Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 30

Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 30
30 ÓFEIGUR dögum. Yfirstétt landsins kynntist líka með þessum hætti furðulega fljótt kjörum almúgans, eins og þau koma fyrir augu glöggra gesta. Héldu heimsóknir, vina- gildi og spilasamkomur áfram allan þennan dag. En þegar tók að líða að kveldi, gerðist ríkisstjórnin óró- leg út af fjarveru nefndanna, sem stjóma landinu. Minnti Eysteinn á, að hið góða skip hans ,,Þór“ væri nú til taks. „Þór“ hefði kostað 10 milljónir og eyddi árlega jafnmiklu úr landssjóði eins og útgerð þriggja vopnaðra gæzlubáta. Sagði hann að „Þór væri ekki bundinn við alvarleg störf þá stundina, þar sem allir dragnótabátar, togbátar og togarar hefðu svo fullkomn- ar njósnir, að „Þór“ kæmist aldrei í færi við mótgangs- menn gæzlunnar. Væri þá rétt að minnast þess, að „Þór“ væri engu síður fyrir höfðingja heldur en almúg- ann. Benti fjármálaráðherra á, að þessi sendiför hefði fyllilega náð tilgangi sínum og tekjur ríkissjóðs af ferðalaginu gerðu meira en endurgjalda tilkostnað við ferðina. Væri því bezt að senda ,,Þór“ í skyndi til Eyja og láta hann flytja allan liðsaflann til borgarinnar strax um nóttina, því að með þeim hætti gæti landið aftur fengið löglega stjórn, þingið orðið starfhæft að nýju og þær nefndir, sem stjórna ríkinu, sezt aftur á sína þýðingarmiklu valdastóla. Þegar her hverfur skyndi- lega á undanhaldi úr vígstöðvum, brenna kænir her- stjórar vistir og annan farangur. Hér þótti slíkt ekki við eiga, þar sem um var að ræða vinsamlega hersetu. Var þá talið sjálfsagt, að verðmætar leyfar yrðu eftir atvikum notaðar til manníagnaðar á staðnum, án alls yfirlætis. Mætti með þeim hætti skapa Brandajól í Eyj- um frá fyrsta fyrirhugaða veizludegi, en það var sunnu- dagur, og fram á fimmtudag, þegar norðanvindinum slotaði og farkostur veizlugesta, flugvélin, sem beðið hafði þeirra þolinmóð þrjá daga, kom til Reykjavíkur á eftir langferðamönunum. Flugvélin hneigði sig í kurt- eisisskyni yfir Amarhvoli með sniðugri loftbeygju, til að þakka f jármálaráðuneytinu fyrir hagstæð viðskipti. „Þór“ kom til Eyja með 18 mílna hraða og tók gest- ina. Margir vom þreyttir og syfjaðir, en hraustmennin héidu áfram veizluglaumnum alla nóttina. Höfðu feður þjóðarinnar séð þeim fyrir hóflegu magni af Gvendar- bmnnavatni.

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.