Ófeigur - 15.12.1951, Side 10
10
ÓFEIGUR
kom fram, að ég hafði með yfirboði mínu unnið á móti
mannlegum eðlislögum. Hermann átti að vera ræðari
á Mbl.skútunni. Vorið 1950 seig hann í þann farveg,
sem hann barst úr, þegar ég bauð honum starf lögreglu-
stjóra. Hann seig hægt og hljóðalaust í faðm Ólafs:
Thors og unir þar við góð fjárhagskjör og engin völd.
Berurjóðrið hafði endurheimt sína eign. Duftið hafði
aftur horfið til jarðarinnar, þar sem það áður var.
Vestmannaeyjamálin halda áfram eins og jökulfljót
1 djúpum farvegi. Má segja, að hver stórviðburðurinn
hafi fylgt öðrum síðustu mánuðina. Síðast var að því
vikið, að stórdómarinn hafði komið til Eyja og haft
þar stutta viðdvöl, en þó yfirheyrt vngsta jarl Vest-
mannaeyja með svipuðum hamförum eins og þegar
duglegir togaraskipstjórar héldu hásetum á þiljum við
samfellda vinnu, þar til þeir köstuðu hausnum af þorsk-
inum í lestina, en bolnum fyrir borð. Þó reyndist hið
seiga Húnvetninga og Þingeyingaeðli Helga BeneÚikts-
sonar nógu haldgott til að skila honum heilum til starfa
eftir þessa þátttöku í framkvæmd laga og réttar. Stór-
dómarinn hvarf til Reykjavíkur aftur, til að undirbúa
næstu Eyjagöngu þegar tími þætti hentugur til nýrr-
ar herferðar. Var um stutta stund ekkert herhlaup
til Eyja.
Næst ber það til tíðinda í Eyjum, einn dag er Helgi
Benediktsson er á leið á bæjarstjórnarfund til að fram-
kvæma í fullu dagsjósi draum Framsóknarleiðtoganna
um vinstri stjórn, að leið hans lá fram hjá skrifstofu
bæjarfógeta. Stóð hann út í dyrum, eins og broshýr
hreppstjóri, sem fagnar sér kunnum komumanni. Segir
valdsmaðurinn í landsföðurlegum tón, að nú hafi ríkis-
stjórnin sent til Eyja nokkuð af bókhaldi Helga. Geti
eigandinn komið og tekið það á skrifstofu sinni þeg-
ar honum henti. Helgi svarar, að bezt muni að af-
henda bækumar þar sem ríkisvaldið hafi tekið þær, en
það sé á skrifstofu hans. Helgi bætir því við, að hann
sé nú á leið á bæjarstjórnarfund, til að sinna borgara-
legum störfum. Hafi hann hvorki tíma né hentugleika
að snúast í erindum ríkisstjórnarinnar, enda þurfi hann
tíma til að undirbúa móttöku skjalanna. Hann tiltekur
síðan tíma næsta dag, þegar hann geti tekið á mótL