Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 10

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 10
Náttúrufræðingurinn 10 borðshækkun um 80–90 cm. GPS-mæl- ingar á vatnsborði í vettvangsferðum 24. júlí og 4. ágúst sýna hækkun um 31±5 cm á þessu tímabili. Gera má ráð fyrir að berghlaupsurðin á botni vatnsins sé mettuð vatni og að rúmmál hennar, sem reiknað er út frá rúmmáli vatns sem hún ryður frá sér, sé því ekki sambærilegt við mælingar á rúmmáli jarðlaga sem brotnuðu frá öskjubrúninni við berg- hlaupið né á rúmmáli hlaupurðarinnar á þurru landi ofan vatnsborðsins. Þar sem flatarmál Öskjuvatns er um 11,7 km2 má út frá hækkun botnsins reikna að rúmmál fasts efnis í hlaupurðinni í vatninu (án tillits til grops) sé um 7,5 milljónir m3. Það samvarar um 8,8 millj- ónum m3 af bergi á upptakasvæði berg- hlaupsins (15% grop) en 10,7 milljónum m3 í urðinni þar sem berghlaupið nam staðar á þurru landi (30% grop). Landlíkan frá því fyrir hlaupið sýnir að hlíðin var þá að meðaltali hærri en eftir hlaupið og munar þar samtals um 7,7 milljónum m3 yfir upptakasvæðið og berghlaupsurðina. Landlíkönin sýna mestan hæðarmismun við brún öskj- unnar þar sem hlíðin lækkaði um allt að 120 m. Fremst í hjallanum sem myndað- ist við hlaupið hefur landið hækkað um allt að 90 m. Þegar mat á skriðfletinum er dregið frá mældri landhæð eftir berg- hlaupið fæst rúmmálið 10,3 milljón m3 á þeim jarðlögum sem komust á hreyfingu og staðnæmdust ofan vatnsborðs. Þegar skriðflöturinn (og landhæð fyrir hlaupið neðan hans) er hins vegar dreginn frá mældri landhæð fyrir berghlaupið fæst rúmmálið 18,2 milljón m3 fyrir þau jarð- lög sem féllu úr upptakasvæðinu. Þessar tölur eru talsverðri óvissu háðar vegna þess að skriðflöturinn gæti legið dýpra, og einnig má hugsa sér hærri tengingar við landið neðan meginupptakasvæð- isins. Erfitt er að leggja mat á þessa óvissu en giska má á ±3 milljónir m3. Að teknu tilliti til hlauptungunnar neðan vatnsborðs er heildarrúmmál efnis sem komst á hreyfingu því metið um 21–22 milljónir m3 af berghlaupsurð með 30% gropi en 17,5–18 milljónir m3 af bergi á upptakasvæði berghlaupsins með 15% gropi. Að teknu tilliti til óvissunnar má því segja að rúmmál berghlaups- ins sé um 20 milljón m3 hvort sem litið er til upprunalegra jarðlaga sem komust á hreyfingu eða hlaupurðar á þurru landi, með óvissu upp á nokkrar milljónir m3. Rúmmál berghlaupsins kann að vera meira ef skriðflöturinn hefur legið neðar en eins og áður segir eru ekki um það neinar vísbendingar. Tölur um rúmmál tungunnar í vatninu, 5. mynd. Sprungur við brún Öskju ofan Suðurbotna sumarið 2013 sýna að þar var þá komin hreyfing á jarðlög sem hlupu fram tæpu ári síðar. – Fissures in the mountain above Suðurbotnar in the summer of 2013 show that movement within bedrock had already started some years prior to the rockslide. Ljósm./Photo: Joel Ruch, 25.8. 2013.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.