Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Qupperneq 38
38 12. júlí 2019
Hlaðvörp njóta síaukinna vinsælda úti um allan heim en hlaðvarpið My
Favorite Murder, eða eftirlætis
morðið mitt, hefur vakið mikla
lukku síðan fyrsti þátturinn
fór í loftið snemma árs 2016.
Hlaðvarpinu er hlaðið niður í
kringum nítján milljón sinnum
í hverjum mánuði og er efst
á ýmsum listum yfir bestu
SAKAMÁL
MORÐMÁLIÐ SEM BLÉS LÍFI Í KU KLUX KLAN
n Þrettán ára stúlka var myrt árið 1913 n Málið tekið upp aftur n Uppspretta gríðarlegs gyðingahaturs í Bandaríkjunum
„Morðið var afar
hrottalegt og
var bandspotti djúpt
grafinn í hálsi hennar
F
lestar verslanir og fyrirtæki
í Georgíu í Bandaríkjunum
voru lokuð þann 26. apríl
árið 1913, enda dagurinn
almennur frídagur til að minnast
hermanna Suðurríkjasambands-
ins sem féllu í herþjónustu. Skrif-
stofur fyrirtækisins National Pencil
Company í Atlanta voru hins vegar
opnar þennan dag því yfirstjórn-
andinn, hinn ungi Leo Frank,
þurfti að klára fjárhagsáætlanir
og greiða út laun til starfsmanna.
Einn af starfsmönnum hans, hin
þrettán ára Mary Phagan, mætti á
skrifstofuna til að sækja launin sín
en það sem gerðist í kjölfarið hafði
ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir
samfélagið í Suðurríkjum Banda-
ríkjanna, í raun Bandaríkin öll.
Gyðingar og barnaþrælkun
Mary vann í verksmiðjunni og fékk
aðeins tíu sent greidd á tím ann.
Þetta var ekki óalgengt í Suðurríkj-
unum á þessum tíma því vinnuað-
stæður verkafólks voru til skamm-
ar og var sérstaklega slæmt ástand
í Atlanta þegar kom að því að ráða
ung börn í vinnu, allt niður í tíu
ára gömul. Popúlistar kenndu
viðskiptajöfrum af gyðingaætt-
um um slæman aðbúnað barna
og barnaþrælkun á vinnustöðum,
þótt þeir sem hafi rekið fyrirtæki á
þessum tíma í Atlanta hafi aðhyllst
ýmis trúarbrögð. Fyrrnefndur Leo
Frank var hins vegar gyðingur og
hann réð ung börn í vinnu fyrir lág
laun, sem börnin létu svo foreldra
sína hafa svo fjölskyldan gæti lif-
að af.
Hrottalegt morð
Mary fannst látin í kjallaran-
um í National Pencil Company
daginn eftir að hún sótti laun-
in sín. Það var blökkumaðurinn
Newt Lee sem fann líkið en hann
vann í verksmiðjunni. Mary hafði
verið kyrkt og lamin í höfuðið. Þá
hafði henni einnig verið nauðg-
að. Morðið var afar hrottalegt og
var bandspotti djúpt grafinn í hálsi
hennar. Þá gat Newt Lee ómögu-
lega séð hvort stúlkan væri svört
eða hvít þar sem hún var blóðug
og líkið útatað í mold. Undarlegar
orðsendingar fundust nálægt lík-
inu. Erfitt reyndist að lesa skrift-
ina á miðunum en á einum þeirra
var hripað eitthvað um „hávaxinn,
svartan negra.“
Það kemur því líklega ekki á
óvart að Newt Lee var grunaður
um morðið í fyrstu. Síðar var ann-
ar blökkumaður, sem vann í verk-
smiðjunni sem sópari, Jim Conley,
grunaður um verknaðinn. Hann
hafði verið í verksmiðjunni daginn
sem Mary hvarf en neitaði sök.
