Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Qupperneq 23
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ Gæðavörur sem henta öllum Ryno Power vörurnar hafa verið framleiddar eftir ströngustu gæðakröfum í Banda ríkjunum í 10 ár. Við framleiðslu Ryno Power varanna er lögð mikil áhersla á náttúruleg óerfðabreytt hráefni til þess að tryggja að útkoman sé ekkert nema hágæða fæðubótarefni, hvort heldur er fyrir afreksmenn og konur í íþróttum eða meðaljóninn sem fer nokkrum sinnum í ræktina í hverri viku. Mikið er lagt upp úr að nota hrein og náttúruleg efni, en Ryno Power vörurnar eru glúteinlausar og án allra uppfylli- og aukaefna. Ryno Power var upphaflega stofnað af Ryan McCarthy og Ryan Hughes, en sá síðarnefndi er margverðlaunaður af- reksíþróttamaður og heims meistari í mótorkrossi. Vörurnar eru því þróaðar af afreksfólki sem hefur sjálft verið að æfa og keppa og þekkir vel af eigin raun mikilvægi þess að hugsa vel um líkamann og næringuna sem hann fær, sérstaklega undir álagi. Ryno Power vörurnar hafa lengi verið tengdar þolíþróttum eins og hjólasporti, sundi, hlaupi, mótorkrossi og crossfit. Það er ekki að ástæðu- lausu þar sem vörurnar eru þróaðar með langtímaáreynslu og úthald í huga. „Ryno Power vörurnar inni- halda mörg grunnefni sem líkaminn þarf á álagstímum. Þær hjálpa fólki að halda lengur út og veita styrk til þess að gera það rétt og vel og fara vel með líkamann á meðan. Þetta hjálpar því líka fólki sem þarf að þola mikið álag í vinnunni eða í daglegu amstri. Það er staðreynd að líkaminn virkar einfaldlega betur undir álagi þegar hann fær góða næringu, og þó svo þú borðir hollan og fjölbreytt- an mat þá koma álagstímar þar sem fæðubótarefni hjálpa og Ryno Power er líklega eitt það besta sem þú getur fengið á markaðnum í dag,“ segir Pálmi Blængsson, eigandi Ryno Power á Íslandi. Þú fellur ekki á lyfjaprófi með Ryno Power Framleiðendur Ryno Power passa sérstaklega að vörurnar séu algjörlega lausar við efni sem geta fellt íþróttamenn á lyfjaprófi. Ryno Power hefur í gegnum árin styrkt á annað hundrað afreksmenn og konur í íþróttum og uppskorið 100% árangur að því leyti að allir sem hafa farið í lyfjapróf hafa staðist prófið. Hentar líka meðaljóni Ryno Power vörurnar henta bæði afreksfólki í íþróttum og meðal- jóninum sem fer reglulega í ræktina. „Við skiptum vörunum gróflega í þrjá flokka. Fyrsti flokkurinn er vör- ur sem þú tekur áður en þú ferð á æfingu. Þetta eru drykkir eða hand- hægar töflur sem innihalda m.a. náttúrulegt og óerfðabreytt koffín, guarana og rhodiola sem gefa þér kraft og einbeitingu til að takast á við æfinguna. Næst koma vörur sem þú notar á meðan æfingu stendur, eða þegar þú ert undir álagi. Þetta eru drykkir og/eða töflur sem innihalda orku, ýmiss konar næringarefni eins glútamín, amínósýrur, sölt, steinefni og electrolytes sem hjálpa líkamanum að starfa af skilvirkni undir álagi á meðan æfingu stendur. Svo koma vörur sem þú notar eftir æfingu sem innihalda hágæða próteinblöndu, amínósýrur, glútamín og fleira til þess að hjálpa líkamanum að jafna sig eftir átök. Þetta getur m.a. minnkað strengi og stirðleika dagana á eftir og líkaminn verður fyrr tilbúinn til þess að takast á við næstu æfingu.“ Fyrir æfingu: Til að koma þér af stað og gefa þér kraft og einbeitingu. Á meðan: Inniheldur efni sem hjálpa líkamanum að starfa rétt undir álagi. Eftir: Recovery-drykkir sem hjálpa líkamanum að jafna sig. „Langvinsælasta varan okkar er svo Hydration Fuel, en þar færðu nær alla þessa virkni í einum drykk sem þú getur drukkið fyrir, á meðan og eftir æfingu. Hydration Fuel gefur þér orku og fyllir á þau efni sem líkaminn tapar með svita og við áreynslu og það besta er að hann hentar öllum, líka yngri íþróttamönnum, þar sem hann inniheldur ekkert koffín og eingöngu náttúrleg hráefni.“ 40% sumarafsláttur Ryno Power á Íslandi fæst eingöngu í vefversluninni Rynopower.is. „Við opnuðum netverslunina í maí og fengum svo frábærar viðtökur að við pöntuðum strax stærri sendingu þar sem við fengum vörurnar á betra verði. Því ákváðum við að bjóða upp á sérstakt sumartilboð. Allar vörurnar frá Ryno Power verða á 40% afslætti og auk þess með frírri heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu út júlí,“ segir Pálmi. Nánari upplýsingar má nálgast á Rynopower.is. „Fyrir allar frekari upplýsingar þá er hægt að senda okkur póst á rynopower@rynopower.is eða senda fyrirspurn í gegnum Face- booksíðuna okkar: RynoPowerIce Instagram: Rynopower_Iceland RYNO POWER:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.