Ófeigur - 15.12.1951, Síða 38
38
ÓFEIGUR
flokkunum og lagt í hendur manns sem almenningur-
velur og getur gert ábyrgan gerða sinna. Nú eru flokk-
amir einráðir við stjórnarmyndun og láta ríkissjóð
borga herkostnaðinn. Við myndun ríkisstjórnar 1944
varð hin nýja stjóm að lofa að koma á tryggingum
þeim, sem nú eru í gildi en þó að mestu óframkvæman-
legar. Enginn þingmaður vissi þá hvert var efni trygg-
inganna. Jafnframt varð stjórnin að lofa flokkunum
að setja launalög eftir geðþótta láunamanna sjálfra.
Við stjórnarmyndun 1950 sömdu leiðtogar flokkanna
um að fella krónuna um 74% gagnvart erlendri mynt,
án þess að borgarar landsins hefðu hugmynd um hvað
gert var fyrr en búið var að gera myntina nálega verð-
lausa. Móti verzlun hentistefnumanna um f jármuni þjóð-
arinnar, í sambandi við myndun og starf ríkisstjórna
er ekki nema eitt ráð til og það er fullkominn skiln-
aður löggjafarvalds og framkvæmdarvalds. Meðan nú-
verandi skipulag helzt, er engin von um viðreisn þjóðar-
búsins. Verzlun flokkanna um stjórnarvaldið, og það
hefur oft verið gert í samráði við bolsivika, veldur
hvarfi stríðsgróðans, sparif járins og amerísku gjafanna.
Ef þjóðin getur ekki skapað sér ábyrg stjórnarlög, hlýt-
ur hún um óákveðinn síma að verða á alþjóðaframfæri,
án þess að hægt sé að gefa nokkra skynsamlega ástæðu
fyrir þeirri óvæntu niðurlægingu.
Fjármálaviðreisnin.
Þegar mynt einhvers lands er gjörfallin, eins og
danski dalurinn 1814 eða þýzka markið 1921 og 1945,
verður sú þjóð að skapa sér nýja mynt og tiltrú á gildi
hennar. Friðrik VI. og ráðgjafar hans tóku mikið af
fasteignum landsins traustataki, sem tryggingu fyrir
nýjum seðlum, og þeim tókst með ráðdeild og sparn-
aði að endurbyggja traust myntkerfi. Þjóðverjum virð-
ist hafa tekizt að leysa vandamálið mjög vel eftir bæði
stríðin, á svipaða lund og Danir áður fyrr. Hér á Is-
landi er óhugsandi að skapa nýja og örugga mynt fyrr
en þjóðin hefir lært fornar dyggðir af reynslunni. Nú-
verandi valdhöfum með stéttarfélög í öflugri sókn móti
þjóðfélaginu, mundi vera gersamlega um megn að
byrja að skapa nýja krónu, jafnvel þótt að veði stæði
fyrsti veðréttur í öllum fasteignum landsins. Kommún-