Ófeigur - 15.12.1951, Page 52

Ófeigur - 15.12.1951, Page 52
52 ÖFEIGUR Tómassonar, að menn muni hafa heimsótt ákærðan og drukkið hann fullan, til þess að láta hann svo skýra frá, þótti réttara að hafa tal af konu ákærðs. Hún skýrir svo frá, að þeir Karl Kristensen og Tryggvi Tóm- asson hafi í vor komið í heimsókn til þeirra hjóna að Litla Hólmi í Leiru og fóru að finna Pétur, en hún vissi ekki um erindi. Þeir fóru með Pétri í bíltúr — að hún heldur út í ?? Þegar þeir komu aftur með Pétur, eftir 1—2 tíma, var hann drukkinn, — en hún kveðst ekki hafa athugað hvort þeir voru ölvaðir. Bað hún Pétur að fara inn, en sagði síðan við þá að þeir skyldu hafa sig á burt. Kváðust þeir ekki hafa ætlað að gera Pétri neitt illt, gerður enga grein fyrir erindinu og höfðu sig á burt.“ Þá mætti í réttinum Pétur Pálsson, og er áminntur um sannsögli. Aðspurður, skýrir hann svo frá heim- sókn þeirra Tryggva Tómassonar og Karls Kristensen. Dómarinn sér ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta. Aðspurður, segist hann ekki geta sagt sannara frá en hann hafi gert í réttarprófunum í þessu máli. Hann kveður það aðeins eitt, sem hann óski að taka nánar fram. Hann kveður geta runnið benzín frá aðal benzín- dunknum fram í sogdunkinn og niður, eftir að pípan er slitin, svo lengi sem loftþrýstingurinn í aðal benzín- dunknum er nógur til þess. Hann fortekur og enn fyrir það og kveðst, hvað sem hann kunni að hafa sagt, ekki geta sannara sagt en það, að hvorki Ólafur Jóns- son né aðrir hafi verið í vitorði með sér. Framh. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jónas Jónsson frá Hriflu. Afgreiðsla Landvamar: Laugaveg 7, Reykjavík. Prentað I Steindórsprenti h.f., Tjamargötu 4, Reykjavlk.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.