sinni í úrslitakeppni karla í körfu-
knattleik en í gærkvöld lögðu þeir
Íslandsmeistara KR að velli í fram-
lengdum leik í Vesturbænum,
89:83, og tóku þar með forystuna í
einvígi Reykjavíkurliðanna um Ís-
landsmeistaratitilinn. Þau mætast
næst í Breiðholtinu á föstudags-
kvöldið. »27