Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 25

Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 25
ÖFEIGUR 25 ■salina líkt og Kristján Fjallaskáld þegar hann stóð yfir sauðum á Hólsfjöllum. Getur vel farið svo, að gesti kali til skaða, ef þeir standa lengi í vetur hreyfingar- lausir framan við hinar ægilegu klessumyndir sem fylla hálfa listasalina. Þrátt fyrir allt á ríkið allmikið af góðum listaverkum frá þeim tíma þegar Matthías Þórð- arson, Sigurður Nordal, Stefán Jóhann, Kristján Al- hertsson og ég keyptum listaverk fyrir landið. Fram að þessu hafa þær myndir ekki notið sín fyrir því sem einn af núverandi ráðherrum mundi kalla „gumsið“. Vonandi verður síðar bætt úr því, þannig, að ekki verði sýnt í þessu safni nema listaverk eftir færa menn og vel mennta. * Ein er sú mynd í eigu landsins, sem ekki hefir enn verið látin koma fyrir sjónir gesta í safninu. Sú mynd ætti að heita „Frænka Göngu-Hrólfs“. Málverkið er eftir Gunnlaug Blöndal, forkunnar fögur frönsk stúlka frá Normandí. Sennilega hefur þessi fegurðardís komið úr baði og kastað sér á sófa með hvítan líndúk þvert yfir mittið. Ég hafði fengið lögfest 1928, að all- ar áfengissektir skyldu renna í sjóð sem verja ætti í þágu bókmennta, lista og visinda. Keypti ég þessa fögru mynd handa væntanlegu safni fyrir 1000 kr. af brenni- vínssektum. Matthías Þórðarson tók í fyrstu við mynd- inni og geymdi hana í eldtryggu hólfi í Arnarhvoli, með f jölmörgum öðrum listaverkum. Ég átti hinsvegar þátt í að listaverk landsins voru síðar sýnd í stjórnarráð- inu, skólum og öðrum opinberum byggingum. Barst frænka Gölfu-Hrólfs þá í kennarastofu háskólans í Þing- húsinu. Gluggar voru lágir og vissu út að Austurvelli. Myndin góða hékk á vegg andspænis torginu. Tals- verður deilur risu í kennarastofunni út af myndinni. Sögðu læknar, að mannslíkaminn væri ætíð fagurt sköp- unarverk, en guðfræðingum þótti sennilegt, að málverk- ið kynni að vekja óleyfilegar tilfinningar í brjóstum ráð- settra borgara. Stóð deilan óútkljáð þar til Helgi Hjörv- ar kemur eitt kvöld í myrkri að þinghúsinu til að safna kvöldfréttum vegna útvarpsins. Sér hann þá að Austur- völlur er kvikur af hálfvöxnum strákum, sem ætluðu að éta Normandí-konuna með augunum. Prófessorarn- ir höfðu gleymt ljósi í kennarastofunni, svo að frænka Göngu-Hrólfs var sýnileg í allri sinni dýrð. Helgi sagði

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.