Náttúrufræðingurinn - 2019, Side 67
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
67
6. desember: Náttúruminjasafn Íslands bauð félags-
mönnum á sýninguna Vatnið í náttúru Íslands undir
leiðsögn Hilmars Malmquists og Álfheiðar Ingadóttur.
28. janúar. Kári Helgason. Saga stjörnumyndunar
skrásett í bakgrunnsljós alheimsins.
ÚTGÁFA
Frá síðasta aðalfundi hafa komið út tvö tvöföld hefti af
Náttúrufræðingnum – þ.e. 1.–2. og 3.–4. hefti 86. árgangs.
Álfheiður Ingadóttir er ritstjóri tímaritsins en henni til
aðstoðar voru þau Sigmundur Einarsson jarðfræðingur og
Hrefna Berglind Ingólfsdóttir líffræðingur.
Í ritstjórn Náttúrufræðingsins starfa:
Droplaug Ólafsdóttir, dýrafræðingur, formaður,
Esther Ruth Guðmundsdóttir, jarðfræðingur,
Hlynur Óskarsson, vistfræðingur,
Jóhann Þórsson, líffræðingur og fulltrúi stjórnar HÍN,
Óskar Sindri Gíslason, sjávarlíffræðingur,
Tómas Grétar Gunnarsson, dýravistfræðingur,
Þóroddur F. Þóroddsson, jarðfræðingur.
Mörður Árnason er prófarkalesari og
málfarsráðunautur tímaritsins.
Hafdís Hanna Ægisdóttir plöntuvistfræðingur hætti í
ritnefndinni á árinu og er henni þakkað óeigingjarnt starf
í þágu náttúrufræðinga. Jafnframt er Jóhann Þórsson
boðinn velkominn í ritstjórnina.
Öllu þessu fólki er þakkað fyrir þeirra framlag.
NETMIÐLAR
Bryndís Marteinsdóttir hefur umsjón með heimasíðu
félagsins (slóð: www.hin.is). Félagið er einnig með virkar
Facebook- og Instagram-síður. Margrét Hugadóttir hefur
umsjón með samfélagsmiðlum en allir stjórnarmenn bera þar
ritstjórnarábyrgð.
NEFNDIR
Samstarfshópur frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfis-
mála starfar á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Hóp-
inn skipa fulltrúar þrettán félagasamtaka sem leggja áherslu á
umhverfismál og náttúruvernd.
Formaður, Ester Rut Unnsteinsdóttir, er fulltrúi HÍN en
Hólmfríður Sigurðardóttir hjá Fuglavernd er talsmaður og
tengiliður hópsins við ráðuneytið. Hópurinn hefur verið
beðinn um tilnefningar í nefndir og ráð og á fulltrúa í nokkrum
nefndum á vegum ráðuneytisins. HÍN hefur tilnefnt fulltrúa í
eftirfarandi verkefni á sl. starfsári:
1) Kuðungurinn, umhverfisviðurkenning
umhverfis- og auðlindaráðuneytis.
2) Loftslagssjóður.
3) Starfshópur vegna endurskoðunar
laga um mat á umhverfisáhrifum.
4) Samráðshópur sem skal vera svæðisráði til ráðgjafar
við gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum annars
vegar og Austfjörðum hins vegar.
5) Samráðsvettvangur um aðgerðaáætlun í plastmálefnum.
6) Dagur umhverfisins.
7) Íslensku fjölmiðlaverðlaunin.
Náttúruminjasafn Íslands bauð félagsmönnum HÍN á sýningu safnsins, Vatnið í náttúru Íslands 6. desember 2018,
en sýningin var opnuð á fullveldisafmælinu 1. desember. Hilmar Malmquist forstöðumaður safnsins og Álfheiður
Ingadóttir ritstjóri Náttúrufræðingsins leiddu félagsmenn um sýninguna. Ljósm. Margrét Hugadóttir.