Fréttablaðið - 30.05.2019, Síða 22
Það er mitt verkefni
sem skýrist með
tíma og æfingum að finna
besta liðið sem KR getur
teflt fram næsta vetur.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR
GOLF Atvinnukylfingurinn Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á
Opna bandaríska meistaramótinu
í golfi í dag, einu af fimm risa-
mótum ársins í Charleston, Suður-
Karólínu. Þetta er þriðja risamót
ársins af fimm og annað árið í röð
sem Ólafía Þórunn, sem leikur fyrir
hönd GR, tekur þátt í Opna banda-
ríska meistaramótinu eftir að hún
missti af niðurskurðinum í fyrra.
Alls er þetta sjöunda risamótið sem
Ólafía tekur þátt í.
Ólafía Þórunn tryggði sér þátt-
tökurétt á mótinu með því að sigra
á úrtökumóti í Kaliforníu á dög-
unum. Aðeins eitt sæti á mótinu
var í boði sem Ólafía tók með því að
leika hringina tvo á fimm höggum
undir pari.
Ólafía Þórunn er í næstsíðasta
ráshóp dagsins
og fer út um
hálf sjö í
kvöld að
íslenskum
t í m a .
Ólafía hefur
leik á tíundu holu
og er með Jiyu Jung
frá Suður-Kóreu og
á huga k yl f ing nu m
bandar íska Ginu
Kim í ráshóp.
M e ð g ó ð u m
árangri í mótinu
gæti Ólafía tryggt
sér þáttökurétt
á LPGA-mót a-
röðinni á seinni
hluta tímabils-
ins. – kpt
Ólafía hefur leik
á risamóti í dag
FÓTBOLTI Jón Þór Hauksson til-
kynnti í gær hvaða leikmenn hann
hefði valið fyrir æfingaleiki gegn
Finnlandi í júní sem eru síðustu
æfingaleikir liðsins áður en undan-
keppni Evrópumótsins 2021 hefst
í haust. Eftir að hafa tef lt fram
breyttu liði í síðustu æfingaleikjum
liðsins eru flestar af sterkustu leik-
mönnum Íslands komnar aftur
í hópinn, þar á meðal Guðbjörg
Gunnarsdóttir í markið.
Ekkert verður úr því að Rakel
Hönnudóttir leiki sinn 100. leik
fyrir kvennalandsliðið í næsta
mánuði og verður sá áfangi því að
bíða til haustsins. Jón Þór staðfesti
á blaðamannafundinum í gær að
Rakel, sem leikur með Reading, og
framherjinn Svava Rós Guðmunds-
dóttir, sem leikur með Kristianstad,
gætu ekki gefið kost á sér að þessu
sinni vegna meiðsla.
„Rakel og Svava Rós eru þær einu
sem gáfu ekki kost á sér í þetta
verkefni. Þær eru báðar að glíma
við smávægileg meiðsli,“ sagði Jón
Þór aðspurður út í stöðuna á leik-
mannahópnum í gær.
Fyrri leikurinn fer fram í Turku
þann 13. júní og sá síðari í Espoo 17.
júní. Ísland hefur mætt Finnlandi
sjö sinnum og hefur Ísland unnið
tvo, Finnar þrjá og tveimur leikjum
lokið með jafntefli.
„Finnar eru með sterkt lið. Anna
Signeul sem var áður með skoska
landsliðið er að stýra liðinu núna
og þær eru búnar að þétta raðirnar
og efla varnarleikinn.“
Alls eru tveir nýliðar í hópnum,
liðsfélagarnir úr Breiðablik, Áslaug
Munda Gunnlaugsdóttir og Karó-
lína Lea Vilhjálmsdóttir. – kpt
Fara með sterkan hóp í æfingaleikina gegn Finnum
Þjálfarateymi íslenska landsliðsins, Jón Þór og Ian Jeffs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KÖRFUBOLTI KR-ingar sem hafa
orðið Íslandsmeistarar síðustu sex
árin blésu í herlúðra í gær með því
að tilkynna komu þriggja afar öfl-
ugra leikmanna í leikmannahóp
liðsins fyrir sjöundu titilvörn sína í
röð. KR endurheimti þrjá leikmenn
sem ólust upp í Vesturbænum og
hafa allir spilað undir handleiðslu
Inga Þórs Steinþórssonar þjálfara
liðsins.
Matthías Örn Sigurðarson kemur
frá andstæðingum KR-liðsins í
rimmunni um Íslandsmeistara-
titilinn í vor, ÍR, eldri bróðir hans
Jakob Örn kemur frá sænska liðinu
Borås og Brynjar Þór Björnsson snýr
til baka eftir eins árs veru í Skaga-
firðinum.
Matthías Örn er að koma til baka
í Vesturbæinn eftir að yfirgefið her-
búðir KR 18 ára gamall árið 2013 en
hann varð Íslands- og bikarmeistari
með KR vorið 2011 en Matthías var
þá ungur að árum og í litlu hlutverki
í liðinu. Nú er honum ætlað stærra
hlutverk og að vera einn af lyklum
þess að Íslandsmeistaratitillinn
verði um kyrrt í KR-heimilinu.
„Þegar það varð ljóst að Jakob
væri að koma heim til þess að spila
með KR þá fannst mér rétti tíma-
punkturinn núna til þess að klæð-
ast KR-búningum aftur. Við bræð-
urnir höfum aldrei spilað saman
áður og okkur fannst við þurfa að
strika það út af listanum áður en
hann hættir. Það er svo líka bara
mikið tilhlökkunarefni að bætast
við þennan frábæra hóp leikmanna
og fara að berjast um þá titla sem í
boði eru með uppeldisfélaginu,“
segir Matthías Orri um vistaskiptin.
