Ófeigur - 15.12.1951, Page 22

Ófeigur - 15.12.1951, Page 22
22 ÓFEIGUR störf, og hélt fast við þá stefnu. Forráðamennirnir réðu stefnunni og tóku upp stórfellda landkynningu með þar tilheyrandi gleðskap. Gestir veittu og þáðu vín, svo að slík risna var óþekkt nema hjá stórhöfð- ingjum. Sjómennirnir sinntu veiðum, en risnan setti svipmót á útgerðina og aflinn varð eftir því. Þær stúlk- ur, sem ekki vildu snúa sér að veizlunum og þjónustu- brögðum við gistivini útgerðarinnar, fengu hörð orð í eyra og yfirgáfu skipið með bátum, sem fóru til fs- lands. Útgerðarstjórnin frétti að lítið kæmi af fiski í lestina, en fékk hnisvegar pata af að tómar olíutunn- ur frá Standard Oil flutu víða um firðina, af því að mikið þurfti af olíu, en tankgeymslur ekki í lokuðu úndi. Gaf skírarinn þá skipun símleiðis, að safna sem mestu af tómu tunnunum og hlaða Súðina með þeirri vöru, þar sem skortur væri á fiski. Sömuleiðis skyldi leiðangursfólkið safna rekaspítum í fjörunni, hvar sem þær fyndust og nota það eldsneyti í stað kola, sem skortur var á til að geta með þeim hætti látið Súðina hitna og blása með eimpípu sinni þegar gistivinir ís- landsútgerðarinnar komu og fóru. Súðin kom heim með lítið af brennivíni og fiski, en því meira af tóm- um tunnum og skuldum. Þegar skipið kom loks til Reykjavíkur, hafði það hlotið afarmiklu viðurkenningu á Grænlandsmiðum fyrir auðsýnda gestrisni við sjó- menn og þó einkum yfirmenn af skipum allra siglinga- þjóða í norðurhöfum. En heima biðu skuldadagarnir. Meðal annars varð að skila öllum tómu tunnunum til réttra eigenda, án launa fyrir söfnunina og flutninginn. * Skírarinn kveið fyrir reikningsskilunum, en vissi að hann átt von góðrar heimkomu hjá vini sínum Ey- steini. Fiskstabbinn í lestinni var líkur í laginu hey- forða Kristjáns Fjallaskálds í Þorrakvæði hans. Afréð skírarinn nú að beita kænsku og lagaviti. Keypti hann nokkuð af linsöltuðum fiski til að bæta sína sumar- framleiðslu. Síðan sótti hann um leyfi til „fyrstu stjórn- ar Alþýðuflokkins á Islandi" til að mega selja ugga sína utan við Sölusambandið. Bar skírarinn fram þær ástæður fyrir undanþágubeiðni sinni, að eins og kvistir Bjarna Thorarensen voru vættir „eldregni tára“, hefði hans fiskar sér það til ágætis, að þeir væru í vestur- vegi vökvaðir með alþjóðlegum tárum og íslenzkum

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.