Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 12
12 12. júlí 2019FRÉTTIR
Ég er í hræðilegri stöðu
Purushottam Ghimire, frá Nepal,
hefur búið og starfað á Íslandi
frá 2014. Hefur hann að jafnaði
fengið atvinnu- og dvalarleyfi á
grundvelli starfsmannaskorts.
Hann freistaði þess að fá dval-
arleyfi fyrir eiginkonu sína en
rak sig þá á vegg í kerfinu. Dval-
arleyfið hans fól ekki í sér rétt
til fjölskyldusameiningar, svo
Útlendingastofnun ráðlagði hon-
um að sækja um leyfi á grund-
velli sérfræðiþekkingar. Þá gæti
kona hans flutt til Íslands. Það
kom honum svo í opna skjöldu
þegar umsókn hans var hafn-
að. Hann sótti aftur um á sömu
forsendum og áður, en var aft-
ur hafnað því starfið sem hann
hugðist taka að sér hafði ekki
verið auglýst á EES-svæðinu.
EES -búar hefðu forgang og
auk þess væri ekki hægt að veita
atvinnuleyfi á grundvelli starfs-
mannaskorts þegar atvinnuleysi
á Íslandi væri jafn mikið og nú.
Puru er því atvinnulaus og er
mál hans hjá lögmanni í áfrýjun-
arferli. Til að ná endum saman
sótti hann um atvinnuleysisbæt-
ur, en var greint frá því að hann
hefði ekki rétt til þeirra því at-
vinnuleyfi hans væri tímabundið.
Var honum bent á að leita á náðir
sveitarfélags síns, sem hann og
gerði. Umsókn hans um fjár-
hagsaðstoð var samþykkt og
allt virtist í lagi. Þar til lög-
maður hans greindi hon-
um frá því að með því að
þiggja fjárhagsaðstoð,
gæti hann glatað rétti sín-
um til varanlegs dvalar-
leyfis. Hann hefur búið á
Íslandi í fimm ár og greitt
sína skatta. Nú er hann
peningalaus, með engin
réttindi og á yfir höfði sér
að vera rekinn úr landi.
„Ég er í hræðilegri stöðu
og fæ hvergi aðstoð. Til
hvers að borga skatta
hér í fjölda ára?
Ef ég væri
hælisleit-
andi
þá er ég viss um að ég væri í betri
stöðu, þeir fá allavega húsnæði
og framfærslu. Ég vil bara vinna
og eiga ofan í mig, en ég má það
ekki og fæ enga aðstoð. Þetta er
hryllileg staða. Ég þarf að borga
lögmanni mínum til að geta
áfrýjað málinu mínu, hvernig á
ég að borga ef ég má ekki þiggja
fjárhagsaðstoð?“
Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum
SVEFNSÓFI PIU YARIS SVEFNSÓFI
Verð nú 369.900 kr. Verð nú 154.900 kr.
„GERÐI ÉG EITTHVAÐ RANGT?
TÓK ÉG STARFIÐ ÞITT?“
n Slæm staða innflytjenda n Stjórnvöld vanrækja leiðbeiningarskyldu
T
veir innflytjendur, Purus-
hottam Ghimire og Momo
Hayashi, hafa búið á Ís-
landi um árabil. Þau koma
bæði frá ríkjum utan Evrópska
efnahagssvæðisins og hefur báð-
um verið synjað um atvinnuleyfi
og gert að yfirgefa landið. Lög-
fræðingurinn Hreiðar Eiríksson
telur ástæðu til að hafa áhyggjur
af því hvernig staðið er að málum
innflytjenda á Íslandi.
Erla Dóra
erladora@dv.is Leyfinu hafnað
Momo Hayashi, frá Japan, flutti
til Íslands fyrir fjórum árum.
Hún nam íslensku í háskóla,
stofnaði fyrirtæki og starfaði á
ferðaskrifstofu. Hún sótti um at-
vinnuleyfi á grundvelli sérfræði-
þekkingar í desember, meðmæli
vinnuveitanda fygldu með þar
sem sérfræðiþekking hennar var
tilgreind; góð þekking á tungu-
málum þar á meðal íslensku og
japönsku, og mikil þekking á
asískri menningu. Leyfinu var
hafnað á þeim grundvelli að inn-
an EES-svæðisins væri hægt að
finna einstaklinga með sömu
sérfræðiþekkingu sem ættu for-
gang í starfið. Var Momo þá ráð-
lagt að sækja um á grundvelli
skorts á starfsfólki.
