Ófeigur - 15.12.1951, Síða 14

Ófeigur - 15.12.1951, Síða 14
14 ÓFEIGUR Páll leið sína til mildari landa á hnettinum og undi þar hag sínum á ellilaunum frá verðlagseftirlitinu. Kæra hans um of háa verðlagningu Helga Framsóknarjarls lagði legið á hærri stæðum, en þó neðan við allan ráð- herradóm. Fóru nokkrir mætir menn höndum uin plagg- ið, svo sem: Stórdómarinn, Franz endurskoðandi, Jó- hann Eyjajarl og fleiri meiriháttar menn. Þótti þeim lítt hafa gætt manndóms og hetjuskapar hjá hinum fyrri sendimönnum. Skyldi nú njóta þess afrekshugar, sem oft fyllir brjóst vaskra æskumanna. Völdust enn til ferðar úrvalsmenn að afli og þroska. Annar var krati, Jón Emilsson, Austfirðingur. Hinn rauður kom- múnisti og nafns hans ekki getið. Skyldi nú yfir ljúka í baráttunni við Helga Benediktsson. Höfðu þeir sér til réttlætingar kæru Páls kratajarlsefnis, en ekki aðrar frambærilegar heimildir. Jón Emilsson var uppruna- lega portmaður og stóð framarlega í þeirri deild sem leit á bolsivika eins og meistara komandi tíma. Hafði Jón þessi með sér nokkra sveit sinna jafningja í portinu þegar kommúnistar og stúdentar mótmæltiu algerlega allri aðstoð frá Bandaríkjunum. Var Jóni falið að vera jafnan með sitt lið mitt á milli Katrínar Thorodd- sen og Aðalbjargar allrasystur. Þessi þrenning var sannfærð um að Rússar mundu aldrei fara yfir hlut- leysislínuna hjá Islandi, alveg eins og Gröndal hafði lýst fyrr, að þorskarnir mundu bíða í þráðbeinni röð í Garðsjó á vertíð, til að fullnægja sýslufundarsam- þykkt Gullbringusýslu. Enn komu þeir félagar á skrif- stofu Helga forseta bæjarstjórnar og segjast sendir eftir bókhaldi hans öllu, bæði að fornu og nýju. Gera þeir sig líklega til að sópa öllum viðskipta og bréfa- bókum úr hillunum, eins og þegar sterk kaupakona sópar þurrheyi með hrífunni og myndar stóra garða fyrir þá, sem moka beðjunni upp á vagninn. Helgi spyr um heimildir fyrir innrás framandi manna í sín hús og um meint sakarefni. Verklýðsforkólfarnir létu dólgs- lega og svöruðu með stórmælum. Helgi kvaðst fyrir- bjóða þeim með öllu að hafa hönd á sínum viðskipta- skjölum, þar sem þeir væru án heimildar siðaðs mann- félags. Létu komumenn þá undan síga til sinna her- búða, þá um kvöldið. Um nóttina lætur Jón Emilsson illa í svefni og hef-

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.