Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 54

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 54
Náttúrufræðingurinn 54 Fljótsdalsheiði, í ágúst 2008, í um 500 m hæð y.s. Á myndum sem hann tók af Suðurá, suðaustan Svartárvatns í Suður-Þingeyjarsýslu, í um 400 m hæð y.s., virðast vera tætlur af henni, enda er áin dæmigerð lindá. (Upplýs- ingar vantar um aðrar lindár í Ódáða- hraunum, svo sem Grafarlandaá og læki í Herðubreiðarlindum). Auk þeirra fundarstaða af Suður- landi sem þegar er getið fann höfundur tegundina í lindalæk í Brekkuskógi við Brúará í Árnessýslu 2011, og má segja að hún hafi fyllt lækinn með löngum ræmum. Í júní 2019 fundu höfundur og Ágúst H. Bjarnason lækjagörn aftur í Suðurá við Elliðavatn og í Kaldá upp af Hafnarfirði. Samkvæmt þessu yfirliti hefur Tetraspora cylindrica fundist allvíða í lækjum, ám, tjörnum og vötnum í nær öllum landshlutum, frá sjávarmáli upp í um 700 m hæð yfir sjó. Vaxtartíminn er allt sumarið frá júní til október. Það má því til sanns vegar færa sem sagt er í bók höfundar, Veröldin í vatninu 1979,1 að tegundin sé algeng hér á landi, einkum í lindavatni, þar sem hún er iðulega mest áberandi gróður. Spyrja má hvort nokkurs staðar í heiminum sé jafnmikið af henni, enda er óvíða eins mikið um lindavatn og hérlendis. SUMMARY TeTraspora cylindrica iN icelANd The freshwater alga Tetraspora cylindrica (Wahl.) C. Agardh (Tetra- sporales, Chlorophyta) was first recorded from Iceland, with the name Rivularia cylindrica Wahlenberg, by William Jackson Hooker 1811, in his book Journal of a Tour in Iceland in the Summer of 1809, in Hólmsá near Reykja- vík. Since then it has been recorded many times, with different names, most often in streams and lakes with spring-water, which is abundant in the country, from the lowland up to 700 m above sea level. It is extraordinarily different in size, i.e. 0,5–5 mm wide and 2–200 cm long, biggest in pure and cold spring-water, and may then be very conspicuous. It can be confused with Enteromorpha intestinalis, a common sea-shore plant, occasionally found in freshwater. 1. Helgi Hallgrímsson 1979. Veröldin í vatninu. Askur, Reykjavík. 218 bls. 2. John, D.M., Whitton, B.A. & Brook, A.J. 2002. The freshwater algal flora of the British isles. Cambridge University Press, Cambridge 702 bls. 3. Lindau, G. & Melchior, H. 1971/1930. Die Algen. Zweite Abteilung. Zweite Auflage. Kryptogamenflora für Anfänger IV, 2. Springer, Berlín. 302 bls. 4. Agardh, C.A. Systema algarum. Lundi 1824. 312 bls. 5. AlgaeBase. Vefsetur um þörunga. Slóð (skoðað 3.10. 2018): http://www. algaebase.org/ 6. Gunnar Steinn Jónsson, Karl Gunnarsson & Pétur M. Jónasson 2002. Gróður og dýralíf á botni. Bls. 159–176 í: Þingvallavatn. Undraheimur í mótun (ritstj. Pétur M. Jónasson & Páll Hersteinsson). Mál og menning, Reykjavík. 303 bls. 7. Helgi Jónsson 1903. The marine algae of Iceland. III. Chlorophyceae. IV. Cyanophyceae. Botanisk Tidsskrift 25. 337–385. (Tilv. bls. 343–348). 8. Sigurður Pétursson 1948. Íslenzkir vatnaþörungar. Náttúrufræðingurinn 18 (1). 1–8. 9. Hooker, W.J. 1811. Journal of a tour in Iceland in the summer of 1809. I–II. 369 og 406 bls. (Ljósprentun 2. útg. frá 1813, Cambridge University Press, Cambridge 2011.) 10. Mackenzie, G.S. 1811. Travels in the island of Iceland during the summer of the year MDCCCX. Constable, Edinborg. xvii + 491 bls. 11. Hooker, W.J. 2000. Ferð um Ísland 1809. Þýð. Arngrímur Thorlacius. Fósturmold, Reykjavík. 260 bls. 12. Gliemann, T. 1824. Geographische Beschreibung von Island. Hammerich, Altona. viii + 232 bls. 13. Lindsay, L. 1861. The Flora of Iceland. Edinborg. (Sérprent úr The Edinburgh Philosophical Journal 1861(14) , 64–101.) 40 bls. 14. Børgesen, F. 1898. Nogle Ferskvandsalger fra Island. Botanisk Tidsskrift 22. 131–138. 15. Helgi Hallgrímsson 20007. Þörungatal: Skrá yfir vatna- og landþörunga á Íslandi samkvæmt heimildum. Náttúrufræðistofnun Íslands (fjölrit nr. 48), Reykjavík. 16. Gunnar Steinn Jónsson 1980. Benthiske alger i den islandske sø Þingvallavatn. Cand.-scient-ritgerð við Hafnarháskóla. Handrit, 73 bls. (Tilv. bls. 14). 17. Helgi Hallgrímsson 1963. Ferðadagbók af Látraströnd, 16. ágúst 1963. Handrit í vörslu höfundar. 18. Helgi Hallgrímsson 1973. Rannsóknir á svifi í Mývatni og Laxá 1970–1971. Náttúrugripasafnið á Akureyri (fjölrit nr. 4). 150 bls. 19. Helgi Hallgrímsson 1971–1976. Tegundaskrár úr vatnalífssýnum. Frumrit hjá Náttúrufræðistofnun Íslands á Akureyri, afrit í Háskólanum á Hólum, Náttúru- stofu Norðausturlands á Húsavík og hjá höfundi. ÞAKKIR HEIMILDIR Ég þakka Ágústi H. Bjarnasyni, Gunnari Steini Jónssyni, Herði Kristinssyni, Karli Gunnarssyni, Ólöfu Arngrímsdóttur og Skarphéðni G. Þórissyni fyrir yfirlestur greinar, gagnlegar ábendingar og myndir. Helgi Hallgrímsson (f. 1935) er líffræðingur að mennt. Helgi var forstöðumaður Náttúrugripasafnsins á Ak- ureyri í aldarfjórðung og ritstjóri Týlis – tímarits um náttúrufræði og náttúruvernd – í 15 ár. Hann hefur mest fengist við rannsóknir á íslenskum sveppum og vatnalífi og ritað bækur um þau efni; Veröldina í vatninu (1979, 1980), Sveppabókina (2000) og Vallarstjörnur, ein- kennisplöntur Austurlands (2017) auk tveggja bóka um heimahaga sína: Lagarfljót (2005) og Fljótsdal (2016). Helgi er búsettur á Egilsstöðum og fæst við ritstörf og grúsk. UM HÖFUNDINN PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR / AUTHOR'S ADDRESS Helgi Hallgrímsson Lagarási 2 700 Egilsstöðum hhall@simnet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.