Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 64
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Sumardaginn fyrsta. 12-18, laugardaga og
sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30
OPIÐ Í DAG
sumardaginn fyrsta
12:00 - 18:00
ERUM Á FULLU
AÐ TAKA UPP
SUMARVÖRUNA
Halldór Laxness: Alþjóðlegt mál-
þing um nóbelsskáldið verður hald-
ið í Veröld – húsi Vigdísar í dag,
fimmtudag, milli kl. 11 og 14.30. Þar
flytja erindi Auður Jónsdóttir, Gerð-
ur Kristný, John Freeman, Halldór
Guðmundsson, Karin Haugen, Mím-
ir Kristjánsson og Tore Renberg.
Málþing um nóbels-
skáldið í Veröld í dag
FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 115. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Eftir að hafa blásið á hrakspár um
fall í fyrra eru ÍBV og Víkingur R. í
svipaðri stöðu í ár en liðin urðu jöfn
í 10.-11. sæti í árlegri spá þjálfara,
fyrirliða og forráðamanna félag-
anna í efstu deild karla í knatt-
spyrnu. Keppni í deildinni hefst á
morgun með leik Vals og Víkings en
Val er spáð Íslandsmeistaratitlinum
líkt og í fyrra. »55
Eyjamenn og Víkingar
þurfa aftur að afsanna
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Sópransöngkonurnar Heiðdís
Hanna Sigurðardóttir og Sólveig
Sigurðardóttir, Guðrún Dalía Sal-
ómonsdóttir píanóleikari og Grímur
Helgason klarínettuleikari flytja
tónlist tengda vorinu og austurrísku
ölpunum á hádegistónleikum í Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, sum-
ardaginn fyrsta, kl. 12. Á efnis-
skránni eru verk eftir Strauss,
Rossini og
kammerverkið
Der Hirt auf
dem Felsen
eftir Schubert.
Tónleikarnir
eru hluti af
tónleika-
röðinni Á
ljúfum
nótum.
Tónlist tengd vorinu í
Fríkirkjunni í hádeginu
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Haninn á Húsatóftum er árgali á
Skeiðunum. Nú í lok apíl er orðið
bjart um klukkan fimm á morgnana
og um það leyti fer hinn skrautlegi
fugl á stjá með sitt gaggalagú. Gef-
ur tóninn fyrir daginn í þessari
blómlegu byggð sem ekið er um
þegar leiðin liggur í uppsveitir Ár-
nessýslu. Búskapur á þessum slóð-
um er með fjölbreyttu sniði.
Félagshyggjufólk
„Við á þessu heimili köllum okkur
H-bændur,“ segir Valgerður Auð-
unsdóttir á Húsatóftum I. Þau Val-
gerður og Guðjón Vigfússon eig-
inmaður hennar, sem bæði eru fædd
og uppalin á Skeiðunum, voru lengi
með kúabú, en misstu bæði skepnur
og hús í eldsvoða fyrir þrettán ár-
um. Sneru sér þá alfarið að öðru
sem allt byrjar á H, það er hun-
angsframleiðslu, hrossabúskap, hey-
sölu og hænsnarækt. Eggin
streyma endalaust frá púddunum
sem eru af landnámskyni – og sum
þeirra eru sett í útungunarvél sem
úr koma ungar sem eru seldir.
Náttúran á Skeiðum er gjöful. Á
bæjarhlaðinu á Húsatóftum er bor-
hola sem gefur fimm sekúndulítra
af 78 gráðu heitu vatni, sem veitt er
á um 20 bæi eða heimili í nágrenn-
inu. „Þeir sem nota veituna borga
fyrir dælinguna en greiða ekkert
fyrir vatnið. Að nýta auðlindina og
leggja veituna var á sínum tíma
sameiginlegt framtak íbúanna. Sam-
félagslegt verkefni ef svo má segja.
Við Skeiðamenn höfum jafnan stað-
ið saman að hagsmunamálum okkar
og erum félagshyggjufólk, burtséð
frá stjórnmálum og flokkslínum.
Með samvinnu hefur okkur farnast
vel,“ segir Valgerður sem jafnan
hefur verið virk í öllu félagsstarfi.
Var lengi í forystu frjálsíþróttaráðs
Héraðssambandsins Skarphéðins og
var á síðasta ári gerð að heiðurs-
félaga í Frjálsíþróttasambandi Ís-
lands.
Skýr vitundarvakning
„Í búskapnum reynum við að nýta
allt sem til fellur. Nálgumst að vera
sjálfbær en fyrir öllu slíku finn ég
að er nú mjög skýr vitundarvakning
í íslenskum landbúnaði. Mér finnst
líka gaman að finna að unga fólkið
héðan af Skeiðum, komið sjálft með
börn, er í talsverðum mæli að snúa
aftur heim í sveitina sína og ætlar
að skapa hér sína framtíð,“ segir
Valgerður.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveitalíf Valgerður Auðunsdóttir með litríkan hana af landnámskyni; morgunhressan fugl sem vekur allt til lífsins.
Hanagal á Húsatóftum
Nálgast sjálf-
bærni í sveit á
Suðurlandi
Náttúrubarn Guðjón bóndi með úr-
komumæli og dæluskúr í baksýn.
MSkeiðin » 22-23