Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 19
Þorvaldur Gylfason Í DAG Reykjavík – Nú er hún loksins komin fyrir augu almenn-ings skýrslan sem Seðlabanki Íslands tók sér tíu og hálft ár til að skila um lánveitingu bankans til Kaupþings 6. október 2008. Tíma- setningin er söguleg. Hafi lánveit- ingin varðað við lög fyrndist meint sök 6. október 2018 þar eð málið var ekki sett í rannsókn. Bankaráði Seðlabankans ber skv. lögum að hafa eftirlit með því að bankinn starfi í samræmi við lög. Bankaráðinu bar því að biðja um opinbera rannsókn á Kaupþingsláninu. Bankaráðið gerði það ekki þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir. Fundargerðum ráðsins er haldið leyndum. Engar upplýsingar … Skýrsla Seðlabankans um Kaup- þingslánið er um 50 bls. að lengd en aðeins fimm síðum er varið í kjarna málsins, sjálfa lánveitinguna. Megin- efni skýrslunnar er sjálfsvörn bank- ans gegn vafasömum aðfinnslum í þá veru að það sé nýrri stjórn bank- ans eftir hrun að kenna að veðið að baki láninu dugði ekki nema fyrir endurheimt fjárins til hálfs. Í skýrslunni segir (bls. 8 og 10): „Í Seðlabankanum finnast engin gögn sem túlka má sem lánsbeiðni frá Kaupþingi, þar sem fram koma óskir um lánsfjárhæð, lánstíma og önnur lánskjör ásamt upplýsingum um það hvernig nýta ætti lánsféð ... Ekki var … gerð skrifleg bankastjórn- arsamþykkt um lánveitinguna. … Til stóð að ganga frá lánssamningi í beinu framhaldi af undirritun veð- yfirlýsingarinnar en vegna þeirrar atburðarásar sem hófst með setn- ingu neyðarlaganna síðar þennan sama dag varð aldrei af því. … Af hálfu Seðlabankans voru Kaupþingi engin skilyrði sett fyrir ráðstöfun lánsfjárhæðarinnar. ... Í Seðlabank- anum var engar upplýsingar að finna um ráðstöfun lánsfjárins.“ Og bankastjórinn fv. heyrist segja í símann: „Ég býst við því að við fáum ekki þessa peninga til baka.“ „Engin lög voru brotin,“ segir nv. bankastjóri um málið nú. Betur hefði farið á að láta dóm- stóla skera úr um þann þátt málsins frekar en eftirmann meints sak- bornings. … og ekkert Rússagull Lánið til Kaupþings nam 500 millj- ónum evra. Daginn eftir, 7. október 2008, birti Seðlabankinn svohljóð- andi frétt: „Sendiherra Rússlands á Íslandi, Victor I. Tatarintsev, til- kynnti formanni bankastjórnar Seðlabankans í morgun að staðfest hefði verið að Rússland myndi veita Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð 4 milljarðar evra. … Putin forsætisráð- herra Rússlands hefur staðfest þessa ákvörðun.“ Af þessu varð þó ekki. Í skýrslu Seðlabankans kemur ekkert nýtt fram um ráðstöfun lánsfjárins. Fjölmiðlar og dómstólar höfðu áður upplýst að sama dag og Seðlabankinn lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra rann þriðjungur fjár- ins beint til Tortólu. Nánar tiltekið veitti Kaupþing félagi í hlutaeigu eins eigenda bankans lán að upphæð 171 milljón evra og veitti daginn eftir tvö önnur lán, samtals 50 milljónir evra, til tveggja félaga í hliðstæðri eigu (síðara málið er enn fyrir dóm- stólum). Ekki verður séð að Kaupþing hafi þurft að veita félögum eigenda