Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 20
20 PRESSAN 12. júlí 2019
Regnskógar Amazon minnka um
einn fótboltavöll á hverri mínútu
n Eyðing skóganna aukist mikið eftir að Jair Bolsonaro tók við sem forseti Brasilíu
n Embættismenn telja að eyðingin sé enn meiri en stjórnvöld vilja viðurkenna
A
mazon- regnskógarnir,
sem eru þeir stærstu í
heimi, eru ómissandi við
söfnun kolefnis og til að
hægja á loftslagsbreytingum. Hátt
settur brasilískur embættismað-
ur hefur sagt frá því óopinberlega
að ríkisstjórnin hvetji til eyðingar
skóganna. Þar er á hverri mínútu
rutt svæði sem samsvarar einum
fótboltavelli, samkvæmt gervi-
hnattagögnum. Nýr hægri sinn-
aður forseti Brasilíu hefur meiri
áhuga á framkvæmdum en því að
vernda náttúruna og hefur eyðing
regnskóganna aukist síðan hann
tók við völdum.
Yfirleitt eru notaðar jarðýtur,
annaðhvort þannig að ýtt er á trjá-
stofnana með þeim afleiðingum
að ræturnar fylgja með, eða með
því að strengja keðju á milli tveggja
véla og ryðja trjánum úr veginum.
Á stóru svæði sem nýlega hefur
verið rutt fundust risastór tré liggj-
andi á jörðinni, laufin voru enn-
þá græn og jarðvegurinn sviðnaði
í sólinni. Timbrið verður svo fjar-
lægt, annaðhvort til að selja það
eða brenna, og jarðvegurinn verð-
ur undirbúinn fyrir landbúnað.
Á öðrum svæðum ryðja
skógarhöggsmenn, sem stunda
ólöglegt skógarhögg, brautir í
gegnum skóginn til þess að kom-
ast að þeim trjám sem sérstaklega
gott verð fæst fyrir.
Hvaða afleiðingar hefur þetta
fyrir skóginn?
Gervihnattamyndir sýna mikla
aukningu í eyðingu skógarins á
fyrri hluta þessa árs, síðan Jair Bol-
sonaro tók við sem forseti Bras-
ilíu, en landið hefur yfirráð yfir
meirihluta Amazon-svæðisins.
Nýjustu rannsóknir sýna að á síð-
ustu tveimur mánuðum hefur
gríðarstórt svæði verið rutt, einn
hektari lands er ruddur á hverri
mínútu.
Að sögn embættismanna er að-
alástæða hins mikla skógarhöggs
sú, að verið er að ryðja ný svæði
sem nýta á sem beitiland fyrir
nautgripi. Á síðasta áratug tókst
yfir völdum, með sérstökum að-
gerðum og sektum, að draga veru-
lega úr eyðingu skóganna. Málin
hafa breyst í valdatíð Bolsonaro
og ráðherra hans, þeir hafa gagn-
rýnt þær sektir sem beitt var af
fyrri ríkisstjórn og dregið úr að-
gerðum sem áttu að hamla gegn
skógarhöggi.
Af hverju skiptir þetta máli?
Í skógunum eru milljarðar trjáa og
í þeim er bundið gríðarlegt magn
kolefnis. Á hverju ári taka lauf
trjánna í regnskógunum í sig mik-
ið magn koltvísýrings, sem myndi
annars vera í andrúmsloftinu og
hafa áhrif á hækkun hitastigs í
heiminum.
Lífríki regnskóganna er afar
fjölbreytt, í þeim er að finna um
það bil einn tíunda af öllum plönt-
um og dýrum jarðarinnar. Í skóg-
unum býr einnig um ein milljón
frumbyggja, sem veiða og safna
plöntum inni á milli trjánna.
Hvað þýðir þessi nýja stefna
Brasilíu?
Bolsonaro komst til valda með
popúlískri stefnu og með stuðn-
ingi frá landbúnaðarfyrirtækjum
og bændum, sem margir hverjir
eru á þeirri skoðun að of stór hluti
Amazon-svæðisins sé verndaður
og að umhverfissinnar hafi of mik-
il völd. Hann hefur sagt að hann
vilji að lög sem vernda skógana
fái minna gildi og hefur ráðist að
opinberum starfsmönnum sem
sinna verndun trjánna.
Þetta hefur orðið til þess að
þeim sem starfa við umhverfis-
vernd líður eins og þeir séu óvin-
ir Amazon, þegar raunin er sú að
þetta er fólkið sem vinnur að því
að vernda vistfræðilega framtíð
landsins.
Brasilískir embættismenn telja
að skógareyðingin sé enn meiri
en brasilísk stjórnvöld vilja viður-
kenna. Ráðherrar íhuga að ráða
sjálfstæðan verktaka til að vinna úr
gervihnattamyndunum af svæð-
inu, og draga þannig úr trúverðug-
leika stofnunarinnar sem nú ber
ábyrgð á þeim málum.
Nú líður að lokum regn-
tímabilsins og þar sem skógarhögg
fer fram á þurrkatímum óttast
embættismennirnir að nú muni
eyðing skóganna gerast enn hrað-
ar. Ástandið gæti jafnvel verið
enn verra en talið hefur verið þar
sem þau svæði sem síðast voru
rudd hafa enn ekki verið mynduð.
Embættismennirnir segja að fólk
verði að fá að vita hvað sé að ger-
ast vegna þess að þeir þurfi banda-
menn í baráttu sinni gegn eyðingu
regnskóganna.
Hvað segir ríkisstjórnin?
Fyrr á þessu ári bauð Bolsonaro
forseta Bandaríkjanna í samstarf
um að nýta auðlindir Amazon.
Í síðasta mánuði sagði Ricardo
Salles, umhverfisráðherra Bras-
ilíu, í viðtali að það ætti að verð-
launa landeigendur fyrir verndun
skóganna og að þróaðar þjóðir eigi
að borga reikninginn.
Viðbrögð ríkistjórnarinnar við
því, þegar umheimurinn kallar
eftir því að bjarga þurfi skógunum,
eru hörð. Ráðgjafi forsetans sagði í
viðtali við Bloomberg að það væri
þvæla að Amazon væri hluti af arf-
leifð heimsins: „Amazon er hluti
af Brasilíu og Bralilía á að takast
á við arfleifð landins og á það að
vera Brasilíu til hagsbóta.“
Áratugum saman hafa sam-
tök bænda haldið því fram að þau
svæði skóganna sem vernduð eru,
þar á meðal þau svæði sem hýsa
frumbyggjana, standi í vegi fyrir
þróun landsins og sköpun starfa.
Fulltrúi einna bændasamtakanna
sagði í viðtali að önnur lönd hefðu
rutt skóga til að rýma fyrir land-
búnaði en nú vildu þessi lönd ekki
að Brasilía gerði slíkt hið sama.
Vanderly Wegner segir að
Bandaríkin og Evrópa, sem kaupi
vörur frá Amazon-svæðinu, hafi
ekki nálægt því eins strangar regl-
ur um verndun skóga, og það séu
hvort eð er ekki miklir skógar eftir
í Evrópu. Hann segir að það þurfi
að þróa Amazon-svæðið og að það
sé réttur fólksins sem þar býr að
svæðið sé þróað. n
Hræðileg þróun Amazon-regnskógarnir,
sem eru þeir stærstu í heimi, eru ómissandi
við söfnun kolefnis og til að hægja á
loftslagsbreytingnum.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Umdeildur Jair Bolsonaro.