Ófeigur - 15.12.1951, Side 21

Ófeigur - 15.12.1951, Side 21
ÖFEIGUR 21 Súðin hoppaði á öldum hafnarinnar, létt eins og laus- klædd dansmær sem svífur um salargólfið. En áður en þetta gerðist, hafði Súðin verið fengin í hendur lærðasta lögvísindamanns í þjónustu Eysteins Jónssonar, en það er maður, sem kallaður er Jóhannes skírari. Hefir Eysteinn jafn mikinn átrúnað á skírar- anum og Dala-Brandur á Þórslíkneski sínu áður en eðlur og pöddur stukku úr skurðgoðinu undan öxar- höggum Olafs helga. Hafa menn það til marks um á- gæti skírarans, að talið er í stjórnarráðinu, að Jó- hannes hafi 16 bitlingsbein samtímis frá ríkisstjórn- inni og sum þeirra séu líkust rifjum á Hólsfjallasauð- um eftir gott sumar. Hefur enginn hirðgæðingur hér á landi hlotið jafnskjótan og farsælan trúnaðarframa eins og skírarinn. Jóhann þriðji jarl í Eyjum hafði fyr- ir bænarstað Eysteins meðráðherra afhent skíraranum og gróðafélagi hans Súðina, þegar Páhni Loftsson hafði keypt fyrir landið fjögur ný og fullkomin strandferða- skip. Myndaði skírarinn þá í skjóli við sína háu vernd- ara í stjórnarráðinu Grænlandsleiðangurinn góðfræga, sem fyrr er frá sagt í Ófeigi. Var tilætlunin að vinna Grænland í annað sinn og að skírarinn gæti á ókomn- um árum staðið í annálum landsins eins og raunveru- legur arftaki Eiríks rauða. Útgerð skírarans við Grænland varð sögufræg. Súðin var móðurskip. Nokkrir bátar til veiðanna. Sjómenn- irnir voru vaskir. Ennfremur einn stýrimaður, en aðrir yfirmenn litu aðallega á ferðina eins og sumarleyfi eða landkynningu gleðimanna. Eitt einkenndi útgerð skírarans; hann valdi til vesturfarar allmargar ungar konur. Þetta var alger nýlunda. Þúsundir sjómanna frá öllum löndum voru á Grænlandsmiðum, en hvergi kon- ur um borð nema á skipi skírarans. Lék flestum hinum erlendu mönnum hugur á að heimsækja íslenzka skip- ið og taka þar þátt í nokkrum mannfagnaði. Skiptist útgerðarríki skírarans nú í tvennt. Annars vegar var nokkur hluti yfirstéttarinnar á skipinu og fáeinar af stúlkunum fús að halda upp rausn og gleði með erlend- um gestum. Hinsvegar var minni hluti yfirmanna, flest- ir sjómennimir og meiri hluti stúlknanna einhuga um að vera vestra til að stunda framleiðslu en ekki veizlu-

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.