Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 24
24
ÖFEIGUR
þeirra fylgdi með í austurveg af hreinni tryggð við
Súðina.
Lítur nú allt blómlega út með Súðina. Ríkið fær að
líkindum í sinn hlut fimmfailt stofnverð, eða hálfa millj-
ón króna. Viðunandi má kalla, ef rafvirkinn og þeiiy
sem veita honum aðstoð, fá milljón fyrir skipið
og auk þess sem hann tekur farm í skipið milli aust-
rænna borga. Blöðin í Reykjavík flytja stöðugt mynd-
ir al Súðinni, svo sem þegar hún siglir gegnum Súez-
skurðinn eða baðar æskurjóða bringu sína í öldum Ind-
landshafs. Mega gamlir andstæðingar Súðarinnar, svo
sem Ólafur Thors, minnast þess, að jafnvel hinum æfð-
ustu stjórnmálamönnum getur missýnst um einföld
mál. Þrátt fyrir öll svigurmæli Ólafs fyrr á árum um
aldur Súðarinnar, er skipið nú búið að sýna ágæti sitt
í erfiðum siglingum meðfram ströndum landsins. Hún
hefur, síðan á tímum fyrstu stjórnar Alþýðuflokksins,
verið fánaskip Islands í vesturvegi og sannað í einu
gestrisni Islendínga og skipulagshæfileika ungra, lög-
lærðra skuldheimtumanna. Að síðustu flytur Súðin nú
í fjarjægum höfum frásögnina um þann merkilega þátt,
sem íslenzk stjórnarvöld á mi^ri 20. öld áttu í að opna
landnám Eiríks rauða að nýju fyrir sjómönnum og
atvinnurekendum, sem endurheimta vestur þar hin
týndu og rændu heimamið við strendur ættjarðarinnar.
Alveg sérstök ástæða er til að gleðjast yfir því að
skírarinn fær ríkulega umbun alls erfiðis við sölu Súð-
arinnar. Telja sölufróðir menn að minna en 5 % sé óhugs-
andi að bjóða svo merkum lögfræðingi fyrir báðar
sölumar. Ætti hann þá að fá 25 þúsund fyrir að selja
rafvirkjanum skipið en 50 þús. fyrir að aðstoða hinn
nýja eiganda við að koma Súðinni á framfæri til Gyðinga
við Gulahafið .
*
Listasafnið nýja hefir mikil salarkynni, en ekki nota-
sæl. Síðan þjóðstjórnin fór frá völdum, 1942, hefir Val-
týr Stefánsson með stuðningi kommúnista og Barða
Guðmundssonar, keypt nálega eingöngu klessumálverk,
sem ekki eru augnagaman nema mjög skillítilla manna.
Kuldi mikill er í þessum húsakynnum, svo að sú list-
fróða kona, sem lítur eftir myndunum þegar gestir
koma, verður að búa sig áður en hún gengur í lista-