Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Page 29
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Hollur og svalandi gosdrykkur
með magnaða sögu
KOMBUCHA TVEGGJA ÁRA:
Kombucha Iceland er nú mörg-um orðinn kunnugur svala-drykkur og má segja að hann sé
kominn til að vera á meðal íslenskra
neytenda. „Við hvetjum þá sem hafa
ekki enn kynnt sér kombucha ein-
dregið til að gera það. Segja má að
kombucha sé meira en bara drykkur,
en að baki honum liggur löng saga.
Drykkurinn hefur marga góða eigin-
leika og Kombucha Iceland er eins lítið
sætt og við komumst upp með, enda
er drykkurinn hollur að eðlisfari og
engin ástæða til þess að sæta hann
um of og gera hann þannig óhollan,“
segir Manuel Plasencia Gutiérrez,
annar eigenda Kombucha Iceland og
framkvæmdastjóri Kúbalúbra ehf.
Þann 14. ágúst næstkomandi held-
ur Kombucha Iceland upp á tveggja
ára afmæli sitt og býður kombucha-
-unnendum að fagna með sér.
Áhugasömum er bent á að fylgjast
með Kombucha Iceland á Facebook.
Dularfullur heilsudrykkur með heill-
andi sögu
Fyrir þá sem ekki vita er kombucha
stórmerkilegur svaladrykkur. Um
er að ræða gerjaðan tedrykk sem
kemur líklega frá Asíu til forna. „Helsta
vísbendingin um uppruna drykkj-
arins er að hann er bruggaður úr
telaufum sem eru upprunnin frá því
landsvæði,“ segir Manuel. Fjölmargar
frásagnir eru til um að kombucha
hafi hjálpað til við að laga ýmsa
líkamlega og andlega kvilla. „Ég er
fyrst og fremst vísindamaður og set
ekki fram neinar staðhæfingar um
heilsufarslegan ávinning kombucha,
en get þó sagt að drykkurinn hefur
hjálpað til við meltingarvandamál
hjá mér persónulega. Kombucha er
ógerilsneyddur, eins og við fram-
leiðum hann, sem þýðir að í honum
er að finna mikið af góðum gerlum
sem hafa góð áhrif á þarmaflóruna.
Einnig hefur kombucha jafn góð áhrif
á líkamann og te, enda er drykkurinn
í grunninn unninn úr te. Þetta er það
eina sem ég get staðhæft um heilsu-
áhrif kombucha, því annað er óstað-
fest af vísindasamfélaginu,“ segir
Manuel.
Það er ekki seinna vænna að
skipta út næringarsnauðu sykurgos-
inu fyrir hollt og svalandi kombucha.
Kombucha Iceland kemur í mörgum
spennandi bragðtegundum sem eru
hver annarri betri; krækiber, glóaldin,
engifer, jarðarber, rabarbara-vanilla,
original, mynta, krækingifer og fljót-
lega koma nýjar bragðtegundir!
Hvernig verður kombucha til?
Kombucha Iceland er lagað með því
að brugga lífrænt, sætt te. Næst
er teið gerjað í allt að sex vikur með
örveruþyrpingu sem kallast scoby
(Symbiotic Colony of Bacteria and
Yeast). Scoby étur upp sykurinn, vök-
vinn gerjast og kombucha-drykkurinn
verður til. Notaðir eru ferskir ávextir
til að bragðbæta og bæta við nær-
ingargildið, síðan er hann gerjaður í
annað sinn í flöskunni. Þá myndast
létt kolsýra í drykknum. „Kombucha
er súr drykkur sem minnir eilítið á
edik. Sumir þurfa að venjast bragð-
inu fyrst, en þeir sem komast upp
á bragðið elska kombucha til ævi-
loka enda er drykkurinn svalandi og
bragðgóður,“ segir Manuel.
Fjölskyldufyrirtæki sem er annt um
náttúruna
Kombucha Iceland er lítið fjölskyldu-
fyrirtæki rekið af hjónunum Manuel
Plasencia Gutierrez og Rögnu Björk
Guðbrandsdóttur. „Þegar mikið
liggur við hjálpa fjölskyldumeðlimir
og vinir til. Við byrjuðum að fram-
leiða kombucha fyrir tveimur árum
og fyrst var aðeins hægt að fá það
á krana hjá fáeinum aðilum. Þá gat
fólk komið með eigin flösku og fyllt á. Í
dag er hægt að fá Kombucha Iceland
á krana hjá Frú Laugu í Laugardal,
Sólir jóga úti á Granda, Mamma
veit best í Kópavogi og nú nýlega í
Litlu Hönnunarbúðinni í Hafnafirði.
Þetta er umhverfisvænn og ódýrari
kostur. Fólk mætir með eigin flöskur
og minnkar því sóun á umbúðum.
Einnig gerum við margar tilraunir
með bragðsamsetningu og koma
þær tilraunir fyrst á krana. Ef það
bragð heppnast vel og fólk er hrifið,
þá setjum við bragðið á flöskur. Við
erum meðlimir í Kombucha Brewers
International, sem eru alþjóðleg
samtök kombucha-bruggara um
allan heim. Okkar markmið er að gera
kombucha aðgengilegra á Íslandi og
í dag er hægt að fá vöruna okkar hjá
fjölda aðila,“ segir Manuel.
Hægt er að fá Kombucha Iceland
hjá eftirfarandi endursöluaðilum:
Í Krónunni, Melabúðinni, Fjarðarkaup-
um, Hagkaupum, Brauði og co og
10-11.
Einnig eru nokkrir veitingastaðir og
kaffihús sem bjóða upp á Kombucha
Iceland líkt og: Bio Borgari, Luna
Flórens, Gló, Kaffi Laugalækur, Háma,
Hipster, Lamb Street Food, Happ,
Garðurinn, Reykjavík Roasters, Kaktus
Expresso, Yndisauki, Tíu Sopar, Café
Roma og Fylgifiskar.
Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á
landi: Hjá Höllu í Grindavík, Sjávar-
pakkhúsið í Stykkishólmi, Kaja Organic
á Akranesi, Búðarnes á Bolungarvík
og Fisk Company á Akureyri.
„Við erum alltaf að leita að nýjum
endursöluaðilum og okkur langar að
fólk geti nálgast Kombucha Iceland
hvar sem er á landinu.“
Nánari upplýsingar á kubalubra.
is og facebooksíðunni Kombucha
Iceland
Manuel Plasencia Gutiérrez
og Ragna Björk Guðbrandsdóttir.