Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 57

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 57
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 57 skriðið upp úr baðkarinu á gólfinu. Meðal athyglisverðustu gripanna eru tvö geirfuglsegg og tveir stórir glans- andi skápar úr harðviði sem forðum hýstu hluta af einstöku eggjasafni Johns Wolleys, merktir „Newton safnið, Oo- theca Wolleyana, Nr. 1“. Þetta hús er eitt af furðukamesum tuttugustu og fyrstu aldar, að hætti Oles Worms (1588–1654) sem lagði grunninn að Dýrafræðisafninu í Kaupmannahöfn fyrir rúmlega 350 árum og átti sjálfur lifandi geirfugl sem var handsamaður í Færeyjum. Innvols furðukames Full- ers, segi ég við sjálfan mig, er þver- snið af Viktoríutímanum sem John Wolley bjó við, minnisvarði um stór- veldisdrauma sem ekki eru lengur á dagskrá, samsafn hluta sem samtíminn kepptist við að ramma inn í vistarverum sínum, sýnishorn úr lífheimi fjarlægra slóða.6 Á táningsárunum tók Fuller að venja komur sínar í forngripaverslanir, „junk“-búðir og á uppboð. Um þetta leyti var mikið framboð á dóti frá Vikt- oríutímanum sem heillaði hann og það kostaði ekki mikið. Smátt og smátt jók hann við safn sitt. Stundum var hann heppinn í samningum. „Fylgdu mér,“ segir Fuller og við göngum um húsið. Hann lýsir fyrir mér því sem hann kýs að vekja athygli á og því sem ég rek sérstaklega augun í og þarf að spyrja um. Við förum okkur hægt; flestir munirnir eru markverðir og skrautlegir og þarfnast skýringa. Við nemum staðar hjá geirfuglseggjunum. Fyrirfram hafði ég ekki ímyndað mér að hér væru fágæt egg útdauðrar fugla- tegundar sem veiðimenn og safnarar slógust um fyrr á öldum. Umbúðirnar eru hátíðlegar, í anda Viktoríutímans, en varla í samræmi við kröfur nútíma nátt- úrufræðisafna. Annað eggið er í skúffu í lítilli kommóðu. Fuller dregur út skúff- una og sýnir mér stoltur stórt eggið án þess að snerta það. Það er rökkur í herberginu en líkt og skært ljós beinist að egginu þegar skúffan er opnuð, eins og kastara sé beint að því til að vekja athygli á gerseminni og sveipa hana helgi og ljóma. Þetta er í annað sinn sem ég sé geirfuglsegg; áður hafði ég séð sýningu Náttúruminjasafns Íslands og Ólafar Nordal, með geirfugli og eggi, í Safnahúsinu árið 2016. Ég er jafnforvit- inn og fyrr, furða mig á stærð eggsins, lit þess og lögun og leiði hugann að lífi sem hefði getað kviknað og dafnað eins og til var stofnað. Ég kann ekki við að snerta eggið, líklega fremur af virðingu við gripinn en ótta við að valda skemmdum. SJÁLFMENNTAÐUR FUGLA- FRÆÐINGUR OG LISTMÁLARI Eftir drykklanga stund smokrum við Fuller okkur niður í sófa í miðju safn- inu, innan um alls konar dót, drekkum kaffisopa og berum saman bækur okkar um áhuga okkar á fuglum, einkum geir- fuglum, og fólkinu sem eltist við þá. Ég er nýliði í fuglaheiminum en Fuller man varla annað. Hann hefur frá mörgu að segja og ég set segulbandið í gang. Fljótlega birtist persónan á bak við safn- Errol Fuller heldur á bókinni sem hann skrifaði með David Attenborough. Ljósm. Gísli Pálsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.