Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 12

Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 12
12 ÖFEIGUR gögnum hans. Franz og samstarfsmenn hans gátu enga grein gert fyrir skjalatjóninu og fóru burt eins og höfðingjarnir frá Mosfelli, sem hljóðir og hógvær- ir menn. Enn hefur engin vitneskja fengizt um þetta sokkna meginland réttvísinnar. Skjölin hafa glatazt í höndum endurskoðenda, en þeir voru grandalausir, er þeir komu til að leggja þau fram. Líklegast má telja, að í gáleysi hafi þessi plögg verið í höndum fleiri manna heldur en til var ætlazt. Hafði sú frétt borizt til Eyja, að skjölin hefði verið endurskoðuð samhliða því sem nokkur gleð- skapur var við starfið. Bridgespil með örvandi vínveit- ingum, er einhver bezta skemmtun margra af hinum snöggsoðnu trúnaðarmönnum þjóðfélagsins í nefndum og vissri tegund endurskoðunar. Ljósmyndir höfðu auk þess verið teknar af tilteknum síðum bókhaldsins, til samanburðar og athugunar, þegar þjónar réttvísinnar höfðu styrkt skarpskyggnina með nægilegri æfingu í bridgeþrautum. Sennilegasta skýringin á skjalatapinu er sú, að þegar verið var að endurskoða, hafi of lítið æfðir menn farið að fitla við skjölin, án þess að hinir eiginlegu rannsóknarmenn hafi um það vitað, og að þessir viðvaningar hafi ætlað að eiga nokkur blaða- snifsi til endurminningar um Vestmannaeyjahemaðinn. * Eftir að stórdómarinn háfði skilað f jórða hluta hinna burtfluttu skjala, tilkynnti Helgi Benediktsson fjár- málaráðherra, að enn vantaði hann heimildir til að geta gert venjulega framtalsskýrslu. Óskaði hann eftir að- stoð ráðherrans við að fá þau skjöl, sem enn væru í fórum stórdómarans. Ekki sinnti Eysteinn því máli. Hinsvegar fóru nú að koma sendiboðar úr Reykjavík, sem virtust hafa vafasöm bréf frá einhverjum undir- tyllum í verðlagseftirlitinu. Komu tveir slíkir menn i nýja heimsókn til Helga Benediktssonar. Hafði annar þeirra verið aðstoðarmaður hjá stórdómaranum í fyrri herferðum. Helgi var staddur í Reykjavík, þegar gest- ina bar að garði, en ung stúlka á skrifstofu hans. Vildu komumenn leggja hönd á bækur fyrirtækisins, en stúlk- an var snarráð, lokaði húsinu og fór með lyklana.. Kvaðst hún ekki opna húsið fyrir ókenndum mönnum fyrr en eigandinn kæmi sjálfur. Ekki lögðu þeir í að.

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.