Fréttablaðið - 30.05.2019, Page 8

Fréttablaðið - 30.05.2019, Page 8
SÞ vilja Katalóna úr haldi Þegar þrír flokkar ákveða að starfa saman í anda afturhalds og íhaldssemi og krydda að auki með fordæmalítilli aukningu ríkisútgjalda á varhugaverðum stað í hag­ sveiflu þjóðarinnar – þá er ekki við góðu að búast. Hvaða skilaboð eru það til íslensks almennings að við mætum prúðbúin á fundi um allan heim, heimsækjum erlend fyrirmenni, bjóðum þeim til fundar við okkur hér á landi, en þegar kemur að skuldbindingum íslenska ríkisins innanlands sem erlendis þá hefjist hér fúkyrðaflaumur og vand­ lætingar um það hvað þetta sé allt ömurlegt og ekki til neins gagns? Við segjum gjarna að fólk eigi að leita sér hjálpar. Við segjum þetta sérstaklega þegar um geð heilbrigði er að ræða. En hvað mætir svo fólki sem virkilega reynir að fá hjálp? Ekkert annað en úrræða­ leysi. Það verða alltaf til stjórnmálamenn sem vilja nota óttann og búa þannig til ímyndaðan óvin til að beina óttanum sem þeir hafa sjálfir skapað í einhvern farveg. Þeir trúa því að ef við bara pökkum í vörn, stingum hausnum í sandinn og rétt lítum upp til að borða bara íslenskt, þá muni okkur farnast vel. Undanfarna mán­ uði hafa hneyksli og áfellisdómar dunið á Al­ þingi hver á eftir öðrum. Akstursgreiðslumálið, Klausturmálið, óviðeigandi hegðun þingmanna og óviðeigandi pólitísk afskipti af siðareglumálum. Síðasta haust sameinuðust Íslend­ ingar um það að krefjast afsagnar þingmanna sem höfðu uppi dólgslæti og montuðu sig af spillingar­ áformum. En mörgum mánuðum síðar hefur ekkert gerst – ekki annað en það að sú kona sem upplýsti um samtalið hefur verið úrskurðuð brotleg við persónu­ verndarlög. í dag í öllum Krónu verslunum Opið Uppstigningardag sjá nánar á kronan.is Mörgum tíðrætt um samstarf milli þjóða Loftslagsmál, afturhaldssemi og alþjóðasamstarf var meðal þess sem þing- menn ræddu í eldhúsdagsumræðum í gær, þegar þingvetur var gerður upp. Ímyndaður ótti, orkupakkinn, efnahagsmál og Klausturmálið bar líka á góma. Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar Anna Kolbrún Árnadóttir þingmaður Miðflokksins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins Halldóra Mogensen þingmaður Pírata Um allan heim stígur ungt fólk fram til að berjast fyrir framtíðinni. Framtíðinni sinni, sem það neitar að leyfa okkur sem eldri erum að stela frá sér. Þau mót­ mæla aðgerðaleysi stjórn­ valda. […] Loftslagsverk­ fallið beinist að aðgerðaleysi mínu. Það beinist að að­ gerðaleysi okkar allra sem sitjum hér í sal Alþingis. Það beinist að öllum kjörnum fulltrúum á öllum þingum og í öllum ríkisstjórnum heims. Andrés Ingi Jónsson þingmaður Vinstri grænna ELDHÚSDAGSUMRÆÐUR SPÁNN Gæsluvarðhald yfir þremur katalónskum sjálfstæðissinnum á Spáni, sem ákærðir eru fyrir upp- reisn, er gerræðislegt og því ætti að leysa þá úr haldi. Þetta er mat vinnuhóps Sameinuðu þjóðanna um gerræðislegar fangelsanir. The New York Times greindi frá í gær. Nýkjörnu þingmennirnir Oriol Junqueras og Jordi Sanchez og aðgerðasinninn Jordi Cuixart ættu að fá bætur fyrir fangelsunina og hún ætti að sæta rannsóknar á Spáni að mati hópsins. Þeir hafa allir verið í fangelsi í meira en ár og eru á meðal þeirra tólf sem réttað er yfir í hæstarétti í Madríd um þessar mundir vegna atburðarásar hausts- ins 2017 þegar Katalónar greiddu atkvæði um sjálfstæði. Vinnuhópurinn hefur ekki völd til þess að framfylgja ákvörðun sinni og er það því undir Spáni komið að ákveða framhaldið. - þea SKOTLAND Heimastjórn Skota hefur lagt fram frumvarp á skoska þing- inu er snýst um umgjörð mögu- legrar þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði frá Bretlandi. Frá þessu greindi Nicola Sturgeon, fyrsti ráð- herra heimastjórnarinnar, á Twitter í gær. Hún sagði frumvarpið til þess gert að leyfa Skotum að ráða eigin fram- tíð í stað þess að þurfa að sætta sig við útgöngu úr Evrópusambandinu. Meirihluti Skota lagðist gegn Brexit í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2016. Skotar greiddu síðast atkvæði um sjálfstæði árið 2014. Þá sögðu 55 prósent kjósenda nei en 45 pró- sent sögðu já. Könnun YouGov í lok apríl sýndi 49 prósenta stuðning við sjálfstæði, andstæðingar voru 51 prósent. – þea Sækja aftur í átt að sjálfstæði BRETLAND Boris Johnson, fyrrver- andi utanríkisráðherra Bretlands og leiðtogaefni Íhaldsf lokksins, var í gær skipað að mæta fyrir dóm vegna ummæla sem hann lét falla í aðdraganda Brexit-atkvæðagreiðsl- unnar. Johnson fullyrti þá að Bretar af hentu Evrópusambandinu 350 milljónir punda á viku. Vegna þessarar fullyrðingar er Johnson sakaður um vanrækslu í embætti. Lögmenn Johnsons segja að málið sé höfðað á pólitískum for- sendum. Óljóst er hvaða áhrif það hefur á stöðu hans í leiðtogakjöri f lokksins. Hann hefur hingað til mælst langvinsælastur. – þea Boris Johnson fer fyrir dóm Boris Johnson. Katalónskir fangar í Lledoners- fangelsinu. Sanchez og Junqueras lengst til vinstri, Cuixart þriðji frá hægri. NORDICPHOTOS/AFP Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í ræðustól í gær. Hún ræddi meðal annars stöðu öryrkja. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :5 4 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 2 -0 A C 0 2 3 2 2 -0 9 8 4 2 3 2 2 -0 8 4 8 2 3 2 2 -0 7 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.