Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 32

Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 32
32 ÖFEIGUR hinar mörgu sendinefndir sem hafa að miklu eða öllu leyti verið óháðar stórdómaranum. Vestmanneyingar mega vel una við sinn hlut í þjóð- félaginu. Þeim er vissulega ekki gleymt. Frægð þeirra hefir aldrei verið meiri en nú. Þegar Skúli bar fram fyrirspurn sína og Bjarni svaraði, kom fjöldi áheyr- enda á þingpalla. Áður höfðu gestir sjaldan litið inn í þingið. Vestmannaeyjamálið eitt hefir haft það lífsmagn, sem með þarf, til að, lokka borgarana inn í þinghöllina. Tvö snilldarljóö. Guðmundur Hagalín hefir ritað prýðilega grein um íslenzk ljóðskáld á 19. og 20. öld. Grein þessi hefir birzt í tveim síðustu árgöngum almanaks Þjóðvinafélagsins. Ein kenning höf. í fyrri greininni þykir mér þó var- hugaverð. Svo er að sjá sem Hagalín telji Magnús Ás- geirsson meiri snilling við ljóðaþýðingar heldur en Matt- hías Jochumsson. Þetta er meiri háttar misskilning- ur. Enginn maður getur orðið yfirburðamaður við ljóða- þýðingar nema hann sé mikið skáld sjálfur. Nú hefír Magnús Ásgeirsson ekki ort nein ljóð. Hann er þess vegna ekki sjálfstætt skáld, heldur afkastamaður við ljóðaþýðingar. En ef frá eru taldar fáeinar mjög vel gerðar vísur, sem hann hefur snúið á íslenzku eftir enskt skáld, þá eru þess engin dæmi að þýðingar Magn- úsar Ásgeirssonar lifi á vörum manna eins og heilar bækur, sem Matthías hefir þýtt, t. d. Friðþjófssaga og Manfred, auk f jölmargra annarra ljóðaþýðinga hans, sem eru varanleg andleg eign allra sæmilega menntaðra manna hér á landi, samhliða ljóðum innlendra stór- skálda. Mér hefir komið til hugar, að fátt myndi geta talizt öruggara sönnunargagn um yfirburði stórskálda

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.