Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 37
á heitt kaffi og kleinur. Ásamt
því ætla þær að gefa 15% afslátt
af áfyllingarvörum. Það virkar
þannig að fólk getur komið með
sín eigin ílát og fyllt á. Dæmi um
vörur sem seldar eru eftir vigt eru
grænsápa sem er góð í öll þrif en
sápan er umhverfisvæn og er fram-
leidd á Íslandi, uppþvottalögur,
f ljótandi handsápa, þvottaflögur
og tannkremstöflur. „Við viljum
auka vörur sem seldar eru eftir
vigt,“ segir Kristín Inga.
Þurfum að fara betur með
náttúruna
Megin hugmyndafræðin á bak við
verslunina er að gera fólki kleift í
auknum mæli að nálgast umhverf-
isvæna valkosti. Hingað til hefur
ekki verið mikið úrval til á Íslandi
en þetta er að aukast. „Við viljum
bjóða upp á vörur þannig að fólk
geti minnkað plastnotkun og
nálgast vörur sem eru umhverfis-
vænni, einnig fjölnota vörur sem
hægja á fólki. Við erum alltaf svo
mikið að drífa okkur og að grípa
hitt og þetta í búðum. Fókusinn er
að einfalda lífið og fara betur með
náttúruna í leiðinni.“
Vistvera býður upp á fjölbreytt
og mikið vöruúrval. „Við erum
með mikið af hreinlætisvörum,
fallegum heimilisvörum, blæð-
ingavörum og einnig mikið úrval
af ungbarnavörum eins og pela
og smekki úr umhverfisvænni
efnum,“ segir Kristín Inga. Þeirra
helsta markmið á næstunni er að
vinna í því að fá f leiri íslenskar
vörur til þeirra til að minnka
kolefnisfótsporið sem kemur með
flutningi á vörum erlendis frá.
Kristín Inga segir þær vinkon-
urnar vera afar ánægðar með
fyrsta árið. Viðbrögðin hafa verið
afar jákvæð og fólk er að verða
meira meðvitað um mikilvægi
þess að sinna umhverfinu betur
eins og t.d. með að minnka plast-
notkun.
„Fólk er áhugasamt um
umhverfisvænni lífsstíl, fólk er
duglegt að spyrja og það hefur
verið mjög gefandi að tala við fólk
í vinnunni um umhverfismál.“
Megin hugmynda-
fræðin á bak við
verslunina er að gera
fólki kleift í auknum
mæli að nálgast
umhverfisvæna kosti.
Þær Kristín Inga Arnardóttir, Salbjörg Rita Jónsdóttir, Jóhanna Gísladóttir og Elsa
Þórey Eysteinsdóttir eru nágrann-
ar úr Fossvoginum sem fannst
vanta verslun sem bauð upp á
umhverfisvænar vörur og lausnir.
„Við erum allar með mismunandi
bakgrunn, með mismunandi
menntun og í annarri vinnu. Þetta
er bara okkar ástríða og áhugamál.
Ein af okkur er grafískur hönn-
uður, ein er líffræðingur, ein er í
doktorsnámi í umhverfis-og auð-
lindafræði og svo er ég viðskipta-
fræðingur,“ segir Kristín Inga. Með
þeirra mismunandi bakgrunn ná
þær að sameina krafta sína og reka
verslunina með prýði. Þær stukku
á tækifærið þegar þær sáu að það
var laust pláss í Grímsbæ. „Það er
mjög gaman að vera með verslun
í hverfinu okkar, við kjósum að
kalla Grímsbæ litla krúttlega
mollið.“
Fagna fyrsta afmælinu
Næstkomandi laugardag fagna
þær eins árs afmæli verslunarinnar
og verða þær með ýmis tilboð
í gangi. Verslunin verður opin
frá 11.00-15.00. Þær verða með
kynningar á vörum, gefa prufur
af sjampóstykkjum og bjóða upp
Umhverfisvæn hverfisbúð
Fjórar nágrannakonur, sem allar hafa brennandi áhuga á umhverfismálum, reka verslunina
Vistvera í Grímsbæ. Næstkomandi laugardag halda þær upp á eins árs afmæli verslunarinnar.
Verslunin Vistvera er til húsa í Grímsbæ. Eigendur eru sammála um að gott sé að hafa svona verslun í hverfinu.
Vistvera býður upp á mikið úrval af hreinlætisvörum bæði fyrir líkamann og heimilið.
KYNNINGARBLAÐ 11 F I M MT U DAG U R 3 0 . M A Í 2 0 1 9 VISTVÆNN LÍFSSTÍLL
3
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
1
-F
B
F
0
2
3
2
1
-F
A
B
4
2
3
2
1
-F
9
7
8
2
3
2
1
-F
8
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K