Ófeigur - 15.12.1951, Page 39

Ófeigur - 15.12.1951, Page 39
ÖFEIGUR 39 istar mundu, og þeir væru þess megnugir, hef ja kaup- streitu að nýju og skapa þá dýrtíð, sem ekki yrði við ráðið og felldi krónuna að nýju. Stofnsjóðshiígmyndin. Ég hefi nýverið hreyft nýrri tillögu varðandi viðreisn landsins í fjármálum. Ég bar hugmyndina fram á mjög fjölsóttum fyrirlestri í listamannaskálanum fyrir skömmu. Sú tillaga er miðuð við þann tíma þegar krón- an er gerfallin og Bandaríkin hætt að gefa landsmönn- um fé og mat til daglegs framfæris. Þá er jafnframt gert ráð fyrir að þjóðin finni sárt til þeirrar niðurlæg- ingar, sem hún hefur orðið fyrir í sambúð við þá menn, sem öll borgarablöðin væna daglega um föðurlands- svik, en var áður treyst til allra farsællegra hluta. Þá verður viðhorfið svo breytt, að íslendingar byrja að trúa á mátt sinn og megin, en ekki loftssjónir byltinga- manna. Ég lagði þar til, að tekin yrði upp tíund með nýjum hætti. Hver maður, sem náð hefði kjöraldri, yrði að leggja tíunda hlut tekna sinna í skyldusparnað, sem nefndist stofnsjóður einstaklinganna. Um stofsjóðinn væri ýtarleg löggjöf, eins og um tryggingar. Tíund hvers manns legðist árlega í stofnsjóðinn. Sá sjóður væri friðhelgur gagnvart öllum sköttum bæði til ríkis og bæja. Stofnsjóðurinn væri auk þess tryggður af rík- inu gegn allri gengislækkun. Með þessum hætti átti hver borgari, jafnt karl og kona sinn stofnsjóð, og á hann yrði ekki ráðizt með neinum skattkröfum. Einstakling- urinn ætti þá vaxandi eign, sem ekki yrði frá honum tekin til annarra þarfa, alla hans ævi. Þegar unga fólk- ið myndar heimili eða efnir til sjálfstæðrar atvinnu kemur stofnsjóðurinn til hjálpar með framlög, og stund- um með lán. Hvortveggja aðstoðin veitt eftir fyrirfram ákveðnum reglum. Stofnsjóðurinn heldur áfram að vaxa alla ævi mannsins með árlegri tíund og vöxtum, en veitir eigandanum sífeldlega stuðning til heilbrigðr- ar lífsbaráttu. Þannig myndaðist mikið f jármagn, öflug lyftistöng framfara og atvinnuöryggis í landinu. Elli- trygging nútímans yrði óþörf og felli niður. Stofnsjóð- ur einstaklinganna yrði meiri stoð heldur en hinar þýð- ingarlitlu hrunkrónur, sem nú eru réttar kynslóðinni sem er að ljúka störfum. Stofnsjóðurinn mundi skapa.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.