Náttúrufræðingurinn - 2019, Side 52
Náttúrufræðingurinn
52
Næst er tegundin skráð hjá Gliemann
(1824), með sama nafni: „nach Hooker,
ganz allgemein in frischem Wasser; (ist
Gastridium cylindricum Lyngb.).“12 Hann
getur þarna um enn eitt fræðinafn á
lækjagörn, sem höfundur hefur ekki séð
í öðrum heimildum. Þessi nafnafjöldi
gefur til kynna sérstöðu tegundarinnar.
William Lauder Lindsay (1861)
reyndi að endurmeta eldri plöntu-
lista frá Íslandi. Hann skráði plöntuna
fyrst héðan með núgildu fræðinafni,
Tetraspora cylindrica Ag. Hann hefur
það eftir „prófessor Harvey“ að hann
eigi íslenskt eintak af tegundinni. Það
hafi bjargast af safni Hookers, því að ein-
takið var í vasabók hans.13Hjá Børgesen
í Botanisk Tidsskrift 1899 er tegundin
skráð sem T. cylindrica Ag., og fylgir eft-
irfarandi skýring ásamt teikningu:
Synes at være meget almindelig
paa Island. Som allerede Wahlen-
bergs Fig 1a [nm.: „G. Wahlenberg:
Flora lapponica, pag. 509, tab. 30,
fig 19“] viser, smalner Thallus mod
basis ind til en tynd Stilk, der ender
i en noget bredere, flad Hæfteskive.
Hosstaaende Figur viser en svagt
forstørret Gengivelse heraf. Thallus er
særdeles sejg og fast. Lat. cell. 14 µ.
Thingvallavatn; Rauðilækir; Apavatn;
Úlfljótsvatn.14
Børgesen skráir líka Tetraspora bull-
osa Ag. frá „Sælulæk“, án skýringa. Næst
liggur að halda að átt sé við Monostroma
bullosum (Roth.) Wittr., fjörutegund
sem finna má í ferskvatni, til dæmis í
Bretlandi, en hefur ekki verið staðfest
hér. (Var þó tekin í Þörungatal höfundar
2007.)15 Hún er belglaga í fyrstu og
frumur oft fjórar í þyrpingum, líkt og hjá
Tetraspora, en jaðra alveg saman. Sam-
kvæmt AlgaeBase5 er T. bullosa afbrigði
af lækjagörn og kallast nú Tetraspora
cylindrica var. bullosa C. Mayer. Lýsingu
vantar á því. – Ekki er ljóst hvar Sælu-
lækur er.
Lækjagörn er síðan ekki skráð hér-
lendis fyrr en í grein Sigurðar Péturs-
sonar í Náttúrufræðingnum 1948. Þar
ritar hann:
Tetraspora hefur fundizt á þremur
stöðum, í uppsprettum við Gvendar-
brunna (júní), læk hjá Möðrudal (júlí)
og í Flosagjá á Þingvöllum (júlí).
Myndaði þörungurinn fastvaxna,
mjög langa, hlaupkennda þræði. Í
læknum hjá Möðrudal bar mjög á
þráðum þessum, og voru þeir því nær
eini gróðurinn, sem í honum fannst.
Alls staðar virtist vera um tegundina
Tetraspora cylindrica að ræða.
Sigurður birtir smásjármynd af
lækjagörn úr Gvendarbrunnum sem
sýnir að greiningin er rétt.8 Gvendar-
brunnar eru nálægt upphaflega fundar-
staðnum í Suðurá.
Minnst er á lækjagörn í prófritgerð
Gunnars Steins Jónssonar við Kaup-
mannahafnarháskóla um botnþörunga
í Þingvallavatni. Þar segir: „Findes nær
overfladen, sparsom til meget sparsom.
Artens vigtigste voksested i søen er ved
kilder der fremspringer ved vandets
overflade.“16 Síðan er tegundin skráð
í ýmsum greinum Gunnars Steins um
Þingvallavatn, síðast í ritgerð hans o.fl.
sem fyrr var getið, í hinni miklu bók um
Þingvallavatn, 2002.6 Þar eru henni gerð
skil á heilli síðu, sem áður var vitnað til,
ásamt ljósmynd Karls Gunnarssonar af
plöntunni og teikningu hans af æxlun-
arferli hennar. Þá hefur Bretinn Chris F.
Carter tekið myndir af henni við Snæ-
fellsjökul, í júlí 2011, og birt á vefsetrinu
AlgaeBase.5
EIGIN ATHUGANIR O.FL.
Sumarið 1953 taldi höfundur sig
finna T. cylindrica á Droplaugarstöðum í
Fljótsdal, bæði í Lagarfljóti og í lygnum
vikum í Hrafnsgerðisá í 100 og 500 m
hæð y.s. Voru þræðirnir allt að 20 cm á
lengd. Næstu heimild er að finna í ferða-
dagbók höfundar frá Látraströnd við
Eyjafjörð í ágúst 1963. Þar er þetta ritað:
Skammt fyrir innan eyðibýlið
Miðhús rákumst við á merkilegan læk,
með mjög miklum þörungagróðri. Við
nánari athugun kom í ljós að lækur
þessi rennur úr tveimur tjörnum, sem
aftur myndast úr fjölmörgum smá-
sprænum, sem koma úr lindum í
smágrjóthólum sem þarna eru. Í tjörn-
unum var ríkulegur þörungagróður,
og sérlega áberandi langar tægjur af
Tetraspora, líkastar mjóum görnum
að lögun. Einnig var þarna mikið af
Spirogyra sp. (gormþörungi).17
Æxlunarferill lækjagarnar. – Reproductive cycle of Tetraspora.
Teikning/Drawing: Karl Gunnarsson.6
Rýriskipting
Meiosis
Frjóvgun
Fertilisation
Æxlunarferill lækjargarnar / Reproductive cycle of Tetraspora.
(Teikning / Drawing: Karl Gunnarsson)
Vor/Spring Vetur/Winter Haust/Autumn