Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 6
Grundvöllur málsins varðar meðal annars meint vanhæfi Árna Pálssonar eins dómara Hæstaréttar 2.212 vegabréf í apríl 2019. NÝR RAM 3500 UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI NÝTT GLÆSILEGT ÚTLIT. NÝJAR ÚTFÆRSLUR OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI. EIGUM TIL Í CREW CAB, BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR TIL AFGREIÐSLU STRAX. MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM EINNIG. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.987.745 KR. ÁN VSK. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is CREW CAB Au ka bú na ðu r á m yn d 35 ” d ek k Í umfjöllun um uppbyggingu á Bláfjallasvæðinu í gær kom fram að Veitur ohf. hefðu sent inn umsögn vegna málsins. Hið rétta er að Veitur sendu inn umsögn vegna breytinga á deiliskipulagi Bláfjallasvæðis í júlí 2018 þar sem fyrirtækið lýsti áhyggjum sínum af uppbyggingu og aukinni umferð sem henni fylgir áður en ráðist hefur verið í nauðsynlegar aðgerðir eins og lagfæringu Bláfjallavegar. LEIÐRÉTTING DÓMSMÁL Dómur verður kveðinn upp í Mannréttindadómstól Evr- ópu næsta þriðjudag í máli Sigurðar Einarssonar, Hreiðars Más Sigurðar- sonar, Ólafs Ólafssonar og Magnúsar Guðmundssonar gegn Íslandi. Málið varðar meðferð Al Thani-málsins fyrir íslenskum dómstólum þar sem mennirnir voru meðal annars dæmdir fyrir markaðsmisnotkun. Málið varðar meint brot gegn 6. gr. Mannréttindasáttmálans um rétt- láta málsmeðferð fyrir óvilhöllum dómstól. Grundvöllur málsins varðar meðal annars meint vanhæfi Árna Pálssonar, eins dómara Hæstaréttar, sem felldi dóm á Al Thani-málið en eiginkona hans vann hjá Fjármála- eftirlitinu á sama tíma og Kaupþing var til rannsóknar hjá embættinu. Kærendur telja einnig brotið á rétti þeirra til réttlátrar málsmeðferðar með vísan í takmörkun á aðgangi að málsgögnum, skömmum tíma til undirbúnings málsvarnar sinnar, hindrun á rétti til að leiða fram vitni sér til varnar, meðal annars þá Al Thani og sjeikinn Sultan. Eins og áður hefur verið greint frá hefur efri deild dómsins samþykkt nýverið að taka mál tveggja lög- manna sem sögðu sig frá verjenda- störfum í Al Thani-málinu. Þeir telja öll réttindi sáttmálans sem sakborningum í refsimálum eru tryggð hafa verið brotin þegar þeim var gerð réttarfarssekt án þess að fá tækifæri til að bera hönd fyrir höfuð sér. Réttarfarssektin hafi verið það há að um refsingu sé að ræða sam- kvæmt sáttmálanum. Munnlegur málflutningur verður í þeirra máli í október. – aá Niðurstaða Mannréttindadómstólsins í Al Thani-máli í næstu viku LANDBÚNAÐUR Ísland ætlar að vera í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og fyrst ríkja til að banna dreifingu á matvælum með sýklalyfjaónæmum bakteríum. Boðað var til blaðamannafundar í gær með stuttum fyrirvara. Frum- varp landbúnaðarráðherra sem heimilar innflutning á fersku kjöti var afgreitt úr atvinnuveganefnd á þriðjudagskvöldið. Lagði nefndin til að gildistöku verði frestað um tvo mánuði, eða þangað til í nóvember til að meiri tími geti farið í að efla eftirlit með innflutningi. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, f u llt r ú i Samf ylk ingar innar í nefndinni, segir að mikil áhersla hafi verið lögð á að ef la varnir gagnvart sýklalyfjaónæmum bakt- eríum. „Þarna erum við að tryggja matvælaöryggi en á sama tíma að tryggja hagsmuni neytenda. Við stöndum við okkar skuldbinding- ar varðandi innf lutninginn sem er mikilvægt, en það verður undir ströngu eftirliti sem eru auðvitað ekki síður hagsmunir neytenda.” Grunninn að stefnumörkun ríkisstjórnarinnar má rekja aftur til skýrslu stýrihóps sem kom út árið 2017. Meðal tillagnanna er að mynda teymi fimm sérfræðinga sem helgar sig vörnum gegn sýkla- lyfjaónæmi, setja á fót Sýklalyfja- ónæmissjóð og skipa starfshópa til að undirbúa viðbragðsáætlanir. Landbúnaðarráðherra og heil- brigðisráðherra munu verja 45 milljónum króna til að koma verk- efnunum af stað á þessu ári. Kristján Þór Júlíusson landbún- aðarráðherra segir samstöðu ríkja um stefnumörkunina, hún eigi sér lengri aðdraganda en frumvarpið en hafi verið rædd í tengslum við frumvarpið. „Þetta spilar að einhverju leyti saman, það hefur verið mikil umræða í kjölfar dóma EFTA-dóm- stólsins og Hæstaréttar að afnám frystiskyldunnar muni stórauka hættuna á sýklalyfjaónæmum bakt- eríum þrátt fyrir að sérfræðingar segi að það sé lítill ávinningur af því. Síðan hefur þessi umræða tekið á sig ýmsar myndir,“ segir Kristján. „Það liggur fyrir að þetta mál var leitt í lög árið 2009. Frá þeim tíma, samkvæmt dómum okkar eigin réttarkerfis, höfum við ekki klárað málið í samræmi við skuld- bindingar sem við sömdum um á sínum tíma. Nú lendir á núverandi stjórnvöldum að greiða úr þeim mistökum.“ Hann segir að hægt sé að líta svo á að Ísland verði öruggara með þessum breytingum í ljósi þess að frysting hefur lítil sem engin áhrif á bakteríurnar. „Þegar við verðum komin með tök á því að skima fyrir slíku og búa til áætlanir til að takast á við þetta verkefni. Staðreyndin er sú að við höfum verið óskipulögð í vinnubrögðum á undanförnum árum í þessum málum. Stefnu- mörkunin gefur stjórnvöldum, stofnunum og framleiðendum skýr skilaboð um með hvaða hætti við viljum takast í sameiningu á þessari heilsufarsvá.“ Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, for maður Bændasamtakanna, segir að þar á bæ ríki mikil ánægja. „Við lýsum ánægju okkar með að Ísland ætli sér að vera í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Þetta er mjög metnaðarfullt og í samræmi við það sem við og vísindamenn höfum ítrekað bent á,“ segir Guðrún. Varð- andi frumvarpið segir hún ótíma- bært að tjá sig um málið þar sem nefndarálitið liggi ekki fyrir. Miðf lokkurinn gaf út í vor að flokkurinn leggist gegn frumvarp- inu sem og þriðja orkupakkanum. Ráðherra hefur litlar áhyggjur af málþófi Miðf lokksmanna, hvort sem það er um þriðja orkupakk- ann eða innflutning á fersku kjöti. „Ég vona að umræðurnar verði mál- efnalegar, en það á ekki við í tilviki orkupakkans um þessar mundir,“ segir Kristján. arib@frettabladid.is Berjast við sýklalyfjaónæmi Stjórnin kynnti aðgerðir sem eiga að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á Keldum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Frumvarp landbúnaðar- ráðherra sem heimilar innflutning á fersku kjöti var afgreitt úr nefnd á þriðjudags- kvöld. Ríkisstjórnin hélt blaðamannafund í gær þar sem greint var frá aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Staðreyndin er sú að við höfum verið óskipulögð í vinnubrögðum á undanförnum árum í þessum málum. Kristján Þór Júlíusson, land- búnaðarráðherra K JARAMÁL Fulltrúar Ef lingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) áttu um klukkustundarlangan fund í gær þar sem meintar vanefndir á nýsam- þykktum kjarasamningum voru til umræðu. Forsvarsmenn SA og Eflingar vildu ekki tjá sig um efni fundarins. – sar Efling og SA funduðu í gær STJÓRNSÝSLA Alls voru 2.212 vega- bréf gefin út í apríl en það eru 37,1 prósenti færri vegabréf en í sama mánuði í fyrra. Þá voru þau 3.515. Helgi Harðarson, hjá Sýslumann- inum á höfuðborgarsvæðinu, segir eðlilega skýringu á fækkuninni. „Endingartími vegabréfa breyttist úr fimm árum í tíu svo nú er lítið af vegabréfum að renna út.“ Mikið hefur verið fjallað um langar raðir í vegabréfadeild Sýslu- mannsins á höfuðborgarsvæðinu síðastliðin ár en samkvæmt Helga er nú mun rólegra yfir. „Fólk reiknar með því að þurfa að bíða hérna heil- lengi en svo er kannski bara engin röð,“ segir Helgi. – bdj Færri sækja um vegabréf 3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 1 -F 7 0 0 2 3 2 1 -F 5 C 4 2 3 2 1 -F 4 8 8 2 3 2 1 -F 3 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.