Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 17

Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 17
ÖFEIGUR 17 vita, að Magnús er þar í góðu gengi fyrir manndóms- baráttu hér á jörðinni. Ekki spillir heldur fyrir honum að hafa hlynnt að Strandarkirkju með því að græða hin helgu sandlönd þessarar stofnunar. Strandarkirkja geymir auk þess ösku þessa vinar síns í þartilgerðu skríni úr einum fegursta steini þessa lands. Sumir Vest- mannaeyingar vildu ekki fullyrða, að þeirra jarl hefði jafngóðan viðbúnað fyrir framhaldslífið eftir jarðnesk- an viðskilnað. En hér kennir nokkurs ókunnugleika um hinar viðurkenndu sáluhjálparleiðir kristinna manna. Telja verður sennilegt, að jarlar Vestmannaeyinga beri með sér bagga erfðasyndarinnar inn í jarðlífið og að lífsbarátta þeirra reyni nokkuð á grandvarleika bæði í landhelgis og innflutningsmálum. Samkvæmt kaþólskri trú, geta góðverkin lyft mönnum til himins, þótt synd- ir fljóti með. Hinsvegar leggja mótmælendur höfuð- áherzlu á iðrun, jafnvel fram á dauðastundina. Þess vegna má telja allan ótta um framtíð Vestmannaeyja- jarlanna í öðrum heimi ótímabæra hræðslu. Hver þeirra, og þar á meðal Gunnar, hljóta á langri æfi að hafa unnið mjög mikið af góðverkum. En ef eitthvað vant- ar á frelsunarskilyrði eftir kaþólsku leiðinni, þá er eftir hin eilífðarbrúin, samkvæmt kenningu mótmælenda, og standa þær dyr opnar meðan lífið varir, allt fram á dauðastund. Það virðist þess vegna engin hætta á að Magnús Torfason og elzti Vestmannaeyjajarlinn geti ekki orðið leiknautar í öðrum og betri heimi. # Sérstök friðartillaga hefur líka komið fram í Eyj- um. Hún er á þann veg, að leiða styrjöldina milli tveggja umsvifamestu jarlanna til lykta með hólmgöngu í forn- um sið, í stað þess að láta Eyjamar leika á reiði- skjálfi út af átökum mestu valdamanna fólksins í þessu byggðarlagi. Þingmaður Eyjanna og forseti bæjar- stjórnarinnar eru fólksins smurðu og útvöldu menn. Ef þeir þurfa að jafna mál sín, þá ætti þar ekki að þurfa að koma til greina að skapa Örlygsstaði eða Haugsnes í nýjum sið, þar sem allur borgarlýðurinn grípur sverð og skjöld og berst með sínum höfðingj- um. Þegar oddvitar siðaskiptatímabilsins, Ögmundur og Jón Arason, stóðu á Þingvöllum andspænis hvor öðr- um með óvígan her, þá komu góðir menn því til leið- ar, að þeir fengu sinn mann hvor til hólmgöngu og

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.