Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 40
Náttúrufræðingurinn
40
konar vindmælingar, annars vegar
miðað við meðalvindhraða (lokaðir
hringir) og hins vegar vindhviður (opnir
hringir). Á Skógaheiði er stormurinn í
heild sýndur til vinstri og síðan hvass-
asti hluti hans til hægri og þá miðað
við mestu hviður. Athyglisvert er
hvað stormarnir á Hólsfjöllum dreif-
ast mikið, enda er rakastig að aukast á
meðan á þeim stendur, æ meiri vind þarf
til að hreyfa við kornunum. Við um 28
m/s í Skógastorminum beygir kúrfan af,
sem gefur til kynna að loftið hafi mett-
ast af foki, þ.e. að ekki gat hlaðist meira
af fokefnum í loftmassann enda þótt
vindstyrkur hefði aukist. Hugsanlega er
þetta eina mælingin sem náðst hefur við
náttúrulegar aðstæður og sýnir þetta
fyrirbrigði. Flæðið hefur náð rúmlega
6.000 kg/m/klst. en en ekki leið á löngu
þar til vindur minnkaði á ný.
Mælingar með fokstautum gefa
þröskuldsvindhraðann til kynna með
skýrum hætti. Hann hækkar með vax-
andi rakastigi. Spannir fyrir þröskulds-
vindhraða helstu yfirborðsgerða eru
sýndar á 5. mynd. Þröskuldsvindhraði
er lægstur þar sem fer saman vel þurrt
yfirborð og fínn sandur og silt í yfir-
borði, til dæmis á flæðum, jafnvel allt
niður í 4/m (mældur í 2 m hæð). Mik-
inn vind þarf til að hreyfa kornin þar
sem yfirborðið er orðið gróft, svo sem á
melum, jafnvel yfir 20 m/s. Upplýsingar
af þessu tagi eru mikilvægar fyrir gerð
líkana af mögulegu sandfoki við mis-
munandi aðstæður.
Langmest efni fýkur næst jörðu þar
sem kornin skokka með vindinum en
skella á yfirborðið þess á milli. Eftir því
sem ofar dregur minnkar flæðið, en efst
tekur svifrykið við. Á 6. mynd gefur að
líta graf sem sýnir dæmigerð gögn fyrir
hlutfallslegt magn fokefna eftir hæð.
Þarna eru gögn frá fimm gildrum. Sú
neðsta er í 10 cm hæð, sú næsta í 30
cm hæð en efsta gildran er í 150 cm
hæð. Fyrir hver 100 g efnis sem koma í
neðstu gildruna (10 cm, punktur niðri til
hægri) koma um 30 g í gildruna í 30 cm
hæð en um 13 g í gildruna í 60 cm hæð.
Hratt fall kúrfunnar gefur til kynna
hvar skokkhreyfing korna er ráðandi. Í
efstu gildruna í 150 cm hæð (punktur
efst til vinstri) berast bæði svifefni og
skokkefni, en innan við 10% af því efn-
ismagni sem berst í neðstu gildruna.
Skokkhreyfing korna nær mun hærra
hér á landi en almennt gerist erlendis
vegna þess hve miklum styrk vindur
nær hér, en einnig vegna þess að kornin
eru oft hrjúf og sum þeirra eru tiltölu-
lega eðlislétt.
Hlutfall flutnings eftir hæð (þ.e.
lögun kúrfunnar á 6. mynd) helst yfir-
leitt svipað á hverjum stað óháð vind-
styrk og rakastigi.24 Það hefur verið
vandamál við mælingar á sandfoki hér-
lendis að neðstu gildrurnar fyllast oft
í einum stormi þar sem yfirborðið er
óstöðugt. Þar sem hæðarkúrfan er þekkt
getur gripgildra sem sett er frekar ofar-
lega og fyllist því ekki (t.d. í 1 m hæð)
gefið fullnægjandi upplýsingar um fok,
raunar yfir langt tímabil þar sem sand-
byljir eru tíðir. Þetta nýttu Elín Fjóla
Þórarinsdóttir o.fl. sér við rannsóknir á
Heklusvæðinu,25,28 þar sem gildrur voru
settar upp á 31 stað yfir tvö sumur (7.
mynd). Með þessari aðferð var hægt að
fá góða yfirlitsmynd af sandflutningi á
víðfeðmu svæði. Rannsóknirnar sýndu
að vatnsflutningur efnis inn á svæðið
og innan þess er lykilatriði fyrir rof-
ferli á svæðinu. Upplýsingar sem þessar
eru mikilvæg undirstaða fyrir skipulag
árangursríkra landgræðsluaðgerða.
Staður / Location kg/m/klst / kg/m/hr kg/ár / kg/yr Athugasemdir / Comments Heimild / Source
Landeyjasandur 160–280 >10.000* Mælt við 11 m/s vind / 11 m/s wind 23
Geitasandur, sandmelur 120–320 Mælt í þrjú sumur / over 3 summers 24
Geitasandur, sandur 300–670 Mælt í þrjú sumur / over 3 summers 24
Hólsfjöll, moldir 5–>300 >500 Tvö sumur, fremur kyrrlát / two summers 24
Hagavatn, sandur/sandhraun >1.000 >10.000* Við 17 m/s vind / at 17 m/s, 23
Hekla, sandur 2.000–3.000 Mjög virkt sandsvæði, tvö sumur
/ very active surface; two summers
25
Hekla, sandur 500–1.000 Meðalvirk svæði, tvö sumur
/ medium aeolian activity; two summers
25
Hekla, sandur 100–500 Minna virk svæði, tvö sumur
/ Less active surface; two summers
25
Hekla, vikur og gróf gjóska 2–20 Gróf efni í yfirborði (vikur), tvö sumur
/ Pumice surface; two summers
25
Skógaheiði, Eyjafjallagjóska 1.000–6.000 >10.000 Stormur í um sólarhring / one storm 26
2. tafla. Mælingar sandfoks á ýmsum stöðum á landinu. Vindhraði í 2 m hæð.
– Sandflux measured at various locations in Iceland. All wind speeds at 2 m height.
* Áætlað miðað við niðurstöður úr stökum mælingum og Fryrear-mælingum yfir löng tímabil.
– Estimated by combining Sensit and Fryrear dust trap data.