Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 47

Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 47
ÓFEIGUR 47 hindra að Vilhjálmur Þór gæti myndað stjórn eftir ná- lega eins árs stjórnleysi hinna æfðu stjórnmála- manna. Stofnendur Framsóknarflokksins studdu ætíð og undir öllum kringumstæðum leiðtoga samvinnu- félaganna í störfum þeirra og sóttu fast á að koma þeim í mannvirðingarstöður utan félaganna, þar sem líkur voru til að þeir gætu unnið þjóðþrifa verk vegna atgervis eða reynslu við úrlausnir vandamála. Eysteinn Jónsson hefir hinsvegar stofnsett Kron og gefið þessu fyrirtæki einskonar einkaumboð á samvinnuverzlun í höfuðstaðnum. Hann hefir á miðjum stríðsárum samið við Ólaf Thors um, að samvinnufélögin skuli greiða há- tekjuskatt af viðskiptum félagsmanna við þeirra eigið félag. Með þessu gaf Eysteinn upp á háskalegasta hátt þann réttargrundvöll, sem samvinnuhreyfingin hefir byggt á alla vörn gegn tvöfaldri skattkúgun síðustu 60 árin. En ofan á allt þetta bætist svo það að þessi mað- ur hefir talið sig þess umkominn að ryðja þýðingarmestu mönnum samvinnufélaganna úr trúnaðarstöðum í þeim félagsskap, sem þeir hafa byggt upp til alþjóðargagns. Fulltrúar sambandsfunda hafa sýnilega ekki áttað sig á þessari innrás. Þeir voru vanir trúnaði og vin- gjarnlegri umhyggju frá stofnendum Framsóknarflokks- ins. Ef til vill kemur sú stund áður en langt um líð- ur, að samvinnumenn vilja miklu heldur hafa Jón Ivars- son, Jón Árnason, Jakob Frímannsson, Vilhjálm Þór og Sigurð Kristinsson til að ráða fram úr félagsmál- um þeirra heldur en manninn sem hefir skapað Kron og lagt stríðsgróðaskatt á skipti félagsmanna í kaup- félögum; manninn, sem hefir fulltrúa kommúnista ætíð sér við hlið, þegar hann er að reyna að ná SlS í hend- ur manna, sem lítt kunna til samvinnustarfa og ætla að nota aðstöðuna í þessum samtökum til persónu- legrar valdastreitu. Ef samvinnumenn láta ryðja sín- um æfðu trúnaðarmönnum úr forstöðu félaganna, þá má segja, að forgöngumenn þessara mála hafi til lít- ils barist. Samvinnuhreyfingin verður þá leiksoppur fá- kænna og léttúðugra spilagosa og hætta að verða líf- taug almennings í daglegri lífsbaráttu. Ný aðstaða í samvinnufélögimum. Framsóknarflokkurinn var réttnefndur samvinnu-

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.