Dró Kristófer með sér í salinn
„Það er hins vegar á sama tíma mjög
erfitt að yfirgefa Breiðholtið þar
sem ég átti einstakt samband við
leikmenn, þá sem koma að liðinu
og stuðningsmenn liðsins. Sím-
tölin til þeirra sem stýra málum hjá
ÍR þar sem ég var að tilkynna þessa
ákvörðun mína voru mjög erfið.
Mér finnst ég hins vegar skilja við
ÍR á þeim stað þar sem það stór-
veldi á heima og ég held að þegar
fram í sækir muni þeir skilja þetta
og virða,“ segir hann enn fremur.
„Innan þessa leikmannahóps eru
margir leikmenn sem ég á langa
og innihaldsríka sögu með. Þar
kannski kemur fyrst upp í hugann
æskuvinur minn Kristófer Acox en
það vorum við pabbi minn [Sigurð-
ur Hjörleifsson] sem drógum hann
á fyrstu körfuboltaæfingarnar hans
og sáum til þess að hann hætti ekki.
Hann hafði engan áhuga á þessu
þegar hann var að byrja en ég held
að hann sjái ekki eftir þessu núna.
Það verður geggjað að spila með
honum aftur en við náðum mjög
vel saman í yngri f lokkunum í KR,“
segir þessi frábæri leikstjórnandi.
„Svo verður gaman að æfa og spila
aftur með leikmönnum á borð við
Brynjar Þór og Helga Má Magnús-
son. Þetta er hópur með blöndu af
reynslumiklum leikmönnum sem
eru stútfullir af hæfileikum og svo
ungum og gröðum körfubolta-
mönnum eins og mér sem hafa það
að markmiði að halda þessum eldri
á tánum með ferskleika okkar. Ég er
mjög spenntur fyrir því að byrja að
æfa með liðinu. Við verðum að átta
okkur á því að við þurfum að vinna
vel og vera einbeittir frá fyrstu
æfingu ef við ætlum að viðhalda
þeim góða árangri sem hefur verið í
Vesturbænum undanfarin ár,“ segir
Matthías um framhaldið.
Ljóst er að KR hefur sett tóninn
með þessum félagaskiptum og nú
er annarra liða að svara þessu með
styrkingu á leikmannahóp sínum
og svo auðvitað inni á körfubolta-
vellinum næsta vetur. Það er að
minnsta kosti ljóst að KR-ingar ætla
ekki að sleppa hendinni af Íslands-
meistarabikarnum á komandi
keppnistímabili.
hjorvaro@frettabladid.is
Við bræðurnir stefndum að
því að ná að spila saman í KR
Vesturbæingarnir Matthías Örn Sigurðarson, Jakob Örn Sigurðarson og Brynjar Þór Björnsson voru
kynntir til leiks sem nýir leikmenn karlaliðs KR í körfubolta í gær. Allt eru þetta uppaldir KR-ingar sem
eru að snúa aftur til KR eftir mislanga fjarveru. Vesturbæjarliðið stefnir á sjöunda meistaratitilinn í röð.
Matthías Orri Sigurðarson og Brynjar Þór Björnsson hafa ásamt Jakobi snúið aftur í KR. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir náði
að fylgja eftir fyrsta gulli Smáþjóða-
leikanna með öðrum gullverð-
launum í gær á sama degi og Anton
Sveinn McKee vann tvenn gullverð-
laun í Svartfjallalandi. Eygló Ósk
kom fyrst í mark í 100 metra bak-
sundi í gær á tímanum 1:02,02, degi
eftir að hafa unnið til gullverðlauna
í 200 metra baksundi á 2:17,36.
Anton Sveinn kom fyrstur í mark
í 50 metra bringusundi á tímanum
27,93 og fylgdi því eftir með því að
næla í gullverðlaunin í 200 metra
bringusundi á 2:10,41. – kpt
Eygló Ósk og
Anton með gull
FÓTBOLTI Hinn 33 ára gamli fram-
herji Kjart an Henry Finn boga son
hef ur fram lengt samn ing sinn við
danska knatt spyrnufélagið Vejle en
nýr samningur hans gildir til ársins
2021. Kjart an Henry kom til Vejle
frá ungverska liðinu Ferencváros
í janú ar fyrr á þessu ári og skor-
aði fimm mörk í 13 leikj um fyrir
danska liðið.
Kjart an og samherjar hans hjá
Vejle féllu úr dönsku efstu deildinni
eftir baráttu við Hobro um að forð-
ast fall í vor og munu þar af leiðandi
leika í B-deildinni á næstu leiktíð.
„Fyrir mér var mjög auðvelt að
taka þá ákvörðun að vera hér áfram
næstu tvö árin. Það voru mikil von-
brigði að falla í B-deildina.
Nú er það verkefni mitt og liðs-
félaga minna að koma liðinu aftur
upp í efstu deild. Það er klárlega
stefnan,“ seg ir Kjart an Henry á
heimasíðu Vejle. – hó
Kjartan verður
áfram hjá Vejle
3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
3
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
2
-0
0
E
0
2
3
2
1
-F
F
A
4
2
3
2
1
-F
E
6
8
2
3
2
1
-F
D
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K