Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Page 2
2 12. júlí 2019FRÉTTIR staðir til að heimsækja sem Hollywood gerði fræga Kirkjufell Kirkjufell við Grundarfjörð spilaði stóra rullu í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones og var talað um það sem fjallið sem líktist örvaroddi. Fjallið varð í kjölfarið eitt frægasta fjall landsins og leggja margir leið sína á Snæ- fellsnes til þess eins að berja það augum. Reyðarfjörður Önnur perla á Austurlandi er Reyðarfjörður en það var breska spennuþáttaröðin Fortitude sem kom bænum á kortið. Fortitude var tekin upp bæði á Reyðarfirði og á Bret- landi og náði að endurspegla þá drungalegu náttúrufegurð sem er að finna víðs vegar um Ísland. Grjótagjá Annar staður sem varð gríðarvinsæll eftir að Game of Thrones fór í sýningar, nánar til tekið fimmti þáttur í þriðju þáttaröð, var Grjótagjá við Mývatn. Aðalsöguhetjan Jon Snow naut þar ásta með Yrgitte en í fyrra komst hellir- inn í fréttir vegna slæmrar umgengni gesta. Seyðisfjarðarvegur Eitt fallegasta atriðið í kvik- myndinni The Secret Life of Walter Mitty, sem var að stórum hluta tekin upp á Íslandi, var þegar að Walter Mitty, leikinn af Ben Stiller, renndi sér á lang- bretti niður Seyðisfjarðarveg á Austurlandi. Svínafellsjökul Skærasta stjarnan er þó óumdeilanlega Svínafellsjökull í vestanverðum Vatnajökli sem hefur veitt mörgum listamann- inum innblástur. Meðal kvik- mynda sem hafa verið teknar þar upp eru Batman Begins og Interstellar, en einnig mátti sjá jöklinum bregða fyrir í Game of Thrones. Á þessum degi, 12. júlí 1543 – Henry VIII Englandskonungur giftist Catherine Parr, sjöttu og síðustu eiginkonu sinni, sem lifði hann og giftist aftur. 1954 – Hinn 19 ára gamli Elvis Presley skrifaði undir samning við Sun Records- -útgáfufyrirtækið og sagði jafnframt upp dagvinnustarfi sínu. 1962 – Rolling Stones kemur fram í fyrsta sinn í Marquee-klúbbnum í London. 1998 – Úrslitaleikur heimsmeistara- móts karla í knattspyrnu, Frakkland vinnur Brasilíu 3-0. 2005 – Albert Mónakóprins tekur við furstatign að afloknu þriggja mánaða sorgartímabili eftir andlát föður hans, Rainers, og viku eftir að hafa gengist við óskilgetnum syni sínum. Síðustu orðin Skammastu þín! Þú skalt ekki dirfast að biðja Guð um að hjálpa mér!“ – Leikkonan Joan Crawford öskr- aði á húshjálp sína, sem bað við dánarbeð hennar. S kotinn John MacPhee hjólaði ríflega 1.300 kíló- metra umhverfis Ísland á innan við 57 klukkustund- um til styrktar góðgerðasamtök- um sem hafa það að markmiði að rannsaka og finna lækningu við Parkinsonsjúkdómnum. Parkinson er taugahrörnunar- sjúkdómur sem hefur áhrif á þær taugafrumur heilans sem stjórna hreyfingu. Algeng einkenni sjúk- dómsins tengjast því hreyfingu og geta birst sem skjálfti, vöðva- stífleiki og hægar hreyfingum. Einkenni eru þó mjög persónu- bundin. Engin lækning er til við sjúkdómnum sem ógnar þó ekki lífi sjúklingsins. Hins vegar geta einkenni sjúkdómsins verið afar hamlandi og skert lífsgæði mikið. John MacPhee greindist með Parkinson fyrir sjö árum. John var þá á fimmtugsaldri, en flestir greinast ekki með sjúkdóminn fyrr en á sjötugsaldri. John var hluti af 10 manna hjólreiðaliði, og glímir helmingur liðsmanna við sjúkdóminn. Liðið kom saman á Íslandi til að taka þátt í WOW Cyclothon, stærstu hjólreiða- keppni Íslands sem fór fram 26.– 29. júní. Liðin í WOW Cyclothon höfðu alls 72 klukkutíma til að ljúka keppninni og því telst tími Johns og félaga bara nokkuð góður, 56 klukkustundir og 57 mínútur. „Íslandsævintýri Parkinson of- urteymisins var erfiðasta og lær- dómsríkasta áskorun sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Ákafinn í keppninni reyndi mikið á kepp- endur, ekki bara á hjólreiða- hæfileika þeirra heldur líka á lík- amlegan og andlegan styrk,“ sagði John í samtali við skoska vefmiðil- inn STV News „Nú þegar keppninni er lokið þá upplifir maður ótal tilfinningar, allt frá sæluvímu yfir í örvæntingu yfir að þolrauninni sé lokið og að liðsmenn muni líklega aldrei hittast aftur.“ Liðsmenn komu víða að, frá Skotlandi, Írlandi, Íslandi, Kanada og jafnvel Mön. „Hjólreiðarnar sjálfar voru æðislegar. Eftirminnilegasta stundin var klukkan þrjú um nóttina, aðfaranótt föstudags. Þá var veðrið hryllilegt og komið að mér að hjóla. Ég hjólaði af mikl- um krafti í um hálftíma upp bratta fjallshlíð í miklum mótvindi og fékk á mig öflugar vindhviður á hlið.. Þegar ég var kominn upp hlíðina þurfti ég að fara í gegnum tæplega tveggja kílómetra löng göng. Mig verkjaði mikið í fæturna en eftir göngin lá leiðin niður á við. Að komast yfir þessa hæð var al- gjör hápunktur.“ Samtökin sem John hjólaði meðal annars til styrktar voru stofnuð af leikaranum Michael J. Fox og er markmið þeirra að styðja við og styrkja rannsóknir á Parkin- sonsjúkdómnum og finna lækn- ingu við honum. Samtökin heita í höfuðið af leikaranum en hann greindist með Parkinson fyrir um tuttugu árum. SKOSKUR PARKISONSJÚKLINGUR HJÓLAÐI HRINGINN Í KRINGUM ÍSLAND„Að komast yfir þessa hæð var algjör hápunktur“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.