Fréttablaðið - 28.08.2019, Blaðsíða 9
Kolefnisfótsporið við að flytja lambahryggi 17.197 km leið
Viðtal við mig birtist í Frétta-blaðinu 9. ágúst síðastliðinn vegna einkalóðar minnar að
Aðalstræti 12b á Akureyri. Minja-
stofnun bannar mér að að grafa fyrir
tveggja hæða húsi sem má rísa þar
samkvæmt skipulagi og þar af leiðir
að ég get ekki einu sinni selt lóðina.
Það er bagalegt þar sem á lóðinni hvíl-
ir veð fyrir nokkurra milljóna skuld,
sem fyrirtækið H. Hallgríms ehf.
stendur fyrir sem eigandi að lóðinni.
Íslandsbanki, sem veðið á, hefur
eðlilega ekki ótakmarkaða bið-
lund eftir greiðslu og trúi ég að hún
sé nánast á enda. Minjastofnun
stöðvar framkvæmdir á lóðinni á
þeim forsendum að þar séu mögu-
lega fornleifar. Þar eigi ég að borga
uppgröft samkvæmt tölvupósti frá
Ármanni Guðmundssyni fornleifa-
fræðingi sem gróf stóran tilrauna-
skurð í lóðina með mínu leyfi. Síðar
sendi hann mér fyrrgreindan tölvu-
póst um kostnað upp á eina milljón
kr., sem ég ætti að borga vegna frekari
uppgraftrar og á auðvitað ekki til.
Þar sem ég frétti aldrei hvað
komið hefði út úr tilraunauppgreftr-
inum hringdi ég fyrir nokkru í téðan
Ármann og spurði hvað hefði komið
út úr fornleifauppgreftrinum í lóð
minni. Svarið var: „Það fannst ekk-
ert og getur verið að ekki hafi verið
grafið á réttum stað.“ Svo mörg voru
þau orð. Ég vil vitna í greinargerð í 12
liðum frá Jóni Hjaltasyni sagnfræð-
ingi, sem skrifað hefur sögu Akur-
eyrar allt frá árinu 1860, en í tólfta
lið greinargerðarinnar segir hann:
„Niðurstaðan er því sú að ég er 99,9%
viss um að á lóðinni Aðalstræti 12b
finnast engar fornleifar sama hversu
ítarlega væri leitað og grafið.“ Að
lokum vil ég minnast á bókina Akur-
eyri – Fjaran og Innbærinn, bygg-
ingarsaga sem Hjörleifur Stefánsson
sá um hönnun og uppsetningu á en
þar er hvergi getið um leyndar forn-
minjar. Ætti sá merki maður að hafa
nokkuð til síns máls. Sterklega má því
álykta að hér fari Minjastofnun offari
og vill vegar.
Daginn eftir viðtalið við mig, þann
10. ágúst, birtist lítil grein einnig í
þessu blaði með yfirskriftinni „Ráðu-
neytið búið að svara Hjörleifi“, eignuð
frú Lilju, ráðherra mennta- og menn-
ingarmála. Greinin inniheldur gamalt
stef, sem kunnuglegt er úr bréfi sem
ég fékk frá ráðuneytinu þar sem vísað
var til þess að ég geti fengið lán til að
kosta uppgröft úr lóðinni. Það var án
röksemda og bara apað upp úr bréfi
frá Minjastofnun, sem hagar sér eins
og ríki í ríkinu. Það sækir að mér
depurð yfir því að frú Lilja ráðherra
gefi sér ekki tíma til að fara efnislega
yfir málið því hún er sá ráðherra sem
borið hefur af í þessari ríkisstjórn
fyrir dugnað og afköst og gert góða
hluti fyrir menntun og menningu.
Ef ég missi lóðina telja fróðir menn
að ég muni verða af um 15-20 millj-
ónum eftir aðstæðum, hvernig byggt
yrði, og þar í liggja of miklir fjármunir
til að tapast fyrir ellilífeyrisþega.
Sagan sönn um eignarlóðina á Akureyri
Gerum kröfu um að allt
kjöt sé upprunamerkt og
þessu nýsjálenska kjöti
verði ekki umpakkað og selt
sem íslenskt, í raun þannig
smyglað inn á markaðinn.
