Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 38
Tökum höndum saman – í þágu umhverfisins
Við vinnum stöðugt að því að bjóða vörur sem draga úr kolefnisspori, umhverfisvænar
og niðurbrjótanlegar vörur, framleiddar í sátt við náttúruna.
REKSTRARLAND verslun | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
P
ip
a
r\TB
W
A
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
12 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RVISTVÆNN LÍFSSTÍLL
Með vaxandi áherslu á umhverfisvænar lausnir þá eru þau í Rekstrar-
landi stöðugt að búa til ný efni
sem byggja á því að gera betur og
auka sjálfbærni. Dæmi um það eru
vörur úr sykurreyr, pálmalaufum
og maíssterkju. „Við trúum á að
umhverfi og þægindi fari hönd í
hönd. Þetta snýst um öryggi, okkar
endalausu skuldbindingu um gæði
og umhyggju fyrir umhverfinu.
Leiðandi úrval okkar af vistvænum
og niðurbrjótanlegum efnum og
fallegri hönnun uppfyllir kröfur um
notkun, gæði og verð,“ segir Hjalti
Þór Halldórsson, sölustjóri hjá
Rekstrarlandi.
„Þegar umræðan um minnkun
plasts er eins mikil og núna, þá er
mikilvægt að láta þá sem vilja láta
til sín taka og leggja sitt af mörkum
vita að það er mögulegt að halda
sína grillveislu, brúðkaup, eða sama
hvers konar samkomustund það
er þar sem einnota umbúðir eru
notaðar, að það er hægt að nota
umhverfisvænar vörur.“
Diskar, hnífapör og glös sem
brotna niður í náttúrunni er ein
leiðin til þess. „Ég hvet fólk og
fyrirtæki til þess að skoða aðeins
hvað það er að bjóða upp á í sinni
veislu,“ segir Hjalti Þór. „Veldu
annaðhvort vöru sem er endur-
vinnanleg, compostable, sem fer
þá með lífrænum úrgangi eða
niðurbrjótanlega vöru sem kallast
biodegradable. Næst þegar þú ætlar
að stökkva til og halda veislu og
sleppa við uppvaskið vertu þá viss
um að nota umhverfisvæna lausn,“
segir Hjalti Þór.
„Það er verið að bjóða upp á alls
konar vörur í dag sem taka langan
tíma að brotna niður í umhverf-
inu en veltum aðeins fyrir okkur
hvað við getum gert. Það tekur
kannski 45 sekúndur að framleiða
plast, sem oft er notað í 5 mínútur
og tekur 500 ár að brotna niður,“
útskýrir Hjalti Þór.
Hér eru dæmi um hráefni sem
Rekstrarland notar í sínar vörur.
Pappír
Pappír er af náttúrulegum upp-
runa og býr yfir þeirri getu að vera
fullkomlega niðurbrjótanlegur
og endurvinnanlegur. Pappír er
umhverfisvænt efni sem hefur
þann eiginleika að vera 100%
endurnýjanlegur, hann brotnar
fljótt niður vegna þess að trefjarnar
leysast auðveldlega í náttúrunni.
PLA
PLA er endurvinnanlegt hitaþolið
plastkennt efni og unnið úr endur-
nýjanlegum auðlindum. PLA-fram-
leiðsla byggist á plöntum svo sem
maíssterkju, hveiti, sykurreyr eða
rófum. Við bestu skilyrði, en PLA-
vörur fara öllu jafna með lífrænum
úrgangi, þá er PLA fært um algjört
niðurbrot án þess að skilja eftir sig
sýnilegar eða eitraðar leifar. PLA
þarf sérstaka meðferð við urðun og
má ekki blandast við plast í endur-
vinnslu.
Viður
Viður er umhverfisvænn vegna
þess að hann er af náttúrulegum
uppruna og niðurbrotið er algjört.
Tré eru CO2 hlutlaus og hafa þann
kost að koma úr 100% endurnýjan-
legum auðlindum.
Bagasse efni (sykurreyr)
Bagasse er hið fullkomna
umhverfis væna val. Bagasse er
afgangsefni sem kemur við fram-
leiðslu sykurs. Þegar sykurinn
er skilinn frá er stilkurinn eftir.
Þetta efni er rifið og hreinsað og
úr verða bagasse trefjar. Þessar
trefjar geta verið notaðar til að búa
til ýmsar tegundir af vörum t.d.
diska og matarbakka sem henta vel
fyrir heita og kalda rétti sem og til
hitunar í örbylgjuofni. Bagasse er
100% niðurbrjótanlegt og með sér-
strakri urðun getur niðurbrot verið
algjört innan 30-90 daga. Að auki er
bagasse CO2 hlutlaust og kemur úr
100% endurnýjanlegum auðlindum.
Leirhúðun
Leirhúðun er þegar efri hliðin
af t.d. pappadisk er húðuð með
þunnu lagi af leir. Það er nátt-
úrulegt lag sem gerir yfirborð
hans svolítið sléttara. Pappír með
leirhúðun er niðurbrjótanlegur,
endurvinnanlegur og af náttúru-
legum uppruna.
Pálmalauf
Framleiðsla á afurðum gerðum
úr pálmalaufum er mjög ein-
föld og sjálf bær. Þegar laufin
falla sjálf af pálmatrénu er þeim
safnað saman, þau hreinsuð
og með notkun hita eru þau
pressuð í alls konar stærðir og
lögun. Með þessari tegund af
framleiðslu þá eru pálmalauf án
nokkurs konar aukaefna og að
fullu niðurbrjótanleg. Að auki
eru pálmalauf CO2 hlutlaus og
úr 100% endurnýjanlegum auð-
lindum.
Ef þú vilt kynnast eða óskar eftir
frekari upplýsingum um vörur
Rekstrarlands, kíktu þá við í
verslun þeirra að Vatnagörðum 10.
Umhverfisvænar einnota vörur
Rekstrarland hefur glæsilegt vöruúrval í umhverfisvænum, endurvinnanlegum og niður
brjótanlegum einnota vörum. Markmiðið er að draga úr umhverfisfótsporum fyrirtækisins.
Hjalti Þór Hall-
dórsson ásamt
Ólöfu Helga-
dóttur, verslunar-
stjóra Rekstrar-
lands.
3
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
2
-0
0
E
0
2
3
2
1
-F
F
A
4
2
3
2
1
-F
E
6
8
2
3
2
1
-F
D
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K