Fréttablaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 20
VÍSA Í SÖGUNA Á HLEMMI
Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslu-
meistari á Skál í Mathöllinni á Hlemmi, segir
forláta pylsurétt þann vinsælasta á staðnum.
„Skál er á sama stað og sjoppan sem var
áður á Hlemmi og seldi pylsu í brauði. Við
vildum vísa í söguna en gerum okkar útgáfu.
Rétturinn er sá vinsælasti á staðnum. Við gerum
allt frá grunni og lögum heimagert remúlaði og
lakkrístómatsósu með.“
Pylsan
í nýjum
búningi
Matreiðslumenn og -gæðing-
ar með nýstárlegar uppfærsl-
ur á þjóðarrétti Íslendinga.
ÍTÖLSK PYLSA FYRIR KÓRSTRÁKA
Ámundi Johansen, eigandi Johansen Deli, grill-
aði salsiccia, ítalskar grillpylsur sem fást til að
mynda í Hagkaupum og Melabúðinni. Pylsurn-
ar eru framleiddar hér á landi. Með pylsunum
bar Ámundi fram ferskt og sumarlegt salat með
appelsínu, sýrðum rauðlauk og fennel.
„Það er gott að setja grillpinna í gegnum
pylsuna miðja í kross svo hún haldist saman og
skera svolítið í hana svo hún springi ekki,“ segir
Ámundi sem segist halda að rétturinn muni slá í
gegn hjá félögum sínum í Bartónum, kór sem var
stofnaður á Kaffibarnum fyrir nærri áratug.
MIÐAUSTURLENSKAR GRÆNMETIS
PYLSUR
„Ég ákvað að gera miðausturlenskar grænmet-
ispylsur og bera þær fram í naan-brauði,“ segir
Ylfa Helgadóttir, matreiðslumeistari á Kopar,
sem segir réttinn hafa slegið í gegn. „Lykillinn
að góðu bragði er að steikja þær kryddaðar á
grillinu.“
Fyrir fjóra
Steikt grænmetispylsa með kryddi
2 msk. ólívuolía
½ tsk. paprikuduft
½ tsk. hvítlauksduft
½ tsk. þurrkaður chili/cayenne
½ tsk. salt
½ tsk. timian (eða oregano)
4 grænmetispylsur
4 naan-brauð
Aðferð:
Panna sett á hita og olían og öll kryddin sett
á pönnuna. Léttsteikið kryddin þar til olían
byrjar að krauma. Þá fara pylsurnar á pönn-
una, á háum hita og hristið vel í pönnunni
þannig að pylsurnar steikist á öllum hliðum
og séu vel þaktar í kryddunum.Eftir um 5-7
mínútur af steikingu ætti að vera komin falleg
steikingarhúð á þær. Þá má taka þær af og raða
naan-brauðinu á pönnuna og láta það draga í sig
restina af olíu og kryddum.
Sinneps-jógúrtkarrísósa
4 msk. grísk jógúrt frá Bíó bú
2 msk. jalapeno mustard
¼ tsk. túrmerik
½ tsk. karrý
Salt á hnífsoddi
Aðferð: Öllu blandað saman.
Pistasíu- og döðlugúrkusalat
½ dl pistasíur – gróft hakkaðar
½ dl döðlur – gróft hakkaðar
15 cm bútur af gúrku – skorinn í þunnar
sneiðar og svo í fernt
2 msk. grænt pestó (eða góð ólívuolía)
Samsetning:
Smyrjið hummus á naan-brauðið, raðið kórí-
ander (eða annari jurt/salati) ofan á og setjið svo
grænmetispylsuna næst. Á pylsuna fer jógúrt-
sósan, pistasíusalat og að lokum granatepli.
LAMBAPYLSA Í VÖFFLU
Denis Grbic á Grillinu með pylsu
í vöfflu, afar vinsælan rétt á Grill-
inu á Hótel Sögu.
AF HVERJU
EKKI BER OG
RABARBARI?
segir Áslaug
Snorradóttir sem
setur lamba-
pylsur frá Pylsu-
meistaranum í
grænkál í stað
pylsubrauðs og
ber fram með
meðlæti úr
náttúrunni og
skreytir jafnvel
með blómum og
berjum.
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
A
-C
D
4
4
2
3
3
A
-C
C
0
8
2
3
3
A
-C
A
C
C
2
3
3
A
-C
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K