Hjörleifur
Hallgríms
Herbertsson
Nú hafa menn áróðurs og græðgi afrekað það að flytja lambakjöt frá Nýja-Sjálandi
til Íslands yfir hálfan hnöttinn. Hér
kjöftuðu upp skortstöðu þeir Ólafur
Stephensen og Andrés Magnússon og
landbúnaðarráðherra gaf þeim fyrir-
heit um að við þessu yrði brugðist,
fyrirheit sem hann varð að hætta
við og svíkja þá um, hvað eftirgjöf
á tollum varðar. Málið strandaði
í ríkisstjórninni. Mikið er talað
um matarsóun, kolefnisfótspor og
að bjarga jörðinni frá ofhitnun og
dauða. Við eigum á Íslandi einstaka
auðlind í villibráð sem gengur í guðs-
grænni náttúrunni allt sumarið,
blessuð lömbin, og flest heimili vilja
alls ekki að lambakjöt sé flutt hingað
erlendis frá og bændurnir eru gæslu-
menn byggðanna og gera þær blóm-
legar. Íslenskir bændur þjóna sínum
neytendum einstaklega vel með heil-
brigðar matvörur og margir segja að
hvergi í veröldinni setjist fjölskyldan
að jafn öruggu matborði og hér. Nú
auglýsir verslun ein frosna hryggi frá
Nýja-Sjálandi komna alla þessa leið,
að ríkið fái 40% af þessu gamla kjöti
í sinn hlut.
Ég vil biðja ágætan umhverfisráð-
herra, Guðmund Inga Guðbrands-
son, að reikna út kolefnisfótsporið
af því að flytja hingað 100 tonn af
lambakjöti frá Nýja-Sjálandi sem
mun enn fremur valda matarsóun.
Ég veit og finn að íslenskir neyt-
endur kæra sig ekki um þetta stríð
og biðja um íslenskt lamb á diskinn
sinn. Þarna eru gerð hastarleg mistök
og kaupmenn hringinn í kringum
landið munu ekki vilja selja annað en
íslenska lambið. Ég skora á bændur,
neytendur, kaupmenn og sláturleyf-
ishafa að hefja þegar undirbúning að
samvinnu til að svona gerist aldrei
aftur. Gerum kröfu um að allt kjöt
sé upprunamerkt og þessu nýsjá-
lenska kjöti verði ekki umpakkað
og selt sem íslenskt, í raun þannig
smyglað inn á markaðinn. Ég bið
umhverfisráðherra að blanda sér í
þessa umræðu og láta reikna út kol-
efnissporið af svona gerræði.
Guðni
Ágústsson
fyrrverandi
ráðherra
Það var án röksemda og
bara apað upp úr bréfi frá
Minjastofnun, sem hagar sér
eins og ríki í ríkinu.
RANGE ROVER SPORT
HSE Dynamic 3.0 SDV6
Nýskr. 1/2016, ekinn 58 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 10.890.000 kr.
Rnr. 103888 .
JAGUAR F-PACE R sport
Nýskr. 6/2017, ekinn 60 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 7.990.000 kr.
Rnr. 153725.
BMW M2
Nýskr. 2/2017, ekinn 21 þús. km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð 9.890.000 kr.
Rnr. 420140.
LAND ROVER
Discovery 5 HSE
Nýskr. 8/2018, ekinn 9 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 12.990.000 kr.
Rnr. 145994.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
LAND ROVER Discovery 5
HSE Luxury 3.0 TDV6
Nýskr. 6/2017, ekinn 57 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 12.290.000. kr.
Rnr. 420196.
RANGE ROVER VELAR S
Nýskr. 2/2019, ekinn 2 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 11.290.000 kr.
Rnr. 420114.
AUDI SQ5 TDI
Nýskr. 5/2015, ekinn 54 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.890.000 kr.
Rnr. 420171.
RANGE ROVER Evoque HSE
Nýskr. 5/2016, ekinn 41 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.380.000 kr.
Rnr. 450020.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
3
7
9
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
5
x
2
0
2
8
á
g
ú
s
t
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 2 8 . Á G Ú S T 2 0 1 9
2
8
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
5
-9
B
E
8
2
3
A
5
-9
A
A
C
2
3
A
5
-9
9
7
0
2
3
A
5
-9
8
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K