Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Side 33
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Allt seldist upp síðustu helgi –
Enn stærra núna um helgina!
Reykjavik Street Food hefur betur hamrað götubitamenninguna inn í þjóðarsál
Íslendinga. „Það hefur verið ótrúlegt
að sjá þróunina frá því við vorum með
fyrstu götubitahátíðina okkar, BOX,
í Skeifunni 2018. Okkur gjörsamlega
rigndi niður og ég held að svunturnar
hjá þeim sem voru með okkur séu
enn að þorna. Við sáum að þrátt fyrir
bleytu og gráma mætti þónokkuð af
fólki og við fílefldumst í sannfæringu
okkar um að götubitamenningin ætti
klárlega heima hér á landi,“ segir
Róbert Magnússon, einn eigenda
Reykjavik Street Food.
Það seldist bara allt upp!
Í fyrra var haldin hverfakosningin
Hverfið okkar á vegum Reykjavíkur
borgar þar sem hugmyndin um
matarmarkað var í fyrsta sæti hjá
Laugardælingum. „Í samstarfi við
Reykjavíkurborg héldum við stór
an matarmarkað í Laugardaln
um síðustu helgi. Þangað mættu
fjölbreyttir söðuaðilar með ýmist
hrávöru beint frá býlum, smærri
matvælaframleiðendur sem og
matarvagnar með gómsætan götu
bita. Þetta gekk algerlega vonum
framar og hátt í 10.000 manns
mættu í dalinn. Það seldist upp hver
einasta matarögn á laugar deginum,
tveimur klukkustundum áður en
markaðnum var lokað. Á sunnu
deginum mættu söluaðilarnir betur
búnir undir mannflóðið með meira
magn af mat. Samt kláruðu þónokkrir
allt á sunnudeginum líka.“
Íslenskt sinnep, alvöru wasabi og
margt fleira spennandi næstu helgi
Helgina 13. og 14. júlí verður haldinn
annar matarmarkaður í Laugar
dalnum. „Þetta verður langstærsti
matarmarkaður sem haldinn hefur
verið á Íslandi. Yfir 20 söluaðilar
mæta og má líta og smakka ýmislegt
fjölbreytt góðgæti. Ásamt ýmsum
gómsætum götubita verður til dæmis
hægt að næla sér í íslenskt sinnep,
grænmeti beint frá býli, þarna verða
íslenskir kaffigerðarmenn og margt
fleira. Einnig verða fáeinir glænýir
aðilar með bás á markaðnum og
verður spennandi að sjá hvernig þeir
standa sig. Við vonumst til þess að
gera matarmarkaðinn að árlegum
viðburði og búumst við að þetta
muni stækka með okkur. Markaðurinn
verður staðsettur undir suðurenda
áhorfendastúkunnar á Laugardals
velli.“ Það er um að gera að gera sér
ferð báða dagana því það verða ekki
allir aðilarnir báða dagana.
Nokkrir af þeim aðilum sem mæta
á markaðinn næstu helgi eru:
Vagnar: Reykjavik Chips, Tacoson,
Gastro Truck, Lobster Hut, Tasty,
Viking Trukkur, Prikið Trukkur, Fish And
Chips, Senis’s og Valhöll pylsugerð.
Básar: Kvörn, Pönnukökuvagninn,
Kátt á klambra, Bera Hot Sauce,
Bændur í bænum, Frú Lauga, Jömm,
Veganbúðin, Sinnep.is, Nordic Wasabi
og Sauðfjárbúið – Ytra Hólmi.
„Besti Götubiti Íslands 2019“
Margir hafa velt fyrir sér hvers
vegna búið er að mála stéttina á
Miðbakka við Reykjavíkurhöfn (á
móti Kolaportinu), en helgina 19.–21.
júlí verður þar haldin fyrsta götu
bitahátíðin á Íslandi. „Þarna verða
yfir 20 söluaðilar með heilmikið af
fjölbreyttum og spennandi götubit
um. Hugmyndin er að sameina þá
fjölmörgu matarvagna og söluaðila
sem bjóða upp á spennandi götu
bita á einni stórri hátíð. Þetta verður
allt inni í sérútbúnum gámum, sem
tengir hátíðina enn betur við höfnina.“
Að auki verður haldin fyrsta götu
bitakeppnin á Íslandi, „Besti götubiti
Íslands 2019“. Aðilar frá European
Street Food Awards mæta og dæma
í keppninni og sigurvegarinn tryggir
sér þátttökurétt í Evrópukeppninni í
Malmö í Svíþjóð í lok september þar
sem keppt verður um besta götubit
ann í Evrópu.
Markmið Reykjavik Street Food
hefur ávallt verið að styrkja götu
bitamenninguna á Íslandi, sem og
að kynna íslenskan götubita erlendis.
„Með framtaki okkar viljum við hvetja
fólk til þess að prófa eitthvað nýtt
og öðruvísi. Fólk getur þá mætt á
einn stað og upplifað blómstrandi
flóru í fjölbreyttri og framandi
matarmenningu með Reykjavik
Street Food. Íslendingar eiga svo
mikið af hæfileikaríkum kokkum og
matgæðingum sem eiga klárlega eftir
að koma íslenskri götubitamenningu
á kortið úti í heimi. Þá viljum við einnig
veita nýjum aðilum sem eru að koma
inn í götubitageirann stökkpall til þess
að koma sér af stað og vonandi halda
áfram rekstri. Það er gaman að segja
frá því að Jömm, Indican og Kore
komu allir fyrst fram á sjónarsviðið
hjá Reykjavik Street Food og hafa þeir
komist inn í mathallir þar sem þeir
vaxa og dafna í dag,“ segir Róbert.
Fylgstu með Reykjavik Street Food
á Facebook.