Fréttablaðið - 30.05.2019, Qupperneq 58
Stöllurnar Elín Jóhannsdóttir og Sigrún Guð-mundsdóttir létu langþráðan draum rætast í lok síðasta árs og stofnuðu Pastel blóma-stúdíó. Þær höfðu lengi rætt það sín á milli að stofna blómabúð. Báðar höfðu þær mikinn áhuga á blómum og segjast báðar reyna að
framkalla það listræna í blómaskreytingum.
„Við höfðum oft áður rætt um sameiginlegan draum
um að opna blómabúð en það hafði aldrei náð lengra
en spjall yfir drykk. Þegar við sáum að blómaskreytir
sem við vorum báðar að fylgja á Instagram var að
auglýsa nokkur laus sæti á námskeiði hjá sér í Kaup-
mannahöfn ákváðum við að slá til og skelltum okkur
upp í f lugvél. Þá varð ekki aftur snúið,“ segir Sigrún.
Þær höfðu lengi haft mikinn áhuga á blómum og
samsetningum.
„Okkur langaði til að gera eitthvað öðruvísi en þess-
ar hefðbundnu samsetningar. Á námskeiðinu í Kaup-
mannahöfn var ekki unnið eftir ströngum reglum og
við sáum að það væri hægt að gera svo margt annað
með blóm en að vera með hefðbundna blómabúð,“
segir Elín.
Sigrún segir stóran part af áhuga þeirra á blómum
að finna útrás fyrir sköpun.
„Allir litirnir og áferðirnar. Margir fallegustu blóm-
vendirnir okkar hafa orðið til þegar við erum ekki að
reyna að gera eitthvað sérstakt heldur bara treystum
á okkur sjálfar og innsæið,“ bætir hún við.
Sigrún segir þær fyrst hafa fengið almennilega
reynslu af þurrkuðum blómum á námskeiðinu í Kaup-
mannahöfn.
„Þau eru mikið í tísku akkúrat núna. Þegar við
vorum að byrja að prófa okkur áfram sjálfar þurrk-
uðum við þau sjálf og spreiuðum svo í öllum regnbog-
ans litum. En núna er nóg að gera svo við erum farnar
að kaupa blóm að utan líka. Við notum líka fersk blóm
en eins og er höfum við bara verið með þau þegar um
stærri verkefni er að ræða,“ segir Sigrún.
Viðtökurnar hafa farið fram úr þeirra björtustu
vonum.
„Fólk virðist taka vel í að brjóta aðeins upp þetta
hefðbundna form. Við höfum fengið verkefni sem við
hefðum ekki einu sinni látið okkur dreyma um fyrir
örfáum mánuðum,“ segir Elín
En hvaða verkefnum eruð þið að vinna að núna?
„Eins og er erum við erum að selja þurrkuðu vend-
ina okkar í versluninni Norr11 á Hverfisgötu 18A og
svo eru alltaf einhver ný og spennandi verkefni á borð-
inu. Við erum líka sjálfar með endalausar hugmyndir
sem okkur langar til að framkvæma,“ svarar Sigrún.
Þær segja öll verkefnin sem þær hafi tekið sér fyrir
hendur verið skemmtileg.
„Við vinnum ólíkt fyrir hvern og einn viðskiptavin.
Við tökum að okkur skreytingar fyrir veislur, brúð-
kaup og aðra viðburði og líka stærri innsetningar,
erum algjörlega til í að skoða allt,“ segir Sigrún.
Elín segir þær vera með með mjög líkan stíl en koma
báðar með ólíkar hugmyndir og þeim takist mjög vel
að vinna saman. Þær segja þetta vera stúdíó í bili
en ekki búð þar sem þær vinni vendina á heimilum
sínum.
„Þetta eru bara tvö heimili í austur- og vesturbæ
Reykjavíkur lögð undir starfsemina. Við erum að leita
okkur að hentugra rými til að geta unnið og tekið á
móti viðskiptavinum. En maður kvartar ekki yfir því
að vera með íbúð undirlagða blómum,“ svarar Sigrún
hlæjandi.
En hvaðan kemur nafnið Pastel?
„Okkur finnst Pastel tengjast sköpun og litagleði,“
svarar Elín glaðlega að lokum.
steingerdur@frettabladid.is
Heimili
undirlögð
blómum
Elín og Sigrún stofnuðu saman
Pastel blómastúdíó. Þær gera
vendi og skreytingar úr þurrum
blómum. Viðtökurnar hafa verið
einstaklega góðar.
Vinkonurnar Elín Jóhannsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir stofnuðu Pastel blómastúdíó undir lok síðasta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Elín segir þær hafa áttað sig á að margt sé hægt að gera annað með blóm en
að vera með hefðbundna blómabúð.
Sigrún segir marga fallegustu blómvendina hafa orðið til þegar þær treystu
á innsæið og slepptu hugarmyndafluginu lausu.
Vinkonurnar fóru saman á námskeið í blómaskreyt-
ingum í Kaupmannahöfn.
Sigrún og Elín nota bæði þurrkuð og fersk blóm í blóm-
vendina sína.
3 0 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
3
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:5
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
2
-0
5
D
0
2
3
2
2
-0
4
9
4
2
3
2
2
-0
3
5
8
2
3
2
2
-0
2
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K