Stefnan - 01.04.1923, Page 17
STEFNAN
semi, því þá lærum vjer að hagnýta
okkur þann auð eða þau rjettindi, er
okkur hefir verið trúað fyrir. þessi
auður er tíminn.
Vjer verðum að unna föðurlandi
voru og tungu, því þá fyrst getum
vjer unnið með hreinni gleði í hag-
inn fyrir börn vor, þá fyrst getum
vjer gengið með þeirri vissu til
vinnu, að störf barnanna verði dun-
andi hjartsláttur framtíðarinnar, og
vjer verðum í striti og þunga dags-
ins að halda fána vorum jafnhrein-
um og þá, er okkur var trúað fyrir
honum.
f efri deild Alþingis fjellu þau orð
ekki alls fyrir löngu, að landið hefði
þörf á að spara, það væri illa stætt,
— en iandinu er ekki síður þörf á
góðum og ráðvöndum leiðtogum.
Fáninn.
[Ur ræðu próí. Guðm. Finnbog-asonar við fánahvöt stúdentaféiag'sins i Reykjavik,
29. nóv. 1906.
— — Hver, sem sjer þjóðfána, er
undir eins mintur á þjóðina, sem
hann táknar. Hann finnur, að þessi
fáni hefir boð að bera, ólíkt hverjum
öðrum fána.
Fáninn er sem voldug rún, er býr
yfir huldu og ómælanlegu afli. Bak
v við fánann hillir undir heila þjóð. Sú
þjóð á sína sögu, sitt eðli, sitt mark-
mið og sínar vonir. í sögu mannkyns-
, ins á hún sinn sjerstaka þátt. Hún
hefir yrkt sjerstakt land, skapað sín-
ar borgir, mannvirki, listaverk. Verk
hennar, góð eða ill, hafa átt sinn þátt
í þeim kjörum, sem mannkynið á við
að búa.
Útlendingurinn, sem sjer fánann,
minnist alls þessa ljóst eða óljóst,
eftir því sem þekking hans nær langt
eða skamt. því fáninn er sýnilegt
tákn þjóðarinnar, um hann þyrpast
endurminningarnar um þjóðina.
Ósj áflrátt vekur hann velvild og virð-
ingu eða óvild og lítilsvirðinu, eftir
ástæðum, hvenær sem hann kemur
meðal erlendra þjóða.
Með fánanum fer orðstír þjóðar-
innar um heiminn, minnir á sjálf-
stæði hennar og þann þátt, sem hún
á í sögu og framtíðarhorfum mann-
kynsins.
þetta eru áhrif fánans út á við.
Og þau eru mikilsverð. Engri þjóð
má á sama standa, hvort hennar er
getið að litlu eða engu meðal annara
þjóða. Sjálfstraustið og virðingin
fyrir sjálfum sjer heimtar viður-
kenningu annara, og þverrar, þegar