Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2019, Side 44

Náttúrufræðingurinn - 2019, Side 44
Náttúrufræðingurinn 44 9. mynd. Áfoksgeirinn á Hólsfjöllum til vinstri á innrauðri gervihnattamynd. Hann var stöðvaður í Öxarfirði 1954. Til hægri: Moldir á svæði þar sem áfoksgeiri gekk yfir gróið land á Hólsfjöllum. Gróðurinn er dauður en ennþá fjúka moldirnar. Myndin er tekin 1993. Nú er þarna stórgrýttur melur með öllu ófær ökutæki á borð við jeppann. – Left: Infrared satellite image of the advancing sandfront Hólsfjöll in NE Iceland. The advancement was halted in 1954. Right: Soil remnants in an area where an advancing sandfront (áfoksgeiri) has stripped the vegetation and soil cover in the area. The vegetation is dead, but some soil materials remain. The area is now covered with rocky surface with limited vegetation, the soil on the picture taken 1993 has been blown away. Ljósm./Photo: Ólafur Arnalds. Ummerki um áfoksgeira eru æði víða á hálendinu. Gamall áfoksgeiri gengur til dæmis norður eftir Eyvindarstaða- heiði austan Blöndu (8. mynd), en upp- tök sandsins eru mun sunnar. Á þessum slóðum hagar svo til að vatnsrof getur flutt gróf jarðvegsefni í lægðir, jafn- vel þurrkað upp tjarnir, og þá verða til uppsprettur áfoksefna sem vindur getur gert að áfoksgeira. Á Blöndusvæðinu eru nýir áfoksgeirar sem hafa myndast eftir að Blöndulón myndaðist.31,32 Vatnsborðið er sveiflukennt og lægst er í lóninu á vorin, en Blanda ber jökulgor út í lónið. Áfoksgeirar hafa myndast á nokkrum stöðum við norðanvert vatnið. Sand- dreif er nú á um 1 km2 í fjörum og eyjum lónsins, en mest verður fokið í nokkrum stormum sem ná meira en 20 m/s.43 SANDLEIÐIR Við kortlagningu jarðvegsrofs 1991– 1997, ekki síst við rannsóknir á Mývatns- öræfum og í Ódáðahrauni og sunnan Langjökuls,40,44 varð ljóst að sandur getur fokið afar langar leiðir hér á landi – að upptök sandfoks geta verið víðs- fjarri þeim stað þar sem það veldur tjóni á hverjum tíma. Ódáðahraun var mikið til gróið áður en sandur lagðist yfir ein- hvern tíma á miðöldum, en gjóskufall hafði einnig mikil áhrif, ekki síst öfl- ugt þeytigos í Bárðarbungu um 1480.44 Sandleiðir í Ódáðahrauni eru trúlega tugir kílómetra að lengd en þær eru lítið rannsakaðar. Gott dæmi um sandleið er við suðurjaðar Langjökuls að Rót- arsandi (10. mynd), um 16 km leið. LOKAORÐ Sandauðnir eru sannarlega mikil- vægur þáttur í náttúru Íslands. Sand- fok hefur verið mælt víða á landinu og smám saman hefur byggst upp heildar- mynd af sandfokinu. Sandfok stuðlar sums staðar að eyðingu gróðurlenda, meðal annars með myndun áfoksgeira, og veldur því að landið „fer í sand“. Sem betur fer hefur tekist að stöðva helstu áfoksgeira landsins, svo sem í Landsveit, á Rangárvöllum, í Öxarfirði, við Dimmuborgir, á Mývatnsöræfum, á Haukadalsheiði og víðar. Miklu skiptir að efla gróður landsins á þeim svæðum sem eru viðkvæmust fyrir sandfoki og þá sérstaklega þar sem gætir flóða í jökulám og þar sem má vænta gjóskufalls, ekki síst í Rangár- þingi, Skaftafellssýslum og Þingeyjar- sýslum. Á þeim svæðum er mikilvægt að mynda og efla frægjöfula birkiskóga og annan gróður með markvissum aðgerðum. Þetta kallar á breytta sýn á landnýtingu á viðkvæmustu svæðunum, sem tvímælalaust ætti að friða fyrir beit. Sandauðnir landsins eru einstakar á heimsvísu. Þar kemur til sérstaða þeirra sem stærstu basaltauðnanna, gríðarlegt sandflæði og uppfok, það að þær eru stærstu auðnir utan þurra eyðimarka

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.