„Ég prófaði það en síðan
hafnaði Vinnumálastofnun um-
sókninni aftur vegna þess að það
eru margir Íslendingar atvinnu-
lausir. […] Ég hringdi vikulega
í Útlendingastofnun og Vinnu-
málastofnun til að spyrja hvern-
ig gengi með dvalarleyfið, en
þau sögðu mér í símanum alltaf
að það væri í vinnslu og allt liti
vel út. Sjö mánuðum síðar, allt í
einu: nei, það gengur ekki af því
að þú ert ekki evrópsk og vegna
atvinnuástandsins. Af hverju var
þá umsókn mín móttekin? Af
hverju sögðu þau að það gengi
vel? Mig langar að spyrja ykkur.
Gerði ég eitthvað rangt? Tók ég
starfið þitt? Ætti ég að biðja ein-
hverja Íslendinga að giftast mér
og gerast húsmóðir? Eða ætti ég
fara til míns „heima“lands?“
B
laðamaður hafði samband
við Hreiðar Eiríksson, lög-
fræðing og fyrrverandi
forstöðumann leyfasviðs
Útlendingastofnunar. Hann segir
að víða sé pottur brotinn í málum
innflytjenda á Íslandi.
„Ég hef aðeins verið að aðstoða
innflytjendur sem eiga í vandræð-
um með kerfið. Mér finnst þetta
vera að aukast, eins og þetta horf-
ir við mér. Þegar eitthvað kemur
upp á um grundvöll dvalarleyfis,
eins og þegar fólk missir vinnuna
eða lendir í vandræðum varðandi
formið, þá er eins og það sé þekk-
ingarleysi á kerfinu og stjórnsýsl-
unni sem er að valda þeim erfið-
leikum.“
Ófullnægjandi upplýsingar
Hreiðar segir að útlendingar
sem leiti til stjórnvalda, sé það
Útlendingastofnun eða aðrir, þá
fái þeir oft ófullnægjandi eða mis-
vísandi leiðbeiningar og lendi svo
í ógöngum þegar þeir reyni að fara
eftir þeim. „Fólk er jafnvel kom-
ið í brottvísunarferli því það fer
einhvern veginn út af réttu spori
bara við að fara að leiðbeiningum
stjórnvalds. Til að uppfylla leið-
beiningarskyldu sína í góðri trú,
verður að mínu mati, að ganga alla
leið og upplýsa aðila um hvernig
réttarstaða manna getur breyst
við að fara tiltekna leið. Sérstak-
lega ber þeim að gæta þess þegar
ljóst er að viðkomandi á erfitt með
að skilja stöðuna, eins og til dæm-
is þegar upplýsingarnar eru hrein-
lega ekki aðgengilegar á þeirra
tungumáli.“
Sífellt fleiri lenda í vandræðum
Sífellt fleiri innflytjendur hafa sam-
band við Hreiðar: „Út af þeirri stöðu
sem það er komið í allt í einu, að
því er mér finnst, algerlega af tilefn-
islausu út af einhverri harðneskju í
kerfinu.“
Útlendingastofnun gefur sér sex
mánaða svigrúm til að afgreiða
umsóknir sem henni berast. Aftur á
móti býðst útlendingum að greiða
tugi þúsunda fyrir flýtimeðferð og
styttist biðin þá niður í mánuð. „Ef
það er hægt að afgreiða það í flýti-
meðferð þá hlýtur að vera hægt
að afgreiða það á eðlilegum tíma.
Það á ekki að vera hægt að kaupa
sig fram fyrir aðra í röðinni. Fyrir
utan það að þegar einn kaupir sig
fram fyrir annan, þá þarf hinn að
bíða lengur. Ég hef nú satt að segja
bara mjög miklar áhyggjur af því á
hvaða vegferð menn eru með þessi
innflytjendamál almennt. Fram-
kvæmdin á þessum lögum er mér
töluvert undrunarefni.“ n
Mynd: Skjáskot af Facebook
HARÐNESKJA Í KERFINU