Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 66

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 66
Náttúrufræðingurinn 66 SKÝRSLA STJÓRNAR HINS ÍSLENSKA NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAGS Á AÐALFUNDI 25. FEBRÚAR 2019 SKIPUN STJÓRNAR Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags var haldinn í Öskju, Háskóla Íslands, hinn 26. febrúar 2018, að loknu fræðsluerindi Guðbjargar Ástu Ólafsdóttur sem bar heitið „Þorskur í þúsund ár. Vistfræði sjávar byggð á fornum þorskbeinum.“ Kjörtímabil fjögurra stjórnarmanna rann út á aðalfund- inum. Þetta voru Árni Hjartarson, formaður, Hafdís Hanna Ægisdóttir, varaformaður, Ester Rut Unnsteinsdóttir, gjald- keri og Jóhann Þórsson, félagsvörður. Auk þess óskaði Hilmar Malmquist eftir því að láta af stjórnarsetu, eftir eitt ár frá kjöri. Árni Hjartarson gaf ekki kost á sér til endurkjörs sem for- maður. Í hans stað var Ester Rut Unnsteinsdóttir kjörin for- maður en á aðalfundi er formaður kosinn sérstaklega lögum samkvæmt. Í stað Hilmars Malmquists var Hrefna Sigur- jónsdóttir kjörin til eins árs. Jóhann Þórsson gaf kost á sér til endurkjörs og var kjörinn til tveggja ára ásamt nýliðunum Sveinborgu Hlíf Gunnarsdóttur og Steinþóri Níelssyni, jarð- fræðingum hjá Íslenskum orkurannsóknum. Skoðunarmenn reikninga voru kjörin þau Þóroddur Þóroddsson og Freydís Vigfúsdóttir. Á fyrsta stjórnarfundi starfsársins skipti stjórnin með sér verkum, öðrum en formannsstarfinu. Stjórnin var því þannig skipuð á starfsárinu 2018: Ester Rut Unnsteinsdóttir formaður, Hrefna Sigurjónsdóttir varaformaður, Margrét Hugadóttir ritari, Steinþór Níelsson gjaldkeri, Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir fræðslustjóri, Jóhann Þórsson félagsvörður og Bryndís Marteinsdóttir meðstjórnandi. STJÓRNARFUNDIR Frá síðasta aðalfundi hefur stjórn haldið 10 reglulega stjórnarfundi, oftast nær í húsnæði Náttúruminjasafns Íslands í Loftskeytastöðinni gömlu á Melunum. Einn óhefð- bundinn fundur var haldinn á öðrum vettvangi. Var þá farið í svokallaða SVÓT-greiningu og mörkuð stefna fyrir stjórn til að efla félagið. Einn stjórnarfundur var haldinn í húsnæði Náttúrufræðistofnunar Íslands í Urriðaholti. FÉLAGSMENN Á aðalfundi félagsins 26. febrúar bættist einn félagi á lista heiðursfélaga HÍN: Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Fjöldi félagsmanna stóð í stað á árinu 2018. Þeir voru 1.161 í árslok 2018 og fækkaði um tvo frá fyrra ári. Nýir félagar voru 20 en 22 hættu – þar af létust 10. Félagatalið hefur verið að sveiflast í kringum 1.200 allt frá aldamótum. Ljóst er að fara þarf í kröftugt átak til að laða fólk að félaginu og fá það til inngöngu. FRÆÐSLUERINDI Fræðslufundir félagsins voru haldnir í stofu 132 í Öskju, Háskóla Íslands. Frá síðasta aðalfundi hafa verið haldnir sex fundir en erindi sem stefnt var að í september og október féllu niður. Aðsókn á þessa fundi hefur farið dvínandi með árunum. Til stóð að halda málþing í stað fræðsluerinda í haust en því var frestað fram á vorið. Eftirfarandi erindi voru haldin: 25. febrúar: Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir. Þorskur í þús- und ár. Vistfræði sjávar byggð á fornum þorskbeinum. 26. mars: Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir. CarbFix. Stein- renning koldíoxíðs og brennisteinsvetnis í basalti. Náttúrufræðingurinn 89 (1–2), bls. 66–68, 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.