Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 26
Serena Williams hóf leik á opna franska meistaramót­inu síðasta mánudag. Margir voru spenntir að sjá klæðnað hennar þetta árið en í fyrra mætti hún í svörtum samfestingi, sem mörgum er í fersku minni, þar sem henni var líkt við ofurhetju. „Ég lifi oft í ímynduðum heimi, mig langaði alltaf að verða ofur­ hetja og gallinn lét mér líða eins og ég væri ofurhetja,“ sagði Willi­ ams í viðtali. Samfestingurinn var sérhannaður af Nike með það í huga að gæta að heilsu hennar, en gallinn átti að koma í veg fyrir að blóðtappar mynduðust þar sem Williams upplifði það í fæðingu dóttur sinnar. Franska tennis­ sambandið var ekki jafn hrifið af fatavali Williams eins og almenn­ ingur en þeim fannst hún ganga of langt og sagði Bernand Giudicelli, forseti sambandsins, að virða þyrfti leikinn og staðinn. Sam­ bandið gaf það út stuttu seinna að svona klæðnaður væri bannaður á næstu mótum hjá þeim. Þessi gagnrýni fór ekkert sérstaklega vel í stuðningsmenn Williams en Serena Williams fer sínar eigin leiðir Opna franska meistaramótið í tennis hófst síðastliðinn mánudag. Serena Williams lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og enn og aftur stal hún senunni með sérstöku fatavali. Serena Williams í samfestingnum fræga. Hér er Serena Williams að hita upp í jakkanum fyrir leik sinn á mánudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY Williams ásamt eiginmanni sínum, Alexis Ohanian, á brúðkaupsdaginn. Strigaskórnir eru frá Nike og voru þeir skreyttir Swarovski kristöllum. þeir voru á því máli að Giudicelli ætti ekki að vera að skipta sér af því hverju Williams klæðist í vinnuna. Stuttu eftir að franska sam­ bandið tilkynnti að bannað væri að klæðast fötum eins og sam­ festingnum mætti Williams á opna bandaríska meistaramótið í tjullpilsi og netsokkabuxum frá Nike. Dressið var sérhannað af Virgil Abloh, sem starfar sem listrænn stjórnandi Louis Vuitton. Þarna vildi Williams sýna kven­ leika sinn og styrk á sama tíma. Abloh var einstaklega ánægður með samstarfið og gaf það út að hann væri alltaf til í að hanna föt fyrir Williams. Eins og svo oft áður þá gaf Williams ekkert eftir í fatavali þetta árið en hún hóf leik síðasta mánudag í öðru sérhönnuðu dressi frá Virgil Abloh fyrir Nike. Dressið sem er með svörtu og hvítu grafísku mynstri saman­ stendur af stuttum toppi, stuttu pilsi, netsamfestingi og jakka. Hún hitaði upp í jakkanum sem líktist einhvers konar skikkju, en á jakkanum voru skýr skila­ boð. Á honum voru orðin móðir, meistari, drottning og gyðja rituð á frönsku. Líður best í strigaskóm Williams giftist manninum sínum árið 2017. Hún tók enga sénsa þegar kom að því að velja skó við brúðarkjólinn sinn, en hún klæddist Nike strigaskóm sem voru skreyttir með Swar­ ovski kristöllum: Þægindin í fyrirrúmi hjá tennisstjörnunni. Williams var einnig gestur í hinu glæsilega brúðkaupi Meghan Markle og Harry Bretaprins. Þar klæddist hún hælaskóm í athöfninni en þegar að veislunni kom skipti hún yfir í strigaskó frá Frogmore House, tilbúin í dans­ partí. Ásta Eir Árnadóttir astaeir@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 3 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 2 -0 F B 0 2 3 2 2 -0 E 7 4 2 3 2 2 -0 D 3 8 2 3 2 2 -0 B F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.