Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 12
í fæðu. Einnig hefur plantan verið
notuð í lækningaskyni og sem fæðu-
bótarefni.
Það eru því margar vísbendingar
víða í heiminum sem benda til þess
að hampplantan hafi verið notuð
í ýmsum daglegum tilgangi hér á
árum áður.
Í dag er hún hins vegar næstum
ekkert nýtt af manninum. En hvers
vegna?
Janne Heimonen, upplýsinga-
fulltrúi Kannaway, fyrirtækis
sem sérhæfir sig í vörum úr hamp-
plöntunni, var staddur á landinu á
dögunum til að ræða við alþingis-
menn um kosti plöntunnar. Fyrir
um ári komst hann sjálfur í kynni
við hampinn í fyrsta sinn en þá var
lítil sem engin umfjöllun um hana
í fjölmiðlum. Síðan þá hefur mikið
vatn runnið til sjávar.
„Fyrir um 18 mánuðum vissi ég
ekkert um hamp. Mér fannst þetta
virkilega áhugaverð afurð og ég
féll fyrir plöntunni og eiginleikum
hennar. Plantan hefur í raun verið
Ha m p p l a n t a n hefur verið notuð í ýmsum tilgangi af manninum í gegnum söguna. Hampplantan er
fyrsta plantan sem vitað er til að
hafa verið ræktuð sérstaklega af
mönnum. Plantan er einnig sögð
fyrsta plantan sem var notuð til að
breyta í nýtanlegar trefjar fyrir um
10.000 árum.
Plantan var notuð til að framleiða
ýmsar atvinnu- og iðnaðarvörur.
Trefjar voru nýttar í reipi, ýmsar
vefnaðarvörur, fatnað, pappír, líf-
ræn efni og svo mætti lengi telja. Þá
hefur plantan einnig verið notuð
til að búa til einangrun í hús og sem
lífeldsneyti.
Hampsegl og -reipi f luttu evr-
ópskir landnemar til Ameríku í
hundruð ára eða fram að tilkomu
gufuskipanna snemma á nítjándu
öld.
Hampur var notaður sem skipti-
mynt í kringum 1630 og fram undir
1800 og einnig var í boði að borga
skatta með kannabishampi í yfir
200 ár.
Bílaframleiðendur á borð við
Henry Ford framleiddu bifreiðar úr
hampplasti í kringum 1941. Fyrsta
bílamódel Ford, Model T, var knúið
áfram á hampeldsneyti. Bíllinn
sjálfur var búinn til að mestu úr
hampplasti sem er tíu sinnum sterk-
ara en stál.
Á stríðsárunum var hampur not-
aður í fatnað, einkennisbúninga
hermanna, skó, skipasmíði, fall-
hlífar, ferðatöskur og fleira.
Þegar basttrefjum í plöntunni
er blandað saman við aðrar trefjar
líkt og hör, bómull eða silki, verða
til efni fyrir fatnað og ýmiss konar
húsbúnað. Fundist hafa ýmsar mat-
reiðsluuppskriftir úr gömlum mat-
reiðslubókum frá Ítalíu, Svíþjóð
og Þýskalandi sem benda til þess
að plantan hafi verið mikið notuð
Plantan hefur í
raun verið tekin frá
okkur, en við notuðum
hana mikið hér áður fyrr.
Janne Heimonen,
upplýsingafulltrúi
Kannaway
20%
eða meira
magn af CBD.
10%
eða meira
magn af CBD.
0,3%
eða minna
magn af THC.
20%
eða meira
magn af THC.
THC
Tetrahydrocannabinol
CH
³
CH
³
CH
³ CH
³O
OH
CH
³
CH
³
CH
³CH² HO
OH CBD
Cannabidiol
Er hamp-
plantan besta
nytjajurt
plánetunnar?
Plantan var nýtt á margvíslegan hátt fyrir mörg-
um árum og var hluti af fæðukeðju mannsins.
Í dag er hún nánast horfin frá okkur. Þeir sem
vilja neyta plöntunnar þurfa að fara krókaleiðir
til að nálgast hamp-vörur.
Munurinn á hampi og marijúana
Sá misskilningur ríkir að hamp
plantan sé notuð í þeim tilgangi
að fara í vímu. Það er ekki rétt.
Kannabis hefur nokkra undir
flokka, þar á meðal eru hampur
og marijúana.
