Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 29

Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 29
ÓFEIGUR 29- Benti einhver ræðumanna Magnúsi Jónssyni á, að í Eyjum hefði almúginn byggt sér mörg og vönduð hús á síðustu missirum án þess að spyrja hann um leyfi. Tók hann mannlega á málinu og kvað hér um frísynd- ir að ræða, sem hefðu fyrir löngu verið fyrirgefnar á hærri stöðum. * Vestmannaeyingar skildu, að hér var um skrautsýn- ingu að ræða, sviplíka, eftir ástæðum, því þegar Stalin raðar marskálkum sínum á gröf Lenins við hátíðleg tækifæri. I stundaglasinu rann hinn gullni sandur sein- lega langt fram á kvöld, án þess að hinir hugumstóru höfuðstaðarbúar veittu athygli leik höfuðskepnanna ut- an við höll Mbl.manna. En þegar Gísli sterki stóð upp frá borðum með kappa sína og vildi stíga upp í flugvél- inu, var að skella á ólátaveður svo að söng í Heima- kletti. Fór líkt og í Babýlon forðum: „Leiddist öllum ljúffeng vín, ljósin föl í stikum glóðu.“ Var nú ekki annars kostur en að gista með allan liðsaflann í Eyjum. Dreifðist flokkurinn skjótlega um staðinn og tóku heldri menn bæjarins á móti vinum og vandamönnum til gistingar, en þeir sem áttu enga að, leituðu í hið góðfræga gistihús H. B. þar sem endur- skoðendur stórdómarans höfðu leikið Hektor og Akk- illes sér til dómsáfellingar í kuldunum í vetur sem leið. Fram að þessu hafði hófsemi einkennt sjálfan veizlu- fögnuðinn, en þegar liðið hvarf út í myrkrið til móts við gestrisna einstaklinga, var eins og vínguðinn fengi vængi og leitaði helzt til þeirra, sem bezt kunnu að meta verðleika hans. Mega Islendingar jafnan minn- ast þess, að ríkisstjórnin er stöðugt að framkvæma eitt af frægustu kraftaverkum sögunnar, að breyta brunnvatni í mest eftirsóttu verzlunarvöru þjóðarinn- ar. Gísli sterki kann lítið að nota kraftaverk áfengis- verzlunarinar og var snemma á fótum á miðvikudags- morgun og gáði til veðurs. Enn var of hvasst og sýni- legt að flugvélin mundi verða að bíða byrjar allan miðvikudaginn. Varð þetta Vestmannaeyingum að hinu mesta happi, því að þeir höfðu ekki í allri þingmanns- tíð Jóhanns þriðja jarls í Eyjum, séð eins marga höfð- ingja í staðnum og á þessum hvassviðris og landlegu-

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.