Morgunblaðið - 25.04.2019, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 43
www.skagafjordur.is
Leikskólastjóri óskast til starfa
Vilt þú vera hluti af öflugu stjórnendateymi í leik- og grunnskólum
Skagafjarðar? Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir stöðu leikskólastjóra
lausa til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2019 eða eftir
samkomulagi. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að
leiða skólastarfið með jákvæðum hætti, stilla saman strengi starfsmanna
og heimila og vera tilbúinn til að vinna í teymum með sérfræðingum
skólaþjónustu og yfirstjórn skólamála í héraðinu. Hann þarf að vera
framsýnn, lausnamiðaður, hugmyndaríkur og umbótasinnaður. Ítarlegri
upplýsingar um starfið auk menntunar- og hæfniskröfur má finna á
heimasíðu sveitarfélagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2019.
Nánari upplýsingar veitir Herdís Á Sæmundardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma
455 6000 eða has@skagafjordur.is Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í
gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is
(laus störf). Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.
Iðjuþjálfi óskast
Iðjuþjálfi óskast í 70 til 100% starf á Gigtar-
miðstöð Gigtarfélags Íslands. Starfið er
fjölbreytt og gefandi, krefst faglegra vinnu-
bragða og sjálfstæðis í starfi. Kostur ef
viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Emil Thoroddsen
framkvæmdarstjóri í síma 530 3600 eða 863
9922 og Jóhanna B. Bjarnadóttir iðjuþjálfi í
síma 530 3603. Fyrirspurnir er hægt að
senda á netfangið emilthor@gigt.is
Nánar má fræðast um starfsemi
Gigtarfélagsins á www.gigt.is
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf sendist skrifstofu Gigtarfélags
Íslands að Ármúla 5, 108 Reykjavík, eða
rafrænt á netfangið: emilthor@gigt.is fyrir
13. maí nk.
Gigtarfélag Íslands
Hæfniskröfur
sala og ráðgjöf
Grunnskólakennari
í Þjórsárskóla
2 lausar stöður kennara í Þjórsárskóla, 100%
og 80%.
Umsjónarkennsla á miðstigi. Kennslugreinar
eru stærðfræði, náttúrufræði, samfélags-
fræði, myndmennt, danska, enska og íþróttir
í 1.-7. bekk ( ekki sund).
Umsóknarfrestur til 6. maí 2019.
Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch
skólastjóri sími 895 9660 netfang
bolette@thjorsarskoli.is
Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru tæplega
50. Þeim er kennt í fjórum kennsluhópum. Í Þjórsárskóla er lögð
áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, útikennslu og umhverfið. Við
leggjum áherslu á að nýta það efni sem við fáum úr Þjórsár-
dalsskógi og að gefa gömlum hlutum nýtt líf. Yfirmarkmið skólans
er að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við
tókum við því.
Vefslóð www.thjorsarskoli.is
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi búa um 630 manns. Þéttbýliskjarnar
eru við Árnes og á Brautarholti. Í hreppnum eru náttúruperlur á
borð við Þjórsárdal. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá
höfuðborgarsvæðinu.
www.sidferdisgattin.is
Faglegur vettvangur til þess að koma
á framfæri óæskilegri háttsemi