Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 41

Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 41
ÓFEIGUR 41 ur, þá væri stigið stórt spor til að tryggja atvinnu fyr- ir íslenzka fiskimannastétt á ókomnum öldum. Tíu mílna landhelgL Fyrir nokkrum missirum ritaði Jón Árnason banka- stjóri grein í Vísi og lagði til að íslendingar byðu Bret- um félagsskap um að tryggja allri Norðurevrópu næg- an fiskistofn við ísland með þvi að friða 10 mílna belti út frá ströndum landsins fyrir allri botnvörpuveiði, bæði báta og skipa og jafnt innlendra manna sem erlendra. Innan við þessa línu gæti þjóðin sjálf notað net, línu og færi, eftir því sem orkan leyfði. En á þessu breiða belti hefði ungfiskurinn öruggan griðastað, og úr þess- um miklu uppeldisstöðvum dreifðist fiskurinn um höf- in í kringum landið. Þar mætti véltæknin njóta sín. Með þessu eina móti er nokkur von um að unnt verði að tryggja fiskiveiðar sem atvinnu Islendinga á ókomn- um árum. Ef fólkið á sjávarbakkanum getur ekki risið gegn eyðileggingarstarfsemi innlendra manna, sem skafa hvert mið á grunnsævi nótt eftir nótt með botnsköfum og gefa erlendum veiðimönnum háskalegt fordæmi, er íslenzk fiskimannastétt dauðadæmd. Enn bólar alls ekki á neinni skynsamlegri aðgerð í þessum málum. Félög og flokkar samþykkja ályktanir um að Islending- ar eigi að slá eign sinni á allt grunnsævi við Island og sitja þeir einir að veiði. Þessir menn tala eins og fávís börn. Um leið og íslendingar loka hafhlutum með einhliða, innlendu banni án viðurkenningar Breta, hefst milliríkjamál, þar sem veikdómur íslands á öllum sviðum kemur ljóst fram, bæði að því er snertir hervald og aðstöðu á heimsmarkaðinum og lokar öllum mögu- leikum til að breyta frómum óskum í veruleika. Að- staða íslands á alþjóðlegum vettvangi er enn veikari fyrir það, að allar grannþjóðir vita, að dráttarnetafloti Islendinga er langhættulegastur fiskimiðunum hér við land, af því að bátamir eru allt af við sína skemmdar- iðju uppi í landsteinunum þar sem erlendir menn þora þó ekki að koma. Landhelgisvamirnar hljóta fyrst og fremst að byggjast á siðferðisþreki og manndómi Is- lendinga. Nú eru sannkallaðir skemmdarverkamenn að gereyða miðunum og fiskiveiðunum sem byggt er á. Þjóðin getur snúið við, sýnt fullan þegnskap í allri

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.