sinna þessi lán í boði Seðlabankans til að halda velli enda féll Kaupþing þrem dögum síðar. Ekki verður heldur séð Engin skilyrði, engin gögn að Seðlabankinn telji neitt athuga- vert við þessar lánveitingar eða annan mokstur út úr bönkunum í miðju hruni. Seðlabankinn á einnig eftir að svara því hvers vegna hann hefur vanrækt að heimta uppruna- vottorð af þeim sem hafa flutt fé til Íslands á vildarkjörum eftir hrun. Seðlabankinn og FME Sinnuleysi Seðlabankans frammi fyrir lögbrotum í bankakerfinu er áhyggjuefni m.a. vegna þess að ítrekaðar tilraunir bankans til að sölsa undir sig Fjármálaeftirlitið virðast nú vera í þann veginn að takast. Hefði FME sent nær 80 mál til sérstaks saksóknara eftir hrun hefði eftirlitið verið deild í Seðla- bankanum? Ekki virðist það líklegt. Væntanlegri innlimun FME í Seðla- bankann virðist m.a. ætlað að koma allri meðvirkni með brokkgengum bankamönnum fyrir á einum örugg- um stað. Sinnuleysið gagnvart lögbrotum snertir Seðlabankann sjálfan. Einn hrunbankastjóranna þriggja sem rannsóknarnefnd Alþingis taldi hafa sýnt af sér vanrækslu í skiln- ingi laga er kominn aftur til starfa í bankanum. Hátt settur starfsmaður bankans viðurkenndi fyrir sérstök- um saksóknara 2012 að hafa rofið trúnað 2008. Brotið var talið hafa fyrnzt 2010. Hinn brotlegi virðist ekki hafa fengið meira tiltal innan bankans en svo að hann er nú meðal umsækjenda um stöðu seðlabanka- stjóra. Fróðlegt verður að sjá hvernig hæfnisnefnd fjallar um umsókn hans og annarra. Maður veit aldrei … Fróðlegt verður einnig að sjá hvernig forsætisráðherra fer með umsagnir hæfnisnefndarinnar. Rifjast nú upp fleyg ummæli þv. ráðherra um prýðilegan umsækj- anda um dómarastarf í Hæstarétti: „Nei, hann gengur ekki, maður veit aldrei hvar maður hefur hann.“ HVER ER ÞÍN UPPÁHALDS FISKISÚPA? Á LAUGARDAG FRÁ KL. 13.00 OG Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST MUNU EFTIRFARANDI VEITINGAHÚS BJÓÐA UPP Á FISKISÚPUSMAKK Slippbarinn - Marina Bryggan Brugghús Lamb Street Food Kjötkompaní Messinn Bergsson RE La Primavera 1 2 3 4 5 6 7 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. Kokkasigling frá Hörpu að Sjóminjasafninu á laugardag kl. 12:00 og haldið í skrúðgöngu að Grandabryggu. Skoppa og Skrítla og Maxímús Músíkús leiða skrúðgönguna á sunnudag á Hátíð hafsins. Mæting við Hörpu kl. 12:30 og við göngum saman niður á Grandagarð. HÆGT ER AÐ FINNA DAGSKRÁNA Í HEILD SINNI Á HATIDHAFSINS.IS Bátastrætó ferjar gesti milli Hörpu og Granda á sunnudaginn 2. júní. Frá Hörpu til Granda: 13:00, 14:00, 15:00, 16:00 Frá Granda til Hörpu: 13:30, 14:30. 15:30, 16:30Frítt fyrir alla! Sjómannadagsráð, Faxaflóahafnir og HB Grandi bjóða alla velkomna á Hátíð Hafsins um helgina. Hátíðin samanstendur af Hafnardeginum, laugardag og Sjómannadeginum, sunnudag.1.-2. JÚNÍ 2019 ÚR S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 3 0 . M A Í 2 0 1 9 3 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 2 1 -E 8 3 0 2 3 2 1 -E 6 F 4 2 3 2 1 -E 5 B 8 2 3 2 1 -E 4 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.