Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 34
Það er mikil vakn-
ing að eiga sér stað
í loftslagsmálum, eins og
við sjáum til dæmis í
loftslagsmótmælum
ungs fólks á Austurvelli.
Rannsóknir sýna að
vinnsla við 100 g af
fiski losar út jafnmikið
af gróðurhúsaloftegund-
um og 100 g af svína-
kjöti. Langmesta losunin
kemur þó frá nautgrip-
um og þrisvar sinnum
meiri sé miðað við fisk
og svín.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þótt fólk vilji ekki sleppa kjöti væri gott mál að auka græn-metið á diskinum á kostnað
þess. Rannsóknir hafa sýnt að
losun frá matvælaiðnaðinum
gæti aukist um 80% til ársins 2050
ef ekki verður tekið í taumana.
Meira grænmetisát í heiminum
gæti hjálpað til í baráttunni gegn
loftslagsbreytingum um leið og
við minnkum hættuna á því að fá
sykursýki 2.
Rannsóknin er nokkurra ára
gömul og það hafa þegar orðið
nokkrar breytingar í mataræði,
f leiri aðhyllast vegan eða græn-
kerafæði. Einnig eru matarkúrar
eins og ketó orðnir vinsælir. Í ketó
borðar fólk mikið grænmeti en
einnig mikið kjöt.
Vísindamenn við háskólann í
Minnesota í Bandaríkjum segja
að fólk ætti helst að horfa til
þriggja tegunda mataræðis, það
er grænkera, grænkera með fiski
og Miðjarðarhafsmataræðis. Gerð
var rannsókn í 100 löndum víða
um heim með tilliti til umhverfis-
sjónarmiða og áhættu á sykursýki
2. Niðurstöður sýndu að áhættan
minnkaði mikið með grænkera-
fæði en þeir sem neyttu þannig
fæðu voru í 42% minni hættu á að
fá sykursýki 2 en af venjulegu fæði.
Grænkerafæði með fiski minnkaði
áhættuna um 25% og Miðjarðar-
hafsfæði um 18%.
Allar þessar fæðutegundir drógu
úr hættunni á hjarta- og æðasjúk-
dómum um 20-25% og 8-12% á
krabbameini, að því er vísinda-
mennirnir greindu frá en í því
síðastnefnda kom hópurinn sem
borðar grænmeti og fisk best út.
Segja má að grænkerar séu betur
staddir en aðrir þegar kemur að
sykursýki 2 en fiskneytendur eru
í minni áhættu á að fá hjarta- og
æðasjúkdóma. Vissulega getur
fólk borðað kjöt án þess að missa
heilsuna, einungis er verið að
benda á leiðir sem eru bæði góðar
fyrir umhverfið og okkur sjálf.
Rannsóknir sýna að vinnsla við
100 g af fiski losar út jafnmikið
af gróðurhúsaloftegundum og
vinnsla við 100 g af svínakjöti.
Langmesta losunin kemur þó frá
nautgripum og er þrisvar sinnum
meiri sé miðað við fisk og svín.
Fólki í heiminum fjölgar um 80
milljónir á ári. Kjötát verður því
meira og meira um leið og við
losum meira af gróðurhúsaloft-
tegundum út í andrúmsloftið.
Matvöruframleiðsla þarf mikla
orku; að henni koma traktorar og
aðrar vinnuvélar, f lutningatæki
á vegum, sjó og lofti auk þess sem
við þurfum rafmagn fyrir versl-
anir og heimilistækin. Þá er ótalin
umbúðavinnsla og áburðarverk-
smiðjur. Notkun áburðar skapar
köfnunarefni í jarðvegi sem leiðir
til losunar nítróoxíðs og þarmagas
frá dýrum inniheldur metan.
Eftir því sem segir á vef
Umhverfisstofnunar var mesta
heildarlosun árið 2017 án alþjóða-
flugs og alþjóðasiglinga frá iðnað-
arferlum, næstmest frá orku, síðan
landbúnaði en minnsta losunin
frá úrgangi. Frá árinu 1990 til 2017
hefur hlutfall losunar frá iðnaðar-
ferlum aukist úr 27% í 43%, hlutfall
losunar frá orku hefur minnkað úr
52% í 40% á sama tímabili.
