Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Side 28
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Leiðandi í öryggismálum
VÖRN ÖRYGGISKERFI:
Vörn öryggiskerfi var stofnað árið 2008 af Jóni Á. Hermannssyni og hefur
síðan vaxið og dafnað og er í dag í
viðskiptum við 1200 fyrirtæki auk
fjölda heimila. Átta manna teymi sér
um sölu og uppsetningu á mynda
vélum um allt land.
„Vörn hefur frá upphafi lagt mikla
áherslu á alls kyns tækninýjungar
og erum við ávallt með nýjasta og
besta búnaðinn frá heimsþekktum
framleiðendum. Við vorum með
þeim fyrstu sem buðu uppá þann
möguleika að skoða myndavélar í
gegnum síma,“ segir Jón Ágúst. „Við
erum með vörumerkið Dahua og
bjóðum upp á 4k myndavélar sem
eru 8 megapixla með nýrri gerð af
nætursjón sem heitir Starvis. Hún
virkar þannig að myndin verður ekki
svarthvít að nóttu til, hún heldur lit
og þannig er auðveldara að greina
einstaklinga í miklu myrkri. Og 4k
myndavélar eru það besta sem hægt
er að fá í dag í almennum vélum, en
þær eru samt á viðráðanlegu verði.
Vélarnar henta vel bæði fyrir fyrir
tæki og heimili.“
Fyrirtæki geta leitað tilboða, „við
setjum upp og þjónustum stærri sem
smærri fyrirtæki.“
Snjalltæknin vinsælust í dag
Snjalltæknin er í boði hjá Vörn og
langflestir eru að snjallvæðast. „Það
er gríðarlega vinsælt, það vilja allir
geta haft stjórn á hlutunum í gegnum
símann,“ segir Jón Ágúst. „Þú getur
skoðað myndavélarnar í gegnum
símann, getur kveikt og slökkt á þjófa
vörninni, kaffivélinni, heita pottinum í
sumarbústaðnum svo dæmi sé tekið,
það er hægt að gera allt með þessu
kerfi í dag. Ef þú ert með þjófavörn
og myndavélakerfi þá ertu fljótur að
sjá í símanum hvað er að gerast, þú
ert fljótari en öryggisfyrirtækið er að
hringja í þig. Þannig getur þú sparað
þér stórar upphæðir í vöktun.
Við erum leiðandi í tækni nýjungum
í öryggismálum og verslum við bestu
fyrirtæki í heimi. Þjónustustöðin okkar
er í Reykjavík, en við setjum upp
öryggiskerfi um allt land.“
Gæðaeftirlitskerfi fyrir útgerðar-
fyrirtæki
Fyrir útgerðarfyrirtæki býður Vörn
upp á gæðaeftirlitskerfi og er það
komið upp hjá mörgum fyrirtækjum
og er framarlega þar, sem dæmi
má nefna Þorbjörn í Grindavík, GPG
Seafood og Fiskmarkað Íslands.
„Þessi fyrirtæki og fleiri nota mynda
vélakerfi sem gæðaeftirlitskerfi fyrir
fiskvinnsluna og fleira, enda geta
öryggismyndavélar hjálpað til við
margt.“
Myndavélakerfi – vörn gegn einelti
og skemmdarverkum í skólum
„Vörn hefur sett upp myndavélakerfi
í fjölmarga skóla á höfuðborgar
svæðinu og hefur það reynst gott
vopn í baráttunni gegn einelti.
Skemmdarverk á skólalóðum geta
kostað mikla fjármuni og eru nánast
úr sögunni þegar myndavélar eru til
staðar,“ segir Jón Ágúst.
Allar upplýsingar um Vörn örygg-
iskerfi má fá í síma 561-5600, net-
fanginu vorn@vorn.is og á heima-
síðunni www.vorn.is.