Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 14
14 UMRÆÐA
Sandkorn
12. júlí 2019
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Valið í höndum morðingjans
Þ
að hlýtur að vera versti
sársauki sem foreldri getur
upplifað að missa barn. Að
horfa á eftir barni sínu er
það er fært rólega í kassa niður í
jörðina. Það á enginn að þurfa að
upplifa. En það gerist og einhvern
veginn heldur fólk lífinu áfram, en
sársaukinn fer ekki neitt. Börn geta
jú dáið eins og við fullorðna fólkið.
Þau geta orðið lífshættulega veik
og lífsljós þeirra slokknað. Þau
geta verið á röngum stað á röng-
um tíma, mislesið aðstæður og
hætt sér út á umferðargötu án þess
að líta til beggja hliða. Þau geta líka
farið frá okkur án nokkurra hald-
bærra skýringa.
Helgi í Góu lýsir því mjög vel
í átakanlegu viðtali við DV hve
djúpt sá sársauki að missa barn
ristir. Barnið hans Helga varð ekki
veikt. Það mislas ekki aðstæður.
Það gerði ekkert rangt. Sonur hans
var myrtur á hrottafenginn hátt af
manni sem var sjúkur af ástsýki
í garð unnustu fórnarlambsins.
Morðinginn skipulagði morðið,
hugsaði lengi um það og lét síðan
til skarar skríða. Aðkoman var
hræðileg. Ólýsanlegt áfall fyrir alla
fjölskylduna.
Fregnir bárust af því fyrir stuttu
að morðingi sonar Helga væri
búinn að skrá sig á stefnumótafor-
ritið Tinder. Þá hafði frést af hon-
um á vappi í Hafnarfirði. Hann
virðist því hafa fengið valkosti
um hvernig hann lyki afplánun
á þeim sextán ára fangelsisdómi
sem hann fékk fyrir að myrða son
Helga. Hugsanlega er hann und-
ir rafrænu eftirliti eða á áfanga-
heimili. Við vitum það ekki. Eina
sem við vitum er að hann fékk
þennan valkost. En sonur Helga
fékk engan valkost. Og fjölskylda
fórnar lambsins fær ekki valkost
um hvort hún vilji hitta kvalara
sonar síns eður ei.
Helgi er ómyrkur í máli í sam-
tali við DV varðandi refsingu
morðingjans, eða skort þar á öllu
heldur. Telur hann að sá sem sé
fær um að framkvæma slíkan glæp
þurfi að taka afleiðingunum, sem
eru víðtækar og hafa snert alla í
fjölskyldu fórnarlambsins, og ef-
laust alla í fjölskyldu gerandans
einnig. Því séu nokkur ár í fangelsi
ekki nóg.
Lengd refsinga og dómar al-
mennt eru viðkvæmt málefni. Þar
takast á mismunandi sjónarmið
um mannréttindi og rétt fanga til
að lifa mannsæmandi lífi eftir iðr-
un og betrun. Spurningin er sið-
ferðisleg og umræðan tilfinninga-
þrungin. Skiljanlega. Það má samt
ekki horfa framhjá gereyðingunni
sem verður þegar slíkur glæpur
er framinn, líkt og í tilfelli Helga í
Góu. Það má ekki horfa framhjá
réttindum aðstandenda. Réttur
gerandans má ekki trompa rétt
óbeinna fórnarlamba hans.
Það er óhjákvæmilegt að hafa
samúð með Helga og hans fjöl-
skyldu. Ég get ekki ímyndað mér
þann ótta að geta hugsanlega
rambað á morðingja barns míns
á förnum vegi. Ég myndi vilja fá
valkostinn. Geta sagst aldrei vilja
sjá þennan mann aftur. Því mið-
ur er valkosturinn ekki minn – val-
ið liggur allt í höndum morðingj-
ans. n
„Hver sem hefur samræði
eða önnur kynferðismök við
mann án samþykkis hans
gerist sekur um nauðgun “
segir í hegningarlögum. Stund-
in greindi frá því á mánu-
dag að maður hefði játað hjá
lögreglu að hafa haft enda-
þarmsmök við 17 ára kærustu
sína á meðan hún var sofandi,
og játaði hann þar að auki að
vita vel að hún væri mótfall-
in slíkum samförum. Þessi
atvikalýsing hljómar eins og
klippt og skorin sakfelling fyrir
nauðgun, en svo reyndist ekki
vera. Hvorki lögregla né ríkis-
saksóknari töldu tilefni til að
taka málið til rannsóknar þar
sem maðurinn hefði ekki ver-
ið að játa ásetningsbrot því
hann sagðist hafa verið sofandi
þegar hann framdi ódæðið.
Þessi niðurstaða er kjaftshögg
fyrir brotaþola nær og fjær og
skilaboðin til samfélagsins eru
ógnvekjandi: „Viltu komast upp
með kynferðisbrot? Ekki ör-
vænta! Segðu bara að þú hafir
verið sofandi.“
Spurning vikunnar Stefnir í nýtt efnahagshrun á Íslandi?
„Ég hef ekki trú á því, ekki á
næstunni. Það er svo mikil gróska í öllu.“
Sigurður Atli Atlason
„Jú. Er ekki alveg soldið langt síðan
síðasta var?“
Berglind Egilsdóttir
Nei, ekki
alveg eins og síðast,
kannski bara smá.“
Stefanía Stefánsdóttir
„Guð,
ég veit það ekki.“
Erlingur Ari Jónsson
„Já,
ég held það.“
Trölli Rögnvaldur
Grýluson
Viltu komast upp með
kynferðisbrot?
Dýrkeypt redding?
Minnst tólf börn smituðust af
e.coli eftir heimsókn á bæinn
Efstadal II í Blá-
skógabyggð. Á bæn-
um geta gestir keypt
sér mjólkurís og
klappað kálfum. Af
þessum 12 börn-
um hafa þrjú veikst
alvarlega. Eigendur eru miður
sín yfir málinu Þeir lokuðu á
aðgang að dýrunum og stöðv-
uðu framleiðslu. Veitingastaðn-
um var þó ekki lokað, og áfram
er tekið á móti gestum og sögðu
eigendur að ekki væri hættu-
legt að sækja bæinn heim. Sótt-
varna- og landlæknir hafa gefið
út að grunur leiki á að smitið
hafi borist með ísnum, en gæti
líka hafa borist með snertingu
við kálfana. Af hverju var staðn-
um ekki lokað? Til hvers að taka
sénsinn, á að fleiri börn veikist
alvarlega. Hagnaðartap af því að
loka í vikur eða tvær getur ekki
mögulega vegið þyngra en líf og
heilsa þeirra barna sem sækja
bæinn heim. Tökum ekki sénsa
með börnin okkar, hlutirnir
reddast nefnilega ekki alltaf.
„Réttur gerand-
ans má ekki
trompa rétt óbeinna
fórnarlamba hans
Leiðari
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
MYND: EYÞÓR/DV
Skrafað og skeggrætt Miðbær Reykja-
víkur iðar af mannlífi þessa löngu sumardaga.