Nánar er hægt að skoða töfluna á
heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Grænmeti er mjög gott fyrir
heilsuna en líka umhverfið
Grænmeti er ekki bara gott heldur fallegt líka. Hér er vegan matur sem lítur girnilega út.
Grænmetis-
fæði er ekki bara
heilsusamlegt
heldur einnig
gott fyrir um-
hverfið. Það leiðir
til minni losunar
gróðurhúsaloft-
tegunda en nokk-
ur önnur matvæli
gera. Auk þess
er minni hætta á
að grænkerar fái
sykursýki 2.
8 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RVISTVÆNN LÍFSSTÍLL
Markmið Kolviðar er að binda kolefni í skógar-vistkerfum til að draga úr
styrk koldíoxíðs í andrúmslofti.
Sjóðurinn fjármagnar gróðursetn-
ingu á trjám og gerir bæði fólki og
fyrirtækjum kleift að kolefnisjafna
útblástursáhrif sín.
Það er sannarlega þörf á
aðgerðum. „Ef maður flýgur til
dæmis þriggja tíma flug þá þyrfti
að setja niður fimm tré til þess að
kolefnisjafna það fram og til baka
og losna þannig við flugvisku-
bitið,“ segir Reynir Kristinsson,
stjórnarformaður Kolviðar. „Það
virðist líka þurfa um það bil eitt tré
fyrir hverja tuttugu hamborgara.
Það er mikil vakning að eiga sér
stað núna í loftslagsmálum, eins
og við sjáum til dæmis á loftslags-
mótmælum ungs fólks á Austur-
velli,“ segir Reynir. „Okkur finnst
mjög mikilvægt að benda fólki á
að það sé hægt að nýta skógrækt til
að stemma stigu við neikvæðum
loftslagsáhrifum, þó að við
eigum auðvitað fyrst að minnka
losunina. Það er um að gera að
leggja sitt af mörkum til að stuðla
að góðu andrúmslofti og hjálpa
náttúrunni.
Bjóða öllum að kolefnisjafna sig
Kolviður er sjóður sem var stofnaður af Skógræktarfélagi Íslands og Landvernd árið 2006. Kol-
viður jafnar kolefnislosun vegna brennslu jarðeldsneytis í akstri og flugi fyrir fólk og fyrirtæki.
Reynir segir að Kolviður vilji benda fólki á að það sé hægt að nýta skógrækt
til að stemma stigu við neikvæðum loftslagsáhrifum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það er samt þannig að þó að
þú setjir niður tré til að kolefnis-
binda tekur það tréð 60 ár að vinna
vinnuna,“ segir Reynir. „En þó að
þetta taki langan tíma byrjar þetta
strax að vinna gegn loftmengun.
Ísland var skógi vaxið við land-
nám og við viljum endurnýja þann
gróður, samtímis því að ráðast á
loftslagsvandann,“ segir Reynir.
„Nú í sumar er Kolviður að setja
niður 150 þúsund tré á Úlfljóts-
vatni til þess að kolefnisbinda
fyrir þá sem hafa óskað eftir því og
við vonumst til þess að geta klætt
Mosfellsheiðina með loftslagsskógi
í nánustu framtíð.“
Ýmis fyrirtæki hafa fengið
Kolvið í lið með sér. „Í síðustu viku
gerðum við samning við Bónus,
en við vinnum líka með IKEA,
Ölgerðinni, grænmetisframleið-
endum og um 60 öðrum aðilum,“
segir Reynir. „Við sjáum að ungir
stjórnendur eru sérlega áhuga-
samir um þetta og láta þetta skipta
sig máli.“
Á heimasíðu Kolviðar eru allar
nánari upplýsingar um starfsemi
sjóðsins og hvernig hægt að er að
kolefnisjafna útblástur sinn.
3
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
1
-D
9
6
0
2
3
2
1
-D
8
2
4
2
3
2
1
-D
6
E
8
2
3
2
1
-D
5
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K