Virka efnið í marijúana sem
framkallar vímu nefnist THC
eða tetrahydrocannabinol og er
það að finna í töluverðu magni í
plöntunni. Í hampinum er efnið í
gríðarlega litlum mæli eða mest
0,3% og búið er að ná að einangra
efnið THC og aðskilja það frá
plöntunni í mörgum tilfellum.
CBD er annað efni sem finnst í
plöntunni. Vísindamenn hafa að
undanförnu rannsakað efnið og
telja að þegar CBDvörur eru inn
byrtar geti það hjálpað líkam
anum, bæði í tengslum við verki
og einnig bætt andlegan líðan.
CBD tengist stöðum í heilanum
og ónæmiskerfinu. CBD bindur
sig við mólikúlin og vinnur með
endocannabinoidkerfinu sem
hjálpar taugakerfinu að halda
fullkomnu jafnvægi. Þetta ferli
með CBD skapar náttúruleg
bólgueyðandi verkjalyf. Þannig
geta einstaklingar með langvar
andi verki orðið fyrir jákvæðum
áhrifum af notkun CBD án þess
þó að finna fyrir nokkurs konar
vímueinkennum líkt og koma
fram við notkun marijúana.
Kannabis
Nokkrar tegundir
tilheyra ættflokki
kannabis. Hampur
og maríjúana eru
tvær þeirra.
Hampur Marijúana
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
Afurð hampsins
Fræ Stöngull
Olía
n Matur
n Snyrtivörur
n Eldsneyti
n Málning
n Sleipiefni
Fræblóm
n Dýrafóður
n Prótín
n Glútenlaust
hveiti
n Bjór
Trefjar
n Pappír
n Textíll
n Reipi
n Strigi
n Teppi
n Bílavarahlutir
Kjarni
n Byggingar
n Einangrun
n Trébretti
n Gifsi
tekin frá okkur, en við notuðum
hana mikið hér áður fyrr,“ segir
Janne.
„Hampur er elsta planta sem
maðurinn hefur ræktað og notað í
gegnum tíðina. Hún hvarf úr iðnað-
arnotkun fyrir um 90 árum, þegar
meðal annars plast kom í staðinn
og önnur efni. Hampplantan hefur
til að mynda verið notuð mikið til
að endurnýja og hreinsa upp jarð-
veg í ýmsum löndum eftir stríð og
sérstaklega eftir notkun efnavopna.
Plantan var eitt sinn hluti af fæðu-
keðju okkar en er það ekki lengur.
Við erum að safna alls konar sögu-
legum upplýsingum um plöntuna
til að sýna fram á að hún á rétt á að
verða hluti af fæðukeðjunni á ný.“
Hann segir það mikið tækifæri
fyrir landbúnað að rækta hamp-
plöntuna í því skyni að nota hana
í atvinnu- og iðnaðarvörur, sem
fæðubótarefni og í ýmislegt annað
sem tengist daglegu lífi.
„Mörg lönd eru farin að líta hýru
auga til hampplöntunnar. Plantan
er í raun arfi, hún er afskaplega
sterk, vex hratt og hægt að nýta á
ótrúlega fjölbreyttan hátt. Kanad-
ísk fyrirtæki eru að fjárfesta í mörgu
sem tengist plöntunni og fleiri lönd
á borð við Rússland, Tyrkland og
Úkraínu,“ segir Janne.
„Það var ekki dýrt að nýta plönt-
una í þá daga en það er kannski
dýrt að byrja á því núna enda ekki
til vélar lengur sem vinna úr plönt-
unni líkt og bómull og annað. En til
lengri tíma er það hagstætt. Þetta er
umhverfisvæn lausn.“
Vissir þú að ...
n hampfræ og hampfræolía, sem
flokkast sem ofurfæða kemur
hvort tveggja úr hampplönt
unni?
n vísindamenn hafa fundið
cann abinoid (CBD) í móður
mjólkinni?
n hampur getur hreinsað loftið
og endurnýjað ónýtan jarðveg?
n hampfræ eru næringarríkari en
hörfræ og chiafræ?
n cannabinoid (CBD) er aðeins
eitt efni af um 85 innihalds
efnum í kannabisplöntum?
n hampur getur komið í staðinn
fyrir plast, trefjaplast og önnur
svipuð efni?
n eitt hampfræ inniheldur dag
skammt af prótíni?
n CBD er ekki vímugjafi heldur
hefur efnið læknandi áhrif á
líkamann?
TILVERAN
3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
1
-F
2
1
0
2
3
2
1
-F
0
D
4
2
3
2
1
-E
F
9
8
2
3
2
1
-E
E
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K