Hann benti hins vegar á vinnu-
veitandann, Leo Frank. Sá neit-
aði einnig sök og sagði að Mary
hefði tekið launin sín og farið. Síð-
an hefði hann klárað vinnu sína
og farið heim. Kviðdómur komst
hins vegar að þeirri niðurstöð-
ur að Leo hefði banað Mary og
var hann dæmdur til dauða. Leo
skyldi verða hengdur. Það skal tek-
ið fram að í kviðdómnum sátu að-
eins hvítir einstaklingar og sætti
það tíðindum að þeir hefðu kom-
ist að þeirri niðurstöðu á þessum
tíma en ekki sakfellt blökkumann-
inn, Jim Conley. Það féll þó fljótt í
skuggann á því sem gerðist eftir að
Leo var sakfelldur.
Rænt úr fangelsi og hengdur
Það er vægt til orða tekið að segja
að málið hafi vakið gríðarlega
mikla athygli vestanhafs og skiptist
fólk í tvær fylkingar. Annar hópur-
inn hélt fram sakleysi Leos og hinn
hópurinn kynti undir andúð í garð
gyðinga. Flestir Georgíubúar töldu
að réttlætinu yrði fullnægt þegar að
Leo yrði hengdur á meðan íbúar í
norðurhluta Bandaríkjanna töldu
hann blóraböggul stjórnvalda
því ekki hefði tekist að finna rétt-
an morðingja Mary. Lögfræðingar
Leos áfrýjuðu niðurstöðunni og
loks var refsingin milduð í lífstíðar-
dóm í fangelsi. Þá varð uppi fótur
og fit og fljótlega lagði hópur, sem
kallaði sig Knights of Mary Phagan,
á ráðin um að ræna Leo og hengja
hann sjálfir.
Leo var rænt úr fangelsi þann
16. ágúst árið 1915 og var hann
hengdur næsta morgun. Áður en
hann fór yfir móðuna miklu bað
hann um að giftingarhringur hans
yrði gefinn konu hans. Nokkrum
mánuðum síðar voru samtökin Ku
Klux Klan stofnuð, en þeirra ein-
kenni er hatur á blökkufólki og
trú á yfirburði hvíta kynstofnsins.
Samtökin höfðu verið lögð af árið
1871 en árið 1915 fengu þau byr
undir báða vængi vegna morðsins
á Mary Phagan. Að sögn ýmissa
sagnfræðinga varð þetta morðmál
þess valdandi að gyðingahatur óx
mikið í Bandaríkjunum, en sama
ár og Mary var myrt voru samtök-
in Anti-Defamation League stofn-
uð, en þau berjast gegn gyðinga-
hatri. Þetta mál vekur því upp mjög
sterkar tilfinningar og hefur í rúma
öld orðið að deilumáli á milli hvítra
og svartra, gyðinga og kristinna,
dreifbýlisfólks og borgarbarna.
Málið tekið upp enn á ný
Nú á hins vegar að taka þráðinn
upp aftur og var það tilkynnt í maí
á þessu ári að málið yrði opnað
aftur. Nýstofnuð deild innan rétt-
arkerfisins vestanhafs, sem sér-
hæfir sig í gömlum, óleystum mál-
um, mun hafa yfirumsjón með
rannsókninni. Roy Barnes, fyrr-
verandi ríkisstjóri, verður ráðgjafi
nefndarinnar og hann stendur í
þeirri trú að Leo hafi verið sak-
laus en ýmislegt hefur bent til
þess að Jim Conley hafi í raun ver-
ið morðinginn. Það kemur með-
al annars fram í bókinni And the
Dead Shall Rise frá árinu 2003.
Margoft áður hefur verið reynt
að hreinsa nafn Leos. Fyrsta til-
raunin var gerð af hollenska blaða-
manninum Pierre Van Paassen
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Ku Klux Klan Samtökin hófu störf á ný eftir að
mál Mary Phagan kom upp.
Framburður
sem vakti
athygli
Alonzo Mann.