Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 26

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 26
Náttúrufræðingurinn 26 gov/ij/ download.html). Notast var við súlutalningaraðferð Arnþórs Garðars- sonar.4–8 Súlur voru flokkaðar í tvo hópa, fugl eða par á hreiðri og fugla sem ekki voru á hreiðri (geldfugl). Notast er við talningareininguna setur, sem er staður þar sem stök súla eða súlupar situr. Staðir sem örugglega eru setnir geldsúlum eru taldir sér- staklega.5 Oftast er setur það sama og hreiður, en í sumum tilfellum getur þó reynst erfitt að greina þar á milli af ljósmyndum.8 Það er augljós kostur við talningar af ljósmyndum að þær veita nákvæmar upplýsingar og auðvelt er að endurtaka athuganir á hlutlægan hátt. Myndirnar veita þó aðeins upplýs- ingar um ástandið á tilteknu augnabliki. Vert er að hafa í huga að varptími súl- unnar er langur og getur staðið frá apríl fram í júlí.5 NIÐURSTÖÐUR NotkuN dróNA Dróninn sem valinn var til rann- sóknarinnar (DJI Phantom 4 Pro+) reyndist mjög meðfærilegur og var ein- falt að stjórna honum. Fyrir utan þjálfun (1 til 2 dagar) til að ná góðum tökum á stjórnun drónans fólst undirbúningur aðallega í að tryggja að rafhlöður væru fullhlaðnar og myndflögur með nægt geymslupláss fyrir áætlaðan fjölda ljós- mynda og myndskeiða. Dróninn var stöðugur á flugi og reyndi mikið á þann eiginleika allan flugtímann því vindur var 4–9 m/s. Flugið gekk almennt vel en samband milli drónans og fjarstýringar- innar rofnaði þó þrisvar í flugi yfir eyj- unni og tvisvar í aðflugi að bátnum, þó aðeins stutt í hvert skipti (10–60 sek.). Sambandsleysi við fjarstýringuna í síð- asta aðfluginu varð til þess að dróninn rakst á loftnet á bátnum og mátti þakka fyrir að hann lenti ekki í sjónum. Við áreksturinn brotnaði hreyfill og hreyfil- festing og var dróninn því óhæfur til flugs eftir þetta þar sem varahlutir voru ekki meðferðis. Frá brottför til heim- komu í Sandgerðishöfn tók leiðangur- inn um sex og hálfa klukkustund, og var siglingartími til og frá Eldey þar af um fjórar klst. Flugferðir drónans tóku 15 og 20 mínútur og var flugtíminn í heild því um 35 mín. Ljósmyndun bjargsins þegar siglt var í kringum eyjuna tók um tvær klst. Myndgæði úr drónanum voru góð (4. mynd B) og auðvelt reyndist að telja súlur af myndunum. Með þessari aðferð var þó ekki hægt að þysja mikið inn í myndirnar þar sem notast var við stillur úr myndskeiðum drónans en ekki ljósmyndir (20 megapixlar). 1. tafla. Talningar á súlu, ritu og fýl í Eldey í júní 2017. Sundurliðaðar tölur fyrir talningu af myndum teknum með dróna. – Counts of gannets, black-legged kittiwakes, and fulmars on Eldey in June 2017. * non breeders Staðseting Location Súlusetur Gannet nest Súla geldfugl Gannet* Rita á hreiðri Kittiwake nest Rita ekki á hreiðri Kittiwake* Fýll Fulmar Þekja / Top 13.857 76 0 0 0 Bjarg / Cliff 1.125 3.104 734 303 95 Heild / Total 14.982 3.180 734 303 95 2. tafla. Súlusetur í Eldey 1953–2013. Talningar byggjast á myndatökum úr flugvél. – An overview of the gannet colony monitoring in Eldey from 1953–2013, based on aerial photographs. * Upplýsingar um nákvæma dagsetningu ekki aðgengilegar. – Information on precise date is not available. Ár Year Dagsetning Date Þekja Top Bjarg Cliff Heild Total Heimildir References 1953 07.07. 12.571 4.317 16.888 5, 9 1961 00.07.* 13.900 4.300 18.200 5, 41 1977 18.06. 11.852 3.694 15.546 5 1983 07.07. 11.415 2.779 14.194 5 1985 22.06. 10.318 1.706 12.024 5 1985 03.08. 11.628 2.903 14.531 5 1989 29.07. 10.823 2.155 12.978 6 1994 15.06. 11.847 2.253 14.100 6 1999 15.06. 12.597 3.433 16.030 7 2006 21.06. 11.751 3.061 14.812 8 2013 16.05. 12.259 2.551